Ég fékk viðbrögð frá Besta flokknum við þessari færslu:
http://www.dv.is/blogg/heidab/2012/2/18/jon-gnarr/
Og ég verð að segja að ég er nokkuð sátt. Að sjálfsögðu þyrfti að gera miklu betur. En ég hef í huga að á meðan hið svokallaða góðæri ríkti þá var lítið gert fyrir útigangsfólk í Reykjavík og það mun taka tíma að gera ástandið almennilegt. En það er ástæða fyrir því að ég er ánægð með Besta og borgarstjórann.
Samantekt af svari;
Síðan Besti flokkurinn tók við í borginni hefur Mýrin verið opnuð en það er heimili fyrir heimilislausar konur.
Miklabraut 20 sem hefur hingað til verið heimili fyrir útigangsmenn sem eru að koma sér út úr neyslu er verið að breyta í sérstakt úrræði fyrir fíkla sem hafa verið tvígreindir, fíkniefna og áfengisfíkn auk geðsjúkdóms.
Í síðustu fjárhagsáætlun voru settar 40 milljónir í verkefni tengdar þessum málaflokk og þannig eru þessi verkefnin m.a fjármögnuð
Í vinnslu er samstarfsverkefni borgar, lögreglu og fleiri aðila sem sinna þessum hópum og verður það kynnt innan skamms
Ég er ánægð með að vera svarað og ég er sátt við svarið.
Mér sýnist Besti vera að gera sitt besta



















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
