-
Lúmskur leynivinur Illuga ...
14. desember 2008
Á föstudaginn í öllum önnunum minntist ég hógværlega á lag sem ég hef ekki heyrt síðan 1986, sagði ritstjóranum mínum að ég hefði leitað að því á youtube, radioblogclub.com og víðar en án árangurs. Ég kann ekkert á tonlist.is, fékk þriggja daga aðgang þar einu sinni og gat ekki hlustað á eitt lag ... ussss, held að ég hafi örugglega leitað að laginu þar en ekki fundið. Einstaklega yndislegur maður, sem vinnur á næsta langborði, heyrði til mín þótt ég talaði ekki mjög hátt, svo fáir eftir í vinnunni og ró og friður, og sagðist eiga þetta lag ... svo héldum við bara áfram að vinna. U.þ.b. klukkutíma seinna kom hann með geisladisk handa mér og hafði sett þetta lag á hann. Það er til svona fólk, í alvöru! Ég setti lagið á í tölvunni, bara lágt, og minningarnar hrísluðust um mig. Star Wars, leiðtogafundurinn, dýrðin, Rás 2, djammið á Óðali (þegar karlar voru safaríkasta kjötið þar) ...
Jú, þetta lag heitir LA LÍF og hefur ekki versnað um nótu síðan ég heyrði það síðast. Vildi að ég gæti leyft ykkur að njóta þess með mér en ég er engin græjukerling, svo gæti það verið ólöglegt vegna stefgjalda. Hef bara hlustað á það fimm sinnum í dag og alltaf með sama sælubrosið á vör. Algjör óþarfi að reyna að hlusta á textann því ekkert þar truflar mann frá fallegu laginu ...a úfe, la líf a fai dei, aðe rað ka úú fe ú fe ú rata mí ne. Eitt allra fallegasta lagið sem kom út á Íslandi á níuanda áratug síðustu aldar! Í flutningi Smartbandsins. Svanur, ég elska þig! Mikið er ég fegin að þú fékkst góðan leynivin (Ernu) sem saumaði nafnið þitt á ullarsokka einn daginn, skreytti piparkökur með nafninu þínu og fleira ...
Held að ég hafi ekki verið búin að segja frá mínum leynivini ... þeim sem ég dró út. Það var enginn annar en Illugi Jökulsson sem vinnur í hinum enda hússins við Hálsaskóg. Ég reyndi að kæfa hann í gæsku og fór m.a. tvo morgna með árrisulli vinkonu í Kaffitár í Bankastræti og keypti eitthvað gómsætt handa honum, ekki kaffi þó, það hefði verið orðið ískalt kl. 9. Hina morgnana smurði ég rúnnstykki í mötuneytinu, fékk plastfilmu til að setja yfir og morgunverðurinn beið hans þegar hann kom. Hann stóð mig að verki næstsíðasta morguninn. Ég var að paufast við þetta í myrkrinu og þess vegna sá hann ekki skelfingarsvipinn á mér og mér gáfust örfáar sekúndur til að fara í lúmska gírinn. Þegar hann var búinn að kveikja sá hann sallarólega samstarfskonu, ekki einu sinni vandræðalega og rjóða, bara kúl ... Ég sagði: Ja, svona er þetta, maður er í þessu á fullu núna, að færa fólki eitthvað frá leynivinunum. Svo hló ég glettnislega og kastaði höfðinu fram og aftur þannig að hárið sveiflaðist. Eitthvað fannst mér Illugi tortrygginn á svip þannig að ég kastaði höfðinu til aftur. Held að það hafi dugað. Hann fékk fleira en morgunmat ... og missti algjörlega af einni strærstu gjöfinni án þess að fatta það. Mjög góður plokkfiskur var í matinn í mötuneytinu á miðvikudeginum og ég sagði við elskulegu stelpuna sem vinnur/vann þar að ef Illugi fengi sér eitthvað að borða yrði það á reikning leynivinarins, eða mín, og hún yrði að vera mjög dularfull. Svo kom Illugi ekkert í mat þann daginn. Já, ég var mjög lúmskur leynivinur ... Illugi hefði samt mátt gera sér upp meiri undrun við afhjúpun leynivinanna.
Myndina tók ég af krumma á leið minni í bókasafnið í gærmorgun. Hann krunkaði ekki, heldur sagði ó, ó ... vona að það viti ekki á slæmt.5 athugasemdir
-
Fínn fundur og ýmsar spurningar
14. desember 2008
Amnesty-bréfamaraþonið gekk einstaklega vel á bókasafninu. Kortin sem Amnesty hafði sent á Skagann kláruðust rétt fyrir kl. 14. Flottir Skagamenn. Hreifst einstaklega mikið af hjónum sem komu með börnum sínum sérferð vegna herferðarinnar, útskýrðu hvert kort/málefni vandlega fyrir krökkunum og allir fjölskyldumeðlimir nema sá allra yngsti skrifuðu nöfn sín á fjögur mismunandi kort hvert. Aðrir bókasafnsgestir voru svipað dásamlegir. Trú mín á mannkynið jókst helling við þetta.
Myndin var tekin á leiðinni á bókasafnið undir kl. 11 í gærmorgun í dásamlegu jólaveðri. Tunglið eins og flott jólaskraut.
Svo var það fundurinn í Skrúðgarðinum. Skömmu fyrir þrjú hélt ég að við yrðum bara tveir strætófarþegar með Gísla bæjarstjóra og Karen, formanni bæjarráðs, en svo fylltist allt í einni svipan. Sigþóra settist á móti mér og var með góða kveðju frá Tomma, elsku fyrrum strætóbílstjóra. Hef ekki rekist á Tomma mánuðum saman. En áfram með fundinn ... Ég hef aldrei farið leynt með hrifningu mína á Gísla og það kom mér ekkert á óvart að hann skyldi mæta og það með bros á vör. Þau Karen upplýstu okkur um stöðu mála.
Halda átti fund um málið fljótlega en þar sem farþegar voru orðnir hræddir og reiðir eftir að hækkunin spurðist út flýtti það því að við fengjum upplýsingarnar. Akraneskaupstaður hefur setið við samningaborðið um þetta í einhverja mánuði við Strætó bs án mikils árangurs, skildist okkur, en Gísli og Karen segja að þetta verði ekki svona hræðilegt eins og það leit út. Að öllu óbreyttu þurfum við að borga tvöfalt gjald, ekki þrefalt. Hækkun upp á 100% er gríðarleg en 200% skelfileg (þegar ég fékk 300% hækkun út úr þessu hugsaði ég þetta sem 280 kr. sinnum 300% sem gerir 840 kr. Hækkunin er UM 200% ... en hva ... smá hugsanavilla)
Bloggvinkona mín af mbl.is, Vera Knútsdóttir, stjórnmálafræðingur og snillingur, var á fundinum og strax eftir hann fórum við í himnaríki og skrifuðum við bæjarstjórn bréf með þökk fyrir fundinn ... EN ... við bentum á nokkra alvarlega hnökra á hinum nýja Vesturlandsstrætó (nr. 57) sem verður að laga áður en skrifað er undir og koma þeim upplýsingum til Strætó bs. Megnið af því kom fram á fundinum, sumt frá Gísla og Karen, annað frá farþegum. Skrifuðum einnig bréf til stjórnar eigenda Strætó bs.
Það á t.d. að hætta með sérleiðina Akureyri-Reykjavík og breyta henni í Akureyri-Borgarnes. Farþegar að norðan þurfa að taka strætó frá Borgarnesi, skipta í Mosó og gaman, gaman nema endastöðin verði í Ártúni í Reykjavík, það yrði strax skárra.
Er hægt að ætlast til þess af strætóbílstjóra sem á að halda stífri áætlun að taka við öllum þeim farangri sem t.d. ferðamenn á sumrin flækjast með á ferðum sínum? Ég hef mjög oft farið með Norðurleið sem er iðulega stútfull af farþegum með heilmikinn farangur. Krakkar á leið í eða úr sveit, ferðamenn með bakpoka og hjól ... Þetta útrýmir kannski hvimleiðum farangri og fólk fer að ferðast létt eins og ég lærði þegar ég fór í Evrópusöngferð með Kór Langholtskirkju og var með þrjár ferðatöskur og bara tvær hendur. Eyðilagði næstum fyrir mér ferðina, hef ekki tölu á þeim hótelum sem við gistum á í Austurríki, Ítalíu og Þýskalandi ... en áfram með smjörið!
Hvað ef strætó fyllist af fólki í Borgarnesi og ekki verður pláss fyrir Skagamenn til Reykjavíkur? Það getur enginn giskað á hversu margir Borgfirðingar eiga eftir að notfæra sér þessa þjónustu. Þetta eru ekki bara Borgnesingar, heldur fólk víðar úr Borgarfirði sem verða með í þessu. Farþegafjöldi jókst jafnt og þétt á Skaganum og eina rútan sem flutti okkur með fyrstu morgunferð hérna fyrst er orðin að tveimur fullum rútum.
Og annað. Ef veður gerast válynd (nokkuð algengt á Íslandi) og vindhviður fara yfir 32-34 m/sek undir Hafnarfjalli verða þá Skagamenn veðurtepptir þótt fært sé á Kjalarnesi? Enginn bíll (eða bílstjóri) yrði staðsettur á Akranesi sem hægt væri að grípa til í slíkum tilfellum. Það er hægt að komast leiðina frá Borgarnesi með einkabíl þótt hviður fari upp í rúmlega 40 m/sek en strætó myndi bara fjúka út af.
Það var enginn búinn að pæla í þessum atriðum, enda held ég að starfsmenn ráðgjafafyrirtækja, sem búa til svona áætlanir, taki allajafna ekki strætó daglega, vita kannski lítið um aðstæður. Málin hafa ekki verið hugsuð til enda. En að biðja ekki nokkra farþega um álit áður en vaðið er út í svona breytingar! Með fullri virðingu fyrir rándýrum ráðgjafafyrirtækjum.
Ekki var heldur búið að athuga okkar megin frá hvort innanbæjarstrætó yrði ekki bara virkjaður til að safna saman þeim fjölda farþega sem búa á neðri Skaga og skutla þeim á einhverja af þeim stoppistöðvum í útjaðri bæjarins sem verða í gangi. Það myndi leysa stóra stoppistöðvamálið! Það er ekki ásættanlegt að stór hluti farþega þurfi að ganga í hálftíma eða lengur til að komast í strætó. Þá fer fólk frekar á einkabílnum í bæinn eða leggur í stríðum straumum við íþróttamiðstöðina þar sem stoppistöð er, og tekur stæði frá íþróttaiðkendum. Ekki vinsælt.
Vera benti mér á eftir fundinn að við farþegar munum einir bera kostnað af hækkuninni. Bæjarstjórn leggur sömu fjárhæð í strætó og undanfarin þrjú ár en sú breyting verður þó á að hún fær andvirði þeirra strætókorta (á tvöföldu verði) sem við kaupum ... áður fór sá peningur í kassann hjá þeim í Reykjavík. Einungis kortin verða niðurgreidd þannig að ef við erum með strætómiða verðum við að borga þrjá í stað tveggja. Slæmt fyrir fólk sem vinnur í bænum einn til tvo daga í viku og kortakaup borga sig ekki. Hræðilegt fyrir Reykvíkinga sem ætla að skreppa í heimsókn á Skagann ... eða unga manninn í Mosó sem Vera þekkir og stundar nám við Fjölbrautaskólann á Akranesi.
Svo er furðulegt að Grundahverfið á Kjalarnesi muni tilheyra svæði 1 en við verðum í svæði 3, ekkert svæði 2 verður til í útfærslu Strætó bs. Ef við hefðum lent í svæði 2 hefði þessi sama niðurgreiðsla Akranesbæjar séð til þess að við borguðum það sama og áður. Frekar fúlt.
Níu mánaða kortin, sem kosta eftir hækkun 60 þúsund ... bærinn ætlar að útfæra það þannig að farþegar geti greitt fyrir þau í þrennu lagi sem er glæsilegt, greinilega skilningur á því að venjulegt fólk getur ekki borgað 60 þúsund út á einu bretti.
Jæja, farin að sofa ... þó fyrr hefði verið. Óska ykkur góðrar nætur, nær og fjær til sjávar og sveita. Lofa gríðarlegum bold-dugnaði í næstu viku. Á föstudaginn byrjar jólafrí og þá verður sko fjör, þrif og læti, mikið blogg og blæti.7 athugasemdir
-
Mikil leynd - mikill hraði
12. desember 2008
Það er ekkert um „stóra strætómálið“ á vef Strætó bs og heldur ekki á vefnum www.akranes.is. Sá þó beinagrind af fundargerð þar sem kom fram að VSÓ ráðgjafar skiluðu af sér kostnaðarmati og -skiptingu á akstri núna 1. des. sl. Taka á málið fyrir 15. des. nk. og stefnt að því að samþykkja það. Hvers vegna þessi hraði? Hvers vegna þessi leynd yfir svona mikilvægu máli sem kemur illa við svo marga bæjarbúa? Svo á þetta að taka gildi um áramótin, eða eftir aðeins hálfan mánuð. Það eru bæjarritari (Jón Pálmi) og formaður bæjarráðs (?) sem eiga að ganga til samninga um málið, skv. samþykkt bæjarráðs á fundi 3. des. sl.
Ég frétti frá Borgnesingi í dag að sumir þar væri mjög svekktir yfir þessu, núverandi sérleyfishafi á Vesturlandi hefur víst verið frábær og nú kvíða margir þeim óþægindum sem hefjast um áramót þegar Teitur tekur við leyfinu. Nú er það ekki t.d. Hyrnan - BSÍ, hviss bang, heldur munu ferðirnar taka miklu lengri tíma, viðkoma á Akranesi, skipt um vagn í Mosó og jafnvel aftur í Ártúni og fyrir ekki meiri lækkun en þetta.
Það er allt í lagi að taka upp svæðaskiptingar í almenningssamgöngum en strætófargjöld í Reykjavík eru há og því afar ósanngjarnt að nota þau sem viðmið/grunn og margfalda þau til að fá verð fyrir okkur sem búum fjær. Ef grunngjaldið væri um helmingi minna, t.d. 150 krónur, horfði málið allt öðruvísi við. Yfirleitt er það efnaminna fólk sem tekur strætó, er það rétti hópurinn til að demba hækkunum á?
Strætóverkefnið á Skaganum, sem hefur staðið í þrjú ár nú um áramót, er afar vel heppnað, tókst framar öllum vonum og fjöldi farþega varð víst miklu meiri en búist hafði verið við. Það er hreinlega vanhugsað að eyðileggja þetta með fækkun stoppistöðva og 300% hækkun á fargjaldi, ekki 200% eins og stendur á www.skessuhorn.is. Ég spái því að ef af þessu verður, muni farþegum fækka svo mikið að fljótlega taki því ekki að
hafa níu ferðir á dag, eins og er núna, og smám saman lognist þetta út af í núverandi mynd. Það verði hálftómir vagnar á þriggja tíma fresti í mikilli einkabílaumferð. Slysum fjölgar, slit á Vesturlandsvegi eykst og það verður lítið fé eftir til að eyða í Einarsbúð, Nínu, Módel og fl.
Það verður ljótur minnisvarði um þessa annars ágætu bæjarstjórn ef þetta gengur eftir.
Mér skilst núna að stoppistöðin mín við Garðabraut detti ekki út, „BARA“ Skrúðgarðsstoppistöðin, sú sem hefur þjónað fólkinu á neðri Skaga og sú á Stillholtshorninu við umferðarljósin. Þetta þýðir langt labb fyrir marga, eflaust helming farþega, alveg upp í hálftíma í öllum veðrum og það er óásættanlegt. Það þarf að halda tímaáætlun, segir bæjarritari á www.skessuhorn.is. Það ætti að vera hægt að breyta tímaáætlunum þannig að þær henti farþegum!
Ég vildi að bæjarstjórnendur hér settu sig í spor okkar farþega og reyndu að skilja hvað þessar breytingar hafa mikla, úps, enn meiri skerðingu á lífsgæðum í för með sér en orðið hefur í kreppunni.
Ef þetta verður að veruleika, sem allt bendir til, mun ég íhuga alvarlega að flytja héðan þótt það sé alveg frábært að búa hér, mig munar mjög mikið um alla hækkun. Það munar auðvitað ekki um eina manneskju sem flytur héðan en ég yrði sannarlega ekki sú eina. Ég hefði aldrei flutt hingað 2006 nema bara vegna tilkomu strætó og nú líður mér eins og ég sé að lenda í gildru.
Einhvern veginn var þetta það síðasta sem mér datt í hug að myndi gerast. Húsnæðislánið mitt er á leið í hæstu hæðir, matarverð er klikkað og mun hækka enn meira en þó hægt að stjórna því hvað maður kaupir, pasta í stað kjúklinga og slíkt. Í sambandi við fargjaldahækkunina er ekkert hægt að gera ... heyrði reyndar konu segja í strætó í dag að hún yrði mjög líklega að hætta að vinna í bænum ef þetta verður að veruleika og fara á atvinnuleysisbætur, það kæmi svipað út fjárhagslega fyrir hana og hún gæti þá verið meira með börnunum sínum. Hún sagðist efast um að hún fengi yfirdráttarheimild til að kaupa 9 mánaða kort á rúmlega 60.000 krónur sem er hagstæðast. Síðan borga heimildina niður og um leið reyna að safna fyrir næsta korti. Held að þeir sem stjórna málum geri sér ekki alveg grein, frekar en Pétur Blöndal, fyrir því hvað láglaunafólk hefur lítið fé á milli handanna þótt það lifi spart. Það er dýrt að vera fátækur, eins og flestir vita, geta aldrei gert góð kaup á t.d. kjötútsölu, tekið slátur og slíkt af því að ekki er til peningur fyrir frystikistu. Ég lifði í sárustu fátækt í mörg ár og veit hvað ég er að tala um.
Ætla að mæta á fundinn í Skrúðgarðinum á morgun, laugardag kl. 15. Ég vona að sem flestir farþegar komi og að við fáum almennileg svör frá þeim bæjarfulltrúum sem mæta. Trúi ekki að þeir séu búnir að gleyma því að þeir voru kjörnir til að standa vörð um hag okkar.
Hér er hlekkur í Skessuhorn:http://www.skessuhorn.is/Default.asp?sid_id=24845&tId=99&Tre_Rod=001|002|&fre_id=80662&meira=1
Viðbót: Hér er athyglisvert komment frá konu sem hún skrifaði við færslu hér neðar fyrr í kvöld:
Dísa B
Þegar ég flutt
hingað á Skagann, var mér sagt að Vesturgatan væri ein af lengstu íbúagötum á
landinu. En að ég þyrfti að gang rúmlega þá leið á morgnana til að komast í
strætó datt mér aldrei til hugar. Hvað tekur það eiginlega langan tíma að ganga
hana á enda? Mér verður nú bara hugsað til nætursvefnsins, hvað þarf ég að
stytta hann mikið til að komast í tæka tíð í strætó? Kannski ætti ég að bjóða
honum Jóni Pálma með mér í göngutúr á hverjum morgni svo hann gæti útskýrt
fyrir hvað máli það skipti mig, hvort stoppistövarnar séu 4 eða 6. Hann þarf
örugglega að ganga með mér marga morgna og taka á móti mér þegar ég kem úr
bænum seinni partinn, til að sannfæra mig um hvernig þetta tengist því „EFLA
GAGNKVÆMA ÞJÓNUSTU“. Nei takk, ég mun hætt að taka strætó um áramótin.
Peningarnir sem sparast að taka strætó eru ekki þess virð. Ég borða frekar
pasta nokkra daga í viku. Erum við Íslendingar ekki frábærir, við státum af því
að vera með frábært land, hreint og fagurt. Hve lengi verður það þegar ríkis-
og sveitastjórnir hafa eigan skilning á ágæti almenningssamgangna. Hve miki
eykst útblástur bifreiða og hve mikið eyskt slysahættan þegar flestir þeir sem
nota sér þessa þjónustu fara að keyra til Reykjavíkur. JÁ ÉG ER LÍKA BRJÁLUÐ!!!5 athugasemdir
-
Amnesty kl. 11 og strætófundur kl. 15
12. desember 2008
Fyrir nokkrum mánuðum hætti frábær manneskja að vinna hér á Vikunni, tók einhver mannréttindi fram yfir snyrtivörur og tísku, eins og ég hef áður sagt frá, og svo hrakti ég hana líka í burtu af því að hún var með sömu hringingu á gemsanum sínum og ég, eða gamaldags ring, ring ... mjög ruglandi.
Vegna hálfgerðs samviskubits geri ég alltaf allt fyrir þessa manneskju og þegar hún bað mig um að sitja á stól við borð á Bókasafni Akraness kl. 11-14 á morgun, laugardag, og aðstoða fólk í bréfamaraþoni Amnesty sagði ég auðvitað já. Vonandi láta sem flestir Skagamenn sjá sig. Það þarf ekkert að gera nema skrifa nafnið sitt undir kort sem eru tilbúin og verða svo sett í póst af Amnesty. Bara koma, láta gott af sér leiða og halda svo áfram að undirbúa jólin. Ég tek líka við bónorðum ...
JÁ, SVO ER FUNDUR Í SKRÚÐGARÐINUM kl. 15 á morgun, laugardag, þar sem stóra strætómálið verður tekið fyrir. Þar getum við almenningur látið skoðanir okkar í ljós og mótmælt þessarri aðför að almenningi. Ég vil ekki láta hrekja mig frá Akranesi, frábært að búa hér. Held að bæjarstjórnin, sem var kosin til að bera hag okkar bæjarbúa fyrir brjósti, láti þetta ekki gerast!
P.s. Nýi blaðamaðurinn sem kom í stað Bryndísar er líka með Ring Ring-gemsahringinguna mína ... hvað á ég að gera?
P.s. II Óskahorn: ... plís vonandi kemst ég með 18.45 strætó, plís ... næsta ferð kl. 20.45. plís, plís ... (þetta er óskahorn Guðríðar)9 athugasemdir
-
Dauðadómur yfir Skagastrætó
11. desember 2008
Það ríkir bæði reiði og vonleysi hjá þeim strætófarþegum, Akranes-Reykjavík, sem ég hef talað við í dag og heyrt af frá Sigþóru. Væntanleg þreföld hækkun á strætófargjaldi og afar skert stoppistöðvaþjónusta vekur miklar áhyggjur hjá fólki.
Þetta virðist skv. fréttum vera gert til að geta tekið Borgnesinga inn í batteríið en þeir þurfa að borga enn meira en við, eða fjórfalt gjald, rúmlega 1.100 krónur fyrir staka ferð, rútufar kostar 1.900 kr. Ekki mikil lækkun, örugglega ekki sú sem þeir vonuðust eftir, og svo verður þetta langt ferðalag ef þeir þurfa að hossast með á Skagann á leið sinni í bæinn. Ég hélt í sakleysi mínu að sérbíll kæmi með þá að Hvalfjarðargöngum og þar kæmu þeir um borð í vagninn okkar en svo virðist ekki eiga að vera.
Mér skilst að strætó muni bruna inn á Akranes frá Borgarnesi og taka farþega hér upp í snarhasti við bensínstöð á
þjóðveginum á leiðinni inn á Skagann, næst við aðra stoppistöð rétt hjá stóra
hringtorginu, síðan við íþróttahúsið og síðast við
sætukarlastoppistöðina við endann á Innnesvegi. Stoppistöðin við Dvalarheimilið Höfða dettur út, einnig stoppistöðin mín á Garðabraut og þessar tvær á
Kirkjubrautinni; hjá Skrúðgarðinum og við hornið á Háholti. Bara hræðilegt.
Ásta mun ekki lengur geta látið ömmustelpuna koma með strætó frá Reykjavík að Skrúðgarðinum. Hún þarf að fara á bílnum og sækja hana á bensínstöð í útjaðri bæjarins, svona eins og þegar Sæmundur sá um rútuferðirnar og í upphafi strætósamgangnanna þegar endastöðin var Skútan. Skrúðgarðurinn er eina kaffihúsið okkar og upplýsingamiðstöð að auki. Við vorum loksins farin að fá ferðamenn, erlenda og innlenda, sem sáust sjaldan á Skaganum áður en Skagastrætó hóf akstur og Skrúðgarðurinn hefur leikið stórt hlutverk fyrir ferðamennina.
Þetta mun drepa niður afar vel uppbyggt kerfi sem hefur verið Akraneskaupstað til mikils sóma. Þetta hefur verið mjög vistvænt; sparað bensín, eyðslu á þjóðvegi og minnkað mengun, og hvað þá peninga! Yfir 100 manns í tveimur strætisvögnum bara í fyrstu ferð á morgnana. Já, það þarf aukabíl í fyrstu ferð. Elskan hann Heimir keyrir hann.
Hækkunin mun örugglega ekki skila sér til bæjarins, þetta verður dauðadómur yfir Skagastrætó, það er alveg pottþétt! Fólk er þegar byrjað að skipuleggja ferðir með einkabílum, vill frekar borga svipað eða jafnvel minna en kostar í strætó, og komast upp að dyrum í vinnunni í Reykjavík.
Bláa kortið kostar 30.500 og gildir í níu mánuði fyrir Reykvíkinga. Það yrði ódýrast fyrir Skagamenn að kaupa það en á tvöföldu verði, 60.100 kr.. Það er dágóð upphæð fyrir venjulegt fólk að reiða fram. Það er dýrt að vera fátækur, það vita flestir.
Mánaðarkort í strætó kostar 5.700 fyrir Reykvíkinga og fyrir Skagamenn verður það 17.100 krónur, 22.800 fyrir Borgnesinga. Ég bað að gamni um launahækkun í dag til að mæta þessu, auðvitað í gamni, enginn fær launahækkun á svona erfiðum tímum.
Segjum svo að vinkona mín ætli að heimsækja mig á Skagann og kjósi að taka strætó til að spara. Hún býr í Vesturbænum og getur tekið leið 15 þaðan í Mosfellsbæ, sem er á svæði 2 ef ég skil þetta rétt (gæti þó verið Kjalarnes sem er á svæði 2). Það myndi kosta hana 560 krónur (eða 280). Síðan skiptir hún, fer með leið 27 upp á Skaga og borgar fyrir það 840 krónur. Það gera 1.400 krónur AÐRA leiðina. Áður 280 krónur. Það yrði aldrei ódýrara en 1.120 krónur aðra leið.
Það sem lokkaði mig upp á Akranes á sínum tíma var tilkoma strætó, frábært framtak hjá bæjarstjórninni, kom bænum á kortið og fékk örugglega fleiri en mig til að flytja hingað á gömlu, yndislegu æskustöðvarnar. Ég borga útsvar hér og kaupi að auki alla þjónustu í heimabyggð (nema tannlækni).
Enn er hægt að mótmæla þessum gjörningi, veit bara ekki hvernig, verst að þetta verður tekið fyrir á fundi á mánudaginn og þá mögulega samþykkt sem bara má ekki verða. Við höfum bara einn virkan dag, eða morgundaginn, til að mótmæla en þá eru farþegarnir í vinnu sinni í Reykjavík, eins á mánudaginn.
Sigþóra sagði mér að Sveinn Kristinsson hjá Samfylkingunni hefði haldið uppi mótmælum á þessum eina bæjarstjórnarfundi þar sem þetta var rætt. Ég hef reyndar verið virkilega hrifin af bæjarstjórninni okkar, enda margt frábært sem hún hefur gert. Verst ef hún mun hafa á samviskunni að skemma Skagastrætó. Það gæti tekið langan tíma að byggja kerfið upp aftur ef þessu verður síðan snúið við.
Bæjarstjórinn okkar sagði í viðtali að eitthvað yrði gert til að koma á móts við skólafólkið. Hvað með Skagamenn sem fá ekki vinnu hér í heimabyggð? Þetta er ekkert annað en gífurleg skattahækkun.
Mikið vona ég að þetta verði endurskoðað og hreinlega hætt við þetta. Þessi skipulagsbreyting kemur sér afar illa fyrir hundruðir Skagamanna, nei, nei, miklu fleiri af því að farþegarnir (námsmenn, fyrirvinnur) eiga fjölskyldur hér. Bæði ósanngjörn hækkunin og breyting á stoppistöðvum sem á án efa eftir að draga allverulega úr fólki, sérstaklega á Neðri Skaga, að nenna að labba í öllum veðrum, jafnvel í hálftíma til að komast í fokdýran strætó sem fer ekki einu sinni alla leið í vinnuna/skólann. Þá er þægilegra að setjast upp í fokdýran einkabíl.
Núna, þegar almenningur þarf að spara sem aldrei fyrr, þá er sárt að horfa upp á svona rústun. Áhugavert væri að fá ástæðuna fyrir þessu og hvort ekki sé hægt að skera niður annars staðar.
Ég er enn að hugsa hvernig bæjarstjórnin fer að því að tala um bætta þjónustu í þessu samhengi, eins og kom fram í Skessuhorni, við farþegar sjáum bara gríðarlega skerðingu og heldur betur óvænta.11 athugasemdir


















