ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 5m/s NNW
Heiða B. Heiðars

Heiða B. Heiðars

Oft fljótfær og stundum pínu kjaftfor frekjudós sem sér ekki alltaf ástæðu til að hugsa áður en hún talar. Algjörlega ónæm fyrir þolinmæði og játar á sig einstaka annmarka..... en ekkert sem tekur því að nefna.

Öskurapar

23:15 › 15. febrúar 2012

Stjórnarandstaðan spriklar núna í ánægjuóeðli sínu yfir hæstarréttardómi dagsins.
En þegar lög þau sem nú hafa verið dæmd brotleg gegn stjórnarskrá landsins af sjö dómurum hæstaréttar voru til meðferðar í þinginu var það bara Hreyfingin sem sagði NEI

Hinar gungurnar sátu hjá og heimta nú afsögn stjórnarinnar.
Þessar gungur, sem ekki gátu staðið með svokallaðri "sannfæringu" sinni á borði öskra nú eins og þeir séu kyndilberar réttlætisins.


ÞEIR SÁTU HJÁ VIÐ ATKVÆÐAGREIÐSLUNA UM LÖGIN.
Sama fólkið sat hjá við atkvæðagreiðsluna og æpir nú á afsögn ríkisstjórnarinnar. Af hverju? 
Ímyndið ykkur nú hvernig hlutirnir væru ef þessir tveir flokkar hefðu verið í stjórn. 

Það er eðli ömurlegra stjórnvalda að vilja hafa almenning jafn ömurlega settan. Nú hefur þeirri ömurð verið snúið við og kvíðakastið yfir næstu baráttu yfirvofandi.

Útblásin verðtryggð lán eru næst.
Núna er tíminn til að biðja Guð að blessa Ísland.  



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?