-
Jákvæð uppbyggileg hvetjandi lykilorð
13. apríl 2012
Undanfarnir mánuðir hafa verið með þeim erfiðari sem ég hef lifað, röð leiðinlegra atvika og löng veikindi hafa sett strik í reikninginn en það er allt á uppleið núna sem betur fer, ég ætla mér að losna úr þunglyndinu sem ég hef verið föst í, í svo mörg ár. Ég held ég sé komin með ágætis aðferð til að heilaþvo mig :P (hehehe þetta orð "heilaþvottur" hefur fengið nýja merkingu hjá mér núna, að þvo burt niðurdrepandi og neikvæðar hugsanir)
Ég er að reyna að forðast neikvætt tal eða vangaveltur, t.d um hvernig allt ætti að vera eða hvernig allt var áður fyrr og einbeita mér bara að því sem er! Ég er búin að vera að skoða ýmislegt á netinu sem er uppbyggilegt og hvetjandi, t.d ýmsar hugmyndir sem hægt er að búa til fyrir heimilið sem kostar ekki mikið, sem hægt er að búa til úr því sem flest heimili eiga til eins og gömul föt, krukkur eða dósir. Ég hef verið að lesa mikið af kvetjandi orðum/spakmælum og safna þeim saman á rafrænu korktöfluna mína á netinu, en það er ekki nóg að hafa þau bara þar, ég þarf að lesa þau reglulega til að minna mig á, svo að ég ákvað þess vegna að finna leið til að minna mig á, ef ég skrifa minnismiða og hengi upp á ákveðna staði í húsinu þá hef ég tekið eftir því að eftir ákveðin tíma þá hættir maður að sjá miðana, þeir byrja að falla inní umhverfið. Svo ég ákvað að breyta lykilorðinu á tölvuna minni í eitthvað jákvætt, þar sem ég logga mig inn mörgum sinnum á dag, þá með þessu er ég þar af leiðandi alltaf að segja sjálfri mér þau nauðsynlegu sjálfstyrkingarorð sem ég þarf svo á að halda, ég er núna búin að gera þetta í smá tíma og þetta er virkilega að virka, ég hef sagt nokkrum þetta sem ákváðu líka að gera þetta og þetta er algjörlega málið, framvegis mun ég bara nota jákvæð og uppbyggileg lykilorð..... Það er kominn tími til að tala fallega til sjálfs síns og hætta öllu niðurrifstali.....
Þar sem ég sé að þetta virkar fyrir mig og mína vini, þá langar mig að deila því til ykkar svo þið getið prufað þetta líka, það hafa allir gott af því að hrósa sjálfum sér :D Það er líka hægt að nota lykilorðið til að minna sig á aðra hluti sem gleðja mann eða aðra í kringum mann. Hér eru nokkrar hugmyndir af lykilorðum : ég er skemmtileg/ur, ég er falleg/ur, ég á góða hluti skilið, kveikja á tónlist (tónlist er hressandi, maður gleymir bara oft að kveikja á útvarpinu), segja eitthvað fallegt við maka, knúsa börnin, taka vítamín, hringja í vin, betra líf..... nota bara jákvæð orð, í stað þess að segja "ég er ekki leiðinleg/ur", þá segja frekar "ég er skemmtileg/ur" :)
Það tekur tíma að byggja upp sjálfsálit, af einhverjum ástæðum trúir maður oft ekki þeim sem hrósar manni, jafnvel þótt manni er hrósar hundrað sinnum af hundrað mismunandi manneskjum, það er kominn tími til að snúa þessu við, mig minnir að ég hafi einhvern tímann heyrt það að rannsóknir sýna það að ef maður heyrir eitthvað nógu oft þá fer maður að trúa því, er þá ekki málið að stjórna því hvað maður heyrir ;)
Skrifa athugasemd
-
Náðu þér frítt í kindle-eintak af bókinni minni á ensku inná amason.com
3. apríl 2012
Ég lét verða af því um daginn að gefa út bókina mína, "Má ég vera memm?" - "Can I Play?" á ensku :P Ég er rosalega ánægð með útkomuna og svoldið montin. Ég skráði mig í kerfi hjá Amazon.com sem heitir Kindle Owners' Lending Library þar sem Amazon hefur einkarétt á sölu bókarinnar í 90daga, mér bíðst að velja allt að 5 daga á þeim tíma til að kynna bókina með því að gefa hana, þetta kallast víst free promotion day. Ég valdi einmitt daginn í dag.
Langar mér því að benda ykkur sem hafa áhuga á að downloada bókinni minni frítt á amazon (held það sé til sirka 6 eða 8 í nótt) . Ef þú ert með snjallsíma, spjaldtölvu eða bara venjulega PC þá ættiru að geta fengið frí forrit til að skoða bækur í. Endilega ná sér í eintak og benda vinum á bókina. Ekki verra ef þið skellið á einu like á bókina mína inná amazon í staðinn ;) hérna er linkur á bókina
Þetta er mjög gott forrit fyrir PC tölvur sem Amazon bíður uppá frítt www.amazon.com/gp/feature.html/ref=sv_kstore_1?ie=UTF8&docId=1000493771 tekur yfirleitt sirka mínútu að downloada.
Vonandi að sem flestir njóti góðs af.
ps: Því miður er íslenska útgáfan ekki í boði á amazon.com, þar sem þeir selja eingöngu þau tungumál sem þeir geta yfirfarið sjálfir til að geta sannreynt að innihaldið sé innan velsæmismarka.
Skrifa athugasemd
-
Hæsti "ó" réttur
10. febrúar 2012
Ég keypti hús og innréttaði fyrir nokkrum árum, ég átti eftir að borga lokagreiðslu uppá 500.000kr. Í ljós kom stuttu seinna að margir gallar voru í húsinu, ekki var farið eftir teikningum, hlutum var sleppt, sett ódýrara efni en sagt er um á teikningum og svo framvegis. Við unnum fullnaðar sigur í Héraðsdómi, fengum hluta af bótunum greiddar strax sem voru rétt rúm milljón, en Vís sem átti að greiða bæturnar áfrýjaði til hæstaréttar einum lið af 18.... við sem sagt unnum 17 liði, en þeir vildu ekki greiða viðbótarmatsliðinn sem var kostnaðarsamasti liðurinn, viðbótarmatsliðurinn varðaði þakið á húsinu okkar (ég mun útskýra þann lið síðar í þessu bréfi), niðurstaðan frá hæstarétti er vægt til orða tekin sjokkerandi!!! þar sem þessari kröfu um viðbótarmatsliðinn var hafnað þá þurfum við nú að greiða allan lögfræðikostnað og matgerðina sjálf, málskostnað uppá fjórðar milljónir. Enginn rökstuðningur er fyrir þessari niðurstöðu. Ég og lögfræðingarnir mínir marg lásum dóminn til að reyna að fá einhvern skilning í þessa niðurstöðu, það eina sem okkur dettur í hug að gæti hafa ráðið þessari niðurstöðu er sú að þessi eini liður hafi verið kostnaðasamasti liðurinn og þar með hafi meiri hluti málsins "tapast". Það virðist vera að dómarar hafi ekki tekið inní reikninginn að þessi eini liður var bara brota brot af allri lögfræðivinnunni og vinnunni við matsgerða. Eða tekið inní reikninginn að það var okkur sem var stefnt upphaflega fyrir fimmhundruð þúsund króna lokagreiðslu svo í rauninni töpuðu þeir málinu ef dæmt sé út frá upphæðum! Skemmdirnar voru langt yfir þeirri upphæð..... afhverju fellur lögfræðikostnaðurinn á okkur, við unnum þetta mál, við töpuðum í rauninni heldur ekki þessum eina lið málsins, okkur voru bara ekki dæmdar bætur fyrir þennan lið af þeirri ástæðu að við áttum ekki að hafa orðið fyrir fjárhagslegur tjóni, sem við samt sem áður urðum fyrir og getum sýnt framá. En afþví þeir voru ekki dæmdir til að borga alla liði málsins þá fáum við ekkert bætt.
Dómararnir segja að ekkert fjárhagslegt tjón hafi orðið á þessum eina lið..... ef við borguðum 3.580.000kr fyrir þakið samkvæmt teikningu en fengum þak sem er 1.260.000 krónum ódýrara, er það þá ekki fjárhagslegt tjón? Dómararnir hafa að mér sýnist setið saman með kaffibolla og ákveðið þetta í sameiningu, til hvers eru þrír dómarar? Ég hélt það væri til að fá þrjú mismunandi álit, ég væri til í að sjá rökstuðning þeirra þriggja, en það er víst ekki hægt, fyrir mér er þessi dómur (ef hægt er að kalla þetta dóm) ólöglegur. Í dómnum er tekið fram að byggingarstjóri hafi brotið lög með saknæmum hætti en í næstu setningu er kröfunni okkar hafnað, hvernig má það vera, maðurinn er sekur en hann þarf ekki að borga fyrir það, er þá í lagi að brjóta lög og svíkja fólk án þess að það séu afleiðingar?
Viðbótarmatsliðurinn beint úr matsgerðinni: "Í matsgerð segir að staðreynt hafi verið að frágangur þaks sé annar en fram komi á teikningum. Þá segir: „Þakdúkur er annar sem og lausnir við þakbrunna. Þá mun einangrun vera önnur en það var ekki staðreynt. Í höfuð atriðum er gerð þaks þó eins og fram kemur á teikningum þ.e. að ofan á steypta þakplötu er lögð einangrun og þakdúkur yfir hana og malarfarg. Matsmaður telur að þakfrágangur eins og hann er sé sem slíkur fullnægjandi og þjóni sama hlutverki og lausn skv. teikningum. Á lausnunum er hins vegar nokkur munur eðlisfræðilega og tæknilega. Báðar lausnirnar eru eðlisfræðilega í lagi þ.e. að ekki verður skaðleg rakauppsöfnun í þakinu en reikningslega safnast upp raki í lausn skv. teikningum á löngum tíma en er skaðlaus á líftíma lausnarinnar. PVC þakdúkur eins og er á þakinu er viðkvæmari fyrir hnjaski en asfaltdúkur. Báðar lausnirnar eru þannig að ef leki er á dúknum lendir vatn í einangrun og getur lekið inni. Minni líkur eru þó á leka í lausn skv. teikningum vegna asfaltsdúks sem límdur er á steypta þakplötu undir einangrun. Matsmaður telur að ending þakdúkanna sé sambærileg". ...... verðmismunur á þessum tveimur lausnum er 1.260.000kr
Upphaflega voru húsin fjögur sem fórum í mál, okkur var öllum stefnt vegna ógreiddrar lokagreiðslu sem var mishá. Við ákváðum öll að gagnstefna saman, við fengum okkur sama lögfræðinginn, svo málin voru flutt á sama tíma, fyrir sömu dómurunum, sömu gallarnir og alveg eins hús (eða 3 þeirra eru nákvæmlega eins, með eins göllum, en eitt þeirra er örlítið frábrugðið, þ.e.a.s þakið er öðruvísi) tvö hús fá fullar bætur en tvö húsanna þurftu að borga allt, þetta er óskiljanleg niðurstaða og virkilega óréttlát, þetta hljóta að hafa verið mistök ég trúi ekki öðru, hvernig getur þeim fundið þetta sanngjarnt? Þetta er svipað eins og ef fjórir menn brjótast inn en tveir verða fundnir saklausir en tveir sekir.
Hús númer 20,22 og 24 (okkar hús er 24) eru öll nákvæmlega eins, kröfurnar voru eins, hús númer 2 er raðhús, þakið er öðru vísi en allar aðrar kröfur voru eins. Hús númer 20 skuldaði hæstu lokagreiðsluna sem var svipuð há og nýtt þak kostar svo þeirra máli var ekki áfrýjað, þeirra mál hélt því ekki áfram til hæstaréttar, þau fengu því fullar bætur, ásamt dráttarvöxtum í eitt ár, allur lögfræðikostnaður greiddur ásamt matsgerðinni. Hús númer tvö vann í hæstarétti, fékk greiddar fullar bætur ásamt lögfræðikostnaði, matsgerðinni og dráttarvöxtum í tvö ár. Hús númer 22 var með lang mestu skemmdirnar, þakið lak, myglusveppurinn var það mikill hjá þeim að herbergi var óíbúðarhæft. þau fengu eins og við litla greiðslu í héraði en töpuðu þessum eina lið varðandi þakið í hæstarétti og þurfa því að borga um fjórðar milljón í málskostnað!
Nú spyr ég, hvað gerist svo ef þakið fer að leka? Þarf ég þá að fara aftur í mál? Er málið þá fyrnt? Er 1 260.000kr ekki fjárhagslegur skaði? Er sanngjarnt að ég greiði málskostnað uppá fjórðar milljónir af því að maðurinn sem svindaði á okkur og var fundinn sekur bæði héraði og hæstarétti var ekki dæmdur til að greiða þennan eina matslið? Ósanngjarnara gæti þetta ekki verið, með óskiljanlegum hætti töpuðum við unnu máli.... já þetta hljómar fáránlega en er staðreynd, þetta er í þversögn við sjálft sig. Þetta mál er ekki spurning um ágreining, það eru viðurkenndar staðreyndir um vanrækslu byggingastjórans og ætti þetta mál að vera endurskoðað, ég er alla vega ekki til í að sætta mig við eins ósanngjarna niðurstöðu og þetta er, í það minnsta ættum við (hús 22 og 24) að fá greiddan málskostnaðinn.
Ég er búin að hafa samband við dómsmálaráðuneyti og bíð nú eftir símtali þaðan, ég á tíma hjá dómsmálaráðherra, ég er búin að fara niður í hæstarétt og tala við fólk þar, við töluðum líka við aðstoðamann þessarra þriggja dómara, hún vildi meira að segja meina það að úr því að hús númer 20 fékk greitt, þó stærsta fjárhæð þeirra hafi farið uppí sem skuldajöfnun vegna lokagreiðslu þá eru það peningar sem okkur hinum er mismunað um eingöngu vegna þess að við skulduðum minna, með því að borga þeim þá hafi tryggingafélagið sem átti að greiða bæturnar verið að una dómnum, aðstoða maður dómara vildi meina að með því ættum við hin rétt á greiðslu eins og þau og að hæstiréttur hafi verið óþarfur, við ættum að geta farið niður í tryggingarfélagið án þess að þurfa lögfræðing til þess að ná í peningana okkar og þá upphæðina sem héraðsdómur dæmdi okkur því það er jú upphæðin sem hús nr 20 fékk! Það er einmitt það sem við ætlum að gera, ég fer með þetta eins langt og ég get, ég hætti ekki fyrr en ég fæ greitt, hvernig sem ég mun fara að því!!
Skrifa athugasemd
-
Safna kröftum
3. janúar 2012
Hef ekki haft mikla krafta undan farið til að blogga eða standa í neinu, ég hef verið mikið veik síðan í september, ég er nú öll að koma til eða svona næstum því, ég veit ekki ennþá hvað er að mér en ég er þó töluvert betri en ég var þegar ég var sem veikust :/ Það vantar svo sem ekki hluti til að blogga um, ég hef ef eitthvað er of mikið til að blogga um, ekki beint skemmtileg blogg, ég ætla mér samt að blogga um skemmtilega hluti þegar ég hef lokið þessum veikindum sem sér ekki fyrir endan á og þegar ég hef lokið þessu leiðinda máli við Regnbogabörn, þessa dagana er ég bara að safna kröftum. Ég er ekki búin að gefast upp hvort sem er átt við að komast til heilsunnar eða ná fram réttlæti í sögunni endalausu. Stefnan hefur verið afhent Regnbogabörnum, það var gert fyrir jól, nú er bara að bíða og sjá. Það er áhugavert að sjá hvort þeir kjósi frekar að eyða milljón í lögfræðikostnað heldur en að borga mér örlítið hærri upphæð (fyrir eitthvað sem ég á 100% rétt á), halda ærunni og hætti að gera mér lífið erfiðara en það er! Ég verð að segja að mér finnst það helvíti skítt ef þeir gera það og miðað við það sem ég hef þurft að díla við undan farin ár þá hugsa ég ég viti það fyrirfram að þeir eru ekkert að fara að borga mér nema dómur segi til um það og jafnvel ekki þá heldur...... en það segir manni þá hvers konar fólk/samtök þetta eru! Ég ætla samt að gefa því séns að þeir reyni að semja og bíða þess vegna með frekara skítkast..... maður verður að reyna að vera jákvæður, vonast til að árið 2012 verði betra en það seinasta og að fólk geti breyst ;)
Skrifa athugasemd
-
Ég vil ekki verða bitur gömul kona.
4. nóvember 2011
Ég hef oft hugsað útí það að sumt gamalt fólk getur verið svo kalt og biturt. Enginn hefur sko upplifað eymd af neinu viti miðað við það sem þau upplifðu á þeirra yngri árum, mér hryllir við hugsunin um að halda fast í leiðinlegar minningar í 50 ár eða lengur. Mig langar ekki að verða bitur gömul kona! Kannski hefur það haft áhrif á að hef vanið mig á það að "fyrirgefa" fljótt og velta mér ekki of mikið uppúr einhverju volæði, þetta gæti líka verið einhvers konar vanlíðunar flótti hjá mér , hvort sem það er, þá hentar það mér ágætlega því mér leiðist að líða illa. Það má segja að mér líði almennt ekkert illa dags daglega en mér líður heldur ekkert vel, ég er bara þarna! Mér tókst að upplifa í mjög stuttan tíma um daginn hvernig er að "langa að lifa" það er ekki þar með sagt að ég sé með stöðuga sjálfseyðingarhvöt, mig hefur bara ekki langað til að lifa.
Ég hugsa yfirleitt ekkert um fortíðina, en vegna væntanlegs dómsmáls á hendur Regnbogabörnum og umræðna í þjóðfélaginu undanfarinna vikna hefur óneytanlega rifjast ýmislegt upp. Ég verð að viðurkenna það að mér langar ekkert sérstaklega til að fyrirgefa fólkinu sem eyðilagði líf mitt, mér finnst erfitt að heyra sögur frá þessum tíma, stundum fylgir sögunum nýtt uppnefni sem ég hef ekki heyrt áður, sem mér langar ekkert til að bæta í safnið. Þegar ég heyri/frétti af fólk sem var með mér í skóla að rifja upp að "þessi" og "þessi" voru lögð í einelti, þá er alltaf tekið sérstaklega fram "að eineltið á Hörpu var einstaklega slæmt!" átti ég allt slæmt skilið? Það kemur fyrir að ég hitti fólk útá götu sem segir "mannstu ekki eftir mér ?", ég var með þér í skóla! Ég: nei.... ég man ekkert eftir þér, ég held hreinlega að mér hafi tekist að blokkera öll þessi ár í burtu, ég vil ekki muna eftir þessum tíma! Mér finnst sorglegt að fólk muni bara eftir mér vegna eineltisins sem ég lenti í.
Ég hef fengið nokkuð margar afsökunarbeiðnir í gegnum árin og einhvern veginn hefur verið svo ríkt í mér að halda friðinn, valda ekki leiðindum og særa ekki neinn, ég veit hvernig sársauki er og ég vil ekki valda öðrum sársauka eða koma í veg fyrir að öðrum líði vel, ég hef því ómeðvitað tekið við afsökunar beiðnum til að veita gerendunum sálarfrið, ég hef síðar, meira og meira áttað mig á því að ég þarf ekkert að fyrirgefa þessu fólki.... ég hef fengið svo margar "litlar" afsökunarbeiðnir sem ég hef ekki hugsað um að neinu ráði, bara sagt já og amen við gerandann, sagt allt gleymt og grafið og sett þær svo í bunkann af minningunum sem mig langar ekkert til að muna, bara af því ég kann ekki við það að segjast ekki vilja fyrirgefa þeim, og þetta er auðveldara svona! kannski er ljótt að viðurkenna það, en ég hef enga þörf fyrir að fyrirgefa þeim að minnsta kosti ekki eins og staðan er í dag.
Fyrir mörgum árum fékk ég símtal, það var maður sem vildi ólmur koma og biðjast afsökunar í eigin persónu, á þeirri stundum fannst mér það fallega gert og mat það mikils, ég hugsaði að þetta væri örugglega erfitt skref fyrir hann (tek fram að ég met það mikils enn í dag, en ég gerði mér ekki grein fyrir því sem tók við). Hann kom, hann mundi eftir að hann hafði verið sérstaklega slæmur við mig, hann sagði að honum hafi liðið illa á þessum tíma og hann hafði átt erfitt heima fyrir, hann augljóslega sá eftir öllu, ég þakkaði honum fyrir heimsóknina og sagði honum að hann hafi ekkert verið neitt verri en aðrir og svo fór hann. Eftir að hann fór rifjaðist upp fyrir mér svo margt, jú það var rétt hjá honum, hann var einn af þeim verstu við mig, það gaus upp hjá mér reiði, núna sat hann heima hjá sér búinn að friða samviskuna sína, nema að núna leið mér ömurlega yfir hlutum sem ég kærði mig ekki um að muna, það tók mig svoldinn tíma að vinna mig útúr þessu! Í dag hugsa ég þó til þess að hann er líklega sá eini sem innilega hefur átt skilið að fá já við afsökunarbeiðninni sinni þar sem hann sýndi eftirsjá í verki.
Um daginn fékk ég athugasemd við fyrsta blogginu mínu ( http://www.dv.is/blogg/harpa-luthers/2011/10/21/eg-var-svikin/ ) sem sló mig svoldið, það sem sló mig var það að kona sem ég passaði fyrir þegar ég var 13 ára var að tjá sig um það að ég hafi ekki staðið mig í barnapíu hlutverkinu.....! mér er það svo fjarstætt að hugsa til þess að einhver hugsi svona í alvöru 21 ári seinna " hún stóð sig ekki nógu vel þegar hún passaði fyrir mig þegar hún var 13 ára, að ég ætla að skemma fyrir henni !!! " hver annar er tilgangurinn með þessari athugasemd annað en að skemma? Ég er að tala um í blogginu um 10 ár af einelti og 8 ára baráttu við eineltis samtök, í athugasemdum hafði ég líka nefnt 15 ára þunglyndi og að það sé dagleg barátta að reyna að langa að lifa, fannst henni þetta í alvöru í lagi? Á ég allt slæmt skilið? Burt séð frá því hvort ásakanirnar voru réttar eða rangar og burt séð frá því hvað annað ég mögulega hef gert af mér í lífinu, þá kemur það málinu mínu við Regnbogabörn ekkert við! Ég svaraði þessum ásökunum og leyfði henni að ráða hvort hún tæki athugasemdina út eða ekki, athugasemdin var síðan horfin daginn eftir. Það getur vel verið að ég eigi erfitt með að fyrirgefa fólkinu sem eyðilagði líf mitt en mér dettur ekki í hug að skemma fyrir þeim!Skrifa athugasemd



















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
