Dagný Einarsdóttir gaf mér góðfúslega leyfi til að birta aðferð sem hún notar við að velja frambjóðendur á stjórnlagaþing. Aðferðin gæti hjálpað öðrum að komast af stað.
„Engin ein aðferð við að kynna sér frambjóðendur til stjórnlagaþings hentar öllum. Þessi aðferð ætti að henta þeim sem hafa netaðgang og eru reiðubúnir að gefa sér dálítinn tíma. Sjálfri finnast mér kosningarnar nægilega mikilvægar til þess.“
I. Skanna og flokka
Ég nota stóra gormabók og skipti blaðsíðunni í tvo dálka. Annar er merktur skoða, hinn er merktur afgreiddur.
Á www.svipan.is fer ég í gegnum listann yfir frambjóðendur og skoða upplýsingarnar sem þeir gefa um sjálfa sig þar. Ef mér líkar það sem þar kemur fram, kanna ég hvort frambjóðandinn vísar á blogg eða aðrar frekari upplýsingar á netinu. Ef svo er, fer hann/hún í dálkinn skoða. Aðrir fara í dálkinn afgreiddur.
(Líta þarf aftur yfir listann á www.svipan.is þar sem enn hafa ekki allir frambjóðendur sent inn kynningarefni.)
II. Skoða
Ég skoða blogg frambjóðenda. Allir sem tjá sig með gífuryrðum og uppnefnum eru strikaðir út í skoðunardálkinum. Sama gildir um þá sem hafa mjög fastmótaðar skoðanir á því hvað eigi að vera í stjórnarskránni. Þeir eru ekki líklegir til að geta tekið þátt í samráði. Einnig fólk sem virðist ekki gera sér grein fyrir hvað stjórnarskrá er. Fólk með augljós/sterk tengsl við sérhagsmunaöfl og stjórnmálaflokka strika ég líka út. Ef ég kemst að því að einhverjir reyni að fela hagsmunatengsl sín mun ég strika þá út.
III. Annað
Rekist ég á frambjóðendur á Svipulistanum eða annars staðar, sem ég þekki og treysti frá fornu fari, set ég þá á kosningalistann minn. Ef ég frétti af einhverjum áhugaverðum frambjóðendum sem ekki setja upplýsingar um sig á Svipuna, skoða ég þá samkvæmt II. lið.
------------------------------------------------------------------------------------------------------------
„Þessi aðferð er ekki fullkomin en hún hentar mér. Ég er komin með 32 einstaklinga á skoðunarlistann. Sá yngsti er 25 ára, sá elsti er 76 ára. Þetta eru 13 konur og 19 karlar. Ég stefni að því að á listanum verði um 50 frambjóðendur sem ég ætla að skoða betur þegar kynningarbæklingur stjórnlaganefndar berst kjósendum.
Á kosningarlistann er ég komin með tvo frambjóðendur, karl og konu.“
Hér eru vefsíður sem Dagný segir að hafi reynst sér hjálplegar:
http://www.svipan.is/
http://www.stjornarskra.is/
http://stjornarskrarfelagid.is/
3 3 0 4
Blogg
Aðferð Dagnýjar við val á frambjóðendum
15:12 › 25. október 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




Þau drög að uppsögn Gunnars Andersen, forstjóra Fjármálaeftirlitsins, sem birst hafa almenningi, bera þess merki að annarleg sjónarmið kunni að liggja að baki. Svo mikið lá á að koma Gunnari ... 
