-
Raunhæfur möguleiki?
4. desember 2008
Sá færslu á Moggablogginu, http://tatum.blog.is/blog/tatum/entry/734890/
, og langar að vita hvort þetta sem Tatum talar um sé raunhæfur möguleiki til bjargar þjóðfélaginu. Kannski of einfaldur? Kannski of miklir hagsmunir fárra? Hef ekki hugsað út í það að til eru mjög margir lífeyrissjóðir sem fá himinháar fjárhæðir frá vinnandi fólki í hverjum mánuði og ef fólk deyr áður en það fer að „njóta“ eftirlaunanna renna greiðslurnar til sjóðsins. Líka mjög margir yfirmenn á háum launum. Þarna er a.m.k. fullt af peningum. Jamm.
Er soðin eftir bað og ætla nú að kíkja á byrjunina á Mamma Mia. Einu sinni fékk ég afmælisskeyti til London þar sem ég var au pair. Það var undirritað: Mamma Mia, Hilda og Gummi. Þeir sem vita að ég á systur sem er kölluð Mía skilja þetta ...
Fékk ekkert frá leynivininum í dag, eins og hann byrjaði vel. Tíu rauðu rósirnar frá degi 1 gleðja reyndar gamalt hjarta mitt ennþá og súkkulaðið frá degi 3 gladdi erfðaprinsinn, enda var það með bæði hnetum og rúsínum. Þeir sem vita að ég borða ekki hnetur og rúsínur skilja þetta ...
Góða nótt og dreymi ykkur vel.Skrifa athugasemd
-
Átakanlegt bréf frá íslenskri konu í Lagos
2. desember 2008
Ég fékk átakanlegt tölvubréf í dag frá íslenskri konu, Gulaugu Petursdottur. Hún vinnur fórnfúst starf í Suður Afríku, Nígeríu og Ghana og berst gegn menntunarskorti, fátækt, alnæmi og kynþáttahatri. Greinilega góð manneskja. Hún var svo óheppin að gleyma veskinu sínu með m.a. vegabréfi, farseðlum og peningum og kemst hvorki lönd né strönd. Hún hefur reyndar týnt íslenskunni líka en það gæti verið vegna áfallsins, ja, eða lyklaborðsins. Gulaug sendi mér bréfið frá Lagos og hafði bara 30 mínútur til að borga hótelreikninginn, kaupa mat og flugfarseðil heim.
Hún lofar að borga mér til baka ef ég lána henni. Þetta eru ekki nema 2.800 dollarar, eða 418.000 krónur. Held að sú manneskja hljóti að vera hjartalaus sem ekki hjálpar Gulaugu.
Hér er bréfið í heild:
Subject: VERY URGENT
Gulaug Petursdottir [lauga122@hotmail.com]
Hi,
I hope this message finds you in best of health,i am curently out of
town and i am sorry i didn't inform you about my traveling to Africa
for a program called Empowering Youth to Fight Racism, HIV/AIDS,
Poverty and Lack of Education,the program is taking place in three
major countries in Africa which are Ghana,South Africa and Nigeria. It
as been a very sad and bad moment for me, the present condition that I
found myself is very hard for me to explain.I am really stranded in
Nigeria because I forgot my little bag in the Taxi where my money
,flight ticket,passport, and other valuable document were kept on my
way back to the Hotel am staying,I am facing a hard time here because I
have no money on me. I am now owning a hotel bill of $1,600 and they
wanted me to pay the bill soon else they will have to seize my bags,and
hand me over to the Hotel Management.I need you to help me with the
hotel bill and will also need $1,200 to feed and book my flight ticket
back home so please can you help me with the sum of $2,800 to sort out
my problems here? I need this help so much and on time because i am in
a terrible and tight situation here,I don't even have money to feed
myself for a day which means i had been starving, please understand how
urgent i needed your help and i will appreciate your favour.
I am sending you this e-mail from the city lagos and I only have 30
min,Pls i need your help,i understand if you can't help me will all the
money, but i will appreciate whatever amount you're able to send to me,
atleast for me to settle the hotel bill. I promise to refund your money
as soon as i get back home.I await your quick response for me to know
if you are going to help me so that i can mail you the hotel secretary
information were you are to send the money to me via western union
money transfer or money gramm,as i say i will pay you back when i get
back home and also explain how i get into this mess i found myself
in.Thanks
Regards
Gulaug Petursdottir15 athugasemdir
-
Leynivinur, aðdáandi ... eða jólasveinn?
1. desember 2008
Í lok enn eins frábærs vinnudags kom sendill með 10 rauðar rósir handa mér, risastórar og fallegar, sjaldan fengið fallegri rósavönd. „Vá, hvað ég á góðan leynivin,“ sagði ég heit og rjóð við samstarfsfélagana. Kíkti í kortið sem innihélt eitthvað fallegt og var undirritað af JÓLASVEININUM! Nú veit ég ekki hvort ég á svona góðan leynivin, aðdáanda eða hvort einn jólasveinninn er kominn til byggða of snemma.
Fékk far alla leið heim á Skagann með vinkonu sem tók sig til og eldaði ótrúlega góðan mat fyrir okkur erfðaprins, sjálfa sig og tvo örþreytta matargesti sem héldu tónleika hér á Skaganum seinnipartinn. Matseðill: Fylltar kjúklingabringur með lúxusskinku, gráðaosti og piparosti, gratineraðar kartöflur og gufusoðið brokkólí. Kóka kóla með. Góða súkkulaðikakan hennar Maríu í Skrúðgarðinum var í eftirrétt (hún er í kökublaði Vikunnar ... sem er við það að seljast upp).
Ég sagði matargestunum frá dularfullu rósunum sem sögðu strax að það væri greinilega rómantík í spilinu. Ég svaraði því til að þótt ég ynni með fallegustu mönnum landsins þá væru þeir flestir allt of ungir eða þá hamingjusamlega á föstu. Einu sinni var ég skotin í skólastrákum ... svo kennurum og nú eru meira að segja flestir kennarar orðnir of ungir fyrir mig, tíminn líður svo hratt.
Veit ekki hvort leynivinurinn sem ég gef gjafir lesi bloggið mitt og þori ekki að segja neitt. Hann fékk gjöf sem samstarfsmanneskja færði honum frá mér. Vona að hann hafi orðið glaður. Jú, þetta er strákur. Af því að ég vinn heima á morgun bað ég vissa manneskju um að redda því fyrir mig. Látum ekki sjúkraþjálfun skemma leynivinavikuna. Miðað við byrjunina hjá dásamlega leynivininum mínum þá hugsa ég að ég fái utanlandsferð og smyglaðan gjaldeyri frá honum á fimmtudaginn, síðasta dag leynivinavikunnar. Jess!4 athugasemdir
-
Frábær Margrét Pála og the tónlistarmyndband ...
30. nóvember 2008
Var viss um að kvikmyndateymið hefði gleymt mér þar sem það mætti ekki í himnaríki í gær til að taka skot í tónlistarmyndband. Ég var hálffegin að þurfa ekki að standa við þetta og gera mig að fífli, eins og erfðaprinsinn orðaði það. Svo hringdu þeir í gærkvöldi og ég samþykkti að taka á móti þeim á dansskónum eftir hádegi í dag. Strákarnir mættu og féllu samstundis fyrir Tomma, hefðarketti himnaríkis, og Kubbi, einnig hefðarketti, bara svolítið feimnari. Þeir báðu mig um að vera helst ekki í svörtu þannig að ég setti bara litskrúðugan mini-trefil um hálsinn við svörtu fötin til að fá lit. Svo reyndi ég að dansa töff en umfram allt virðulega, lifði mig inn í flott lagið ... þeir hlógu alla vega ekki en töluðu samt um að fótósjoppa mig þegar ég bað um að þeir veldu skot þar sem ég virkaði grönn. (sorrí, ég veit) (Myndin er af teyminu)
Erfðaprinsinn lokaði sig inni í bókaherbergi á meðan og fylgdist með á Netinu leik Þýskalands og Íslands í handbolta. Við sigruðum með eins marks mun. Jafntefli í gær. Jamm, ég hugga mig við að aðeins verður sýnd um það bil sekúnda með okkur Tomma dansandi, ég hugsa að ég þekkist ekki einu sinni.
Er að lesa viðtalsbókina við Margréti Pálu og mikið rosalega er hún skemmtileg og vel skrifuð! Þórunn Hrefna, höfundirinn, fer á kostum ... það skiptir öllu máli hvernig svona bækur eru skrifaðar og húmor er magnað krydd, fer alla vega vel þarna. Vona að mér takist að ljúka við hana í kvöld, las til fjögur sl. nótt.4 athugasemdir
-
Evrópusambandið?
30. nóvember 2008
Lá í símanum í gærkvöldi sem er mjög óvanalegt. Yfirlýsing á blogginu um að
það ætti að B-mennskast um helgina, eða vaka lengi frameftir og sofa út, fékk
næturgeltina mína til að hringja og það fyrir miðnætti. Mikið er ég hissa á því
að þeir hafi haldið að ég færi að sofa fyrir þann tíma um helgar. Aldrei!Rökræddi um stund við vin minn um Evrópusambandið og hugsanlega aðild
okkar að því. Vinurinn skaut í kaf öll jákvæð rök mín í þá veru en ég hef verið
beggja blands upp á síðkastið, horft á gáfað og klárt fólk með Evrópuglampa í
augum, fólk sem ég tek virkilega mark á. Ég skriffaði þetta upp í leikritsformi og eftir minni ... kannski svolítið stíft samtal sem það var ekki í gærkvöldi.Ég: „Hvað með verðtrygginguna? Það yrði nú aldeilis gott að losna við helvítið
og taka upp nýja, stöðuga mynt.“Vinur: „Verðtryggingin dettur ekki sjálfkrafa út, alls ekki, bara kannski. Við
höfum aldrei uppfyllt kröfur Evrópusambandsins um að fá að taka upp evruna,
ekki einu sinni þegar best gekk hjá okkur, og það gætu liðið mörg ár þangað til
það gerðist. Þá væri staða okkar orðin svo góð að það væri fásinna að vera í Evrópsambandinu.“Ég: „Við gætum samið um fiskimiðin okkar, það eru allir svo hræddir um þau.“
Vinur: „Já, en bara tímabundið. Ef við göngum í sambandið munu hagsmunir þess ráða.“
Ég: „Við fengjum fleiri en einn íslenskan fulltrúa sem gætti hagsmuna okkar í
ESB.“Vinur: „Þeir mega ekki gæta hagsmuna eins lands, bara hagsmuna ESB. Fulltrúi Bretlands
í nefndum þar talar t.d. aldrei um Bretland, bara heildina Evrópusambandið, og
það gera önnur lönd innan þess líka.“Ég: „Getur krónan staðið þetta af sér? Það trúir enginn á hana lengur.“
Vinur: „Við gætum t.d. tekið upp dollara á morgun. Þyrftum að kaupa peningana og
eins mikið og við vildum, engin höft þar. Kananum er nákvæmlega sama hverjir
nota dollara. Margar þjóðir hafa tekið upp dollara án nokkurra vandkvæða.
Þótt dollarinn sé óstöðugur núna er hann mun skárri en evran.“Ég: „Ó. Af hverju tala þá allir um inngöngu okkar sem skref inn í gósenland?“
Vinur: „Þegar við
gengum inn í EFTA á sínum tíma hrundi t.d. húsgagnaiðnaðurinn. Það er ástæða
fyrir því að sjávarútvegurinn vill ekki sjá að við förum inn í Evrópusambandið,
ekki heldur bændur, innganga hefði alvarlegar afleiðingar fyrir marga. Lög EES,
sem við höfum tekið upp, gerðu t.d. útrásarvíkingunum auðveldara fyrir, enda er
þetta viðskiptabandalag.“Nú er ég orðin kolrugluð. Hvers vegna vilja svona margir fara inn í Evrópusambandið
ef það er ekki betra en þetta? Endilega, ef þið hafið rök fyrir hinu gagnstæða,
skellið inn kommenti. Þetta er svo stórt mál, mig langar virkilega til að vita sem mest um það.5 athugasemdir


















