Heiða B. Heiðars

Heiða B. Heiðars

Oft fljótfær og stundum pínu kjaftfor frekjudós sem sér ekki alltaf ástæðu til að hugsa áður en hún talar. Algjörlega ónæm fyrir þolinmæði og játar á sig einstaka annmarka..... en ekkert sem tekur því að nefna.

Keflavík og Keflvíkingar

13. júní 2012 › 20:35

Ég man þegar Tómas Tómasson var bankastjóri í Sparisjóð Keflavíkur. Tómas naut virðingar í samfélaginu enda skilst mér að hann hafi verið toppmaður. Nógu indæll var hann allavega.
Þá var SpKef í fallegu tveggja hæða húsi á Suðurgötunni. Ég man eftir húsinu, ég man eftir fallegu málverkunum og ég man eftir spennunni á meðan það var verið að telja upp úr sparibauknum mínum. 
Ég man líka eftir pabba í betri fötunum að fara að hitta Tómas og seinna Palla "Gústu". Á þessum tíma fór fólk gjarnan í betri fötin til bankastjóra.

Ég fékk fyrsta lánið mitt í formi víxils hjá Palla. Ég kveið fyrir í marga daga áður en ég fór á fund hans en hann var ekkert nema almennilegheitin.... og föðurlegur með afbrigðum. Hann vildi ekki láta mig fá þá upphæð sem ég fór fram á, sagði mér að ég þyrfti ekki svona mikið. Kleip aðeins af beiðninni en samþykkti rest.

Sparisjóður Keflavíkur var einn af hornsteinum samfélagsins. Sparisjóðurinn spilaði stórt hlutverk þegar bærinn óx, fólki fjölgaði og hús og fyrirtæki byggð upp.

Keflavík var meira þorp en bær. Það þekktu allir alla og svo voru persónur og leikendur sem stóðu upp úr ýmissa hluta vegna. Ég man eftir skólastjórum, kennurum, skrautlegum karakterum og virðulegum mönnum og konum sem nutu virðingar vegna framlags þeirra til samfélagsins.

Í minningarnar er auðvelt að sækja nöfn og andlit fólks sem af miklum dugnaði og stolti byggðu upp þennan bæ. Líklega mismunandi hverjir það eru eftir því hver rifjar upp. Eftir fréttir undanfarinna daga af SpKef eru nokkrir ofarlega í huga mér. 
Einn af þeim yngri í þeim flokki var til dæmis Vilhjálmur Ketilsson, ég held hreinlega að hver einasti kjaftur í bænum hafi litið upp til Villa. Enda algjörlega frábær. Pabbi hans var Ketill á rútunni og mamma hans, hún Gerða í Poseidon, tískuverslun bæjarins sem ég og allir hinir Keflvíkingarnir dressuðum okkur upp. Eðal fólk
-En ritstjóri fréttablaðs Keflvíkingar er einmitt næst-yngsti bróði Vilhjálms, Páll. Hann virðist leggja meiri áherslu á að stuða ekki bæjarstjóra af ritstjónarpistlum hans að dæma. Það stakk mig einnig að sjá að hvorki í gær né í dag hefur verið hægt að finna einn stafkrók um SpKef skýrsluna sem aðrir fjölmiðlar ræða í þaula. 

Svo hef ég hugsað til Jóns í Ofnasmiðjunni. Ég man eftir því að hann naut mikillar virðingu fyrir að hafa byggt um fyrirtækið sitt af miklum dugnaði og oft blés hressilega á móti en hann þrælaðist áfram og á endanum stóð uppi sterkt og gott fyrirtæki sem skapaði atvinnu fyrir marga.
Steinþór Jónsson, sá sem var hvað duglegastur að ryksuga milljarða út úr SpKef er einmitt sonur þessa Jóns. Steinþór var bekkjabróðir minn og það er vægast sagt furðuleg tilhugsun að minnast litla væskilega Steina þá og svo samviskulausa græðgisdýrið sem hann er núna - og enn hóteleigandi og efnamaður þrátt fyrir milljarða afskriftir.


Hvernig væri að Keflvíkingar hrisstu af sér slenið og léti þessa menn lifa í skugga þeirra stóru persóna sem byggðu og byggja vafalítið enn þennan bæ?
Jónmundur, Geirmundur, Steinþór og þeirra klíka hafa séð til þess að sparisjóðurinn ykkar, hornsteinn samfélagsins er ekkert nema skelin sem byggð var utan um alla draumana. Þeirra græðgisdraumar eru enn óskertir og fá að vera það áfram m.a með aðstoð frá vinum þeirra sem finna má hjá bæjarstjóranum,  í bæjarstjórn á ritstjórnarskrifstofu og í Valhöll. Ykkar draumar munu amk ekki rætast með peningum úr SpKef. 

Og nú látið þið segja ykkur að ríkisstjórnin beri ábyrgð. Ríkisstjórnin hefur ýmislegt á samviskunni... en hún sá ekki um að gera þessa spillingarpésa feita og pattaralega. Það gerður aðrir..
með ykkar samþykki.  


 



Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.