Getur þú samið einfaldar, uppörvandi leiðbeiningar fyrir kjósendur sem rúmast á einu A4 blaði?
Í kosningunum til stjórnlagaþings þurfa kjósendur að velja helst tuttugu og fimm frambjóðendur úr hópi þeirra fimm hundruð sem bjóða sig fram.
Kjördagur er 27. nóvember en 3. nóvember verður ljóst hverjir verða í framboði. Listi yfir frambjóðendur verður birtur þann dag, væntanlega á upplýsingavef stjórnlagaþings.
Gera verður ráð fyrir að skrá með nánari upplýsingum um frambjóðendur hafi borist inn á hvert heimili í landinu 10. nóvember, en þann dag hefst atkvæðagreiðsla utan kjörfundar.
Tíminn sem kjósendur hafa til að ákveða sig er naumur.
Hvernig telur þú best fyrir kjósendur að standa að því að velja 25 frambjóðendur úr hópi fimm hundruð? *
Ef þú getur útskýrt það á einu A4 blaði, þá hefur þú unnið þjóðþrifaverk.
* Gera má ráð fyrir að val kjósenda ráðist annars vegar af málefnaáherslum og hugmyndum frambjóðanda og hins vegar því hve trúverðugur frambjóðandinn er í augum kjósandans.
ATH. Þeir sem vilja ekki nota athugasemdakerfið geta sent mér póst á netfangið hjahirti@gmail.com
Blogg
Viltu vinna þjóðþrifaverk?
08:58 › 24. október 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
