-
Pínkuoggu-jólatilhlökkun
19. desember 2008
Mikið var gaman að koma heim í gærkvöldi og hitta nýjustu viðbótina við fjölskylduna ... í nokkra daga. Við erum að passa litla tík sem heitir Aska og fullvaxin er hún talsvert minni en kattabreddur himnaríkis. Tommi og Kubbur reyna að ganga virðulega um híbýlin en það er erfitt þegar tryllingslega fjörug tík reynir stöðugt að æsa þau upp í leik. Kubbsu er frekar illa við hana en Tommi umber hana með stóískri ró. Erfðaprinsinn skrapp í göngutúr með Ösku í gærkvöldi sem gekk ágætlega þótt við kunnum ekkert á verulega flókið hálsólardæmið hennar. Okkur tókst þó að klæða hana í hlýju úlpuna. Það er heilmikill leikur í Tomma (11 að verða) en líklega fyrir neðan hans virðingu að leika sér við smáhund. Mér finnst þetta ógurlega gaman, held að ég fari alveg að verða nógu þroskuð til að verða amma.
Síðasta blað ársins fór í prentun í gærkvöldi og ég sit heima núna og klára verkefni í 1. tölublað 2009. Það var fáránlega gott að sofa út í morgun, næstum til hádegis. Þarf líklega að mæta einn dag fyrir jól og svo er það bara langþráð frí. Við höfum unnið rosalega mikið til að ná því að fá gott frí um jólin og flest kvöld undanfarið hafa farið í setu fyrir framan tölvuna heima. Alveg þess virði. Frábært að geta séð sjóinn minn í dagsbirtu, ekki bara heyrt í honum. Er ekki frá því að smávægileg, en bara pínulítil, tilhlökkun til jólanna sé farin að gera vart við sig. Himnaríki fær góða Ajax-yfirhalningu en ekki meira en það, hér verða engir skápar teknir í gegn, bara gert hreint og kannski pínku jólaskraut sett upp. Vinnan mín sá um jólamatinn. Starfsfólkið fékk hangikjöt og hamborgarhrygg, ásamt bokku, já, ég segi bokku ... af sælgæti. Þetta er plastflaska, eins og kampavínsflaska í laginu með sælgætismolum í. Afar höfðingleg gjöf og mun koma sér vel.2 athugasemdir
-
Dónar í stjórn Strætó bs?
18. desember 2008
Karlarnir í strætó töluðu um nýjasta nýtt í strætó í morgun eða þá „arfasnjöllu“ hugmynd að þegar farþegar koma úr vinnunni seinnipartinn, frá Reykjavík til Akraness, þá verði bara stoppað á einni stoppistöð á Skaganum, Essónesti við þjóðveginn. Held að umhverfið þar sé bara bílvænt, man ekki ekki að hafa séð gangstéttar þarna. Þá lenda 90% farþega í því að langt verði að labba heim, ekki bara 50% eftir að stoppistöðvunum á Kirkjubraut verður kálað.
Strætó bs virðist dúlla sér þessa dagana við að reyna að skemma strætókerfið fyrir okkur landsbyggðartúttunum. Enginn farþegi fékk ráðrúm til að mótmæla eða koma með hugmyndir til útbóta vegna leyndarinnar við verkefnið. Hver hefur meira vit á þjónustunni en sá sem notfærir sér hana?
Við Vera Knútsdóttir sendum stjórn Strætó bs kurteislegt bréf (tölvupóst) sl. laugardag þar sem við bentum á annmarka við nýja kerfið og einhverjar leiðir til úrbóta. Þeir sem fengu bréfið voru Jórunn Frímannsdóttir (Reykjavík), Gunnsteinn Sigurðsson (Kópavogi), Ellý Erlingsdóttir (Hafnarfirði), Ragnhildur I Guðbjartsdóttir (Garðabæ), Hafsteinn Pálsson (Mosfellsbæ), Sigrún Edda Jónsdóttir (Seltjarnarnesi) og Kristján Sveinbjörnsson (Álftanesi).
Hér að neðan er bréfið. Ekkert af ofantöldu fólki hefur sýnt þá sjálfsögðu kurteisi að svara okkur. (Við sendum einnig bréf til bæjarstjórnar Akraness um málið sama dag og fengum um hæl hlýleg svör frá Rún Halldórsdóttur og Eydísi Aðalbjörnsdóttur. Bestu þakkir fyrir það.)Til Strætó
bsAkranesi,
13. desember 2008Efni: Væntanlegar breytingar á leið 27.
Kæra stjórn Strætó bs.
Eftir fund í dag með bæjarstjóra og formanni bæjarráðs Akraness í dag
langar okkur að koma eftirfarandi á framfæri og spyrja nokkurra spurninga.Við teljum afar ósanngjarnt að staðsetja Akranes á svæði 3, sérstaklega með
tilliti til vegalengdar. Bendum á að Grundahverfi á Kjalarnesi fellur undir
svæði 1 og því sjálfgefið að Akranes falli undir svæði 2.Við biðjum um ítarlega rökstudd svör við því hvers vegna þetta var ákveðið
því að þreföld hækkun fargjalda hefur mikil og slæm áhrif á bæjarfélagið okkar
og þá íbúa þess sem nýta þjónustuna. Einnig viljum við benda á að það eru ekki
eingöngu Skagamenn sem nýta þessa leið, einnig sækja íbúar á höfuðborgarsvæðinu
hingað í vinnu og skóla þótt í minna mæli sé.Við teljum að fyrirhugaðar breytingar hafi ekki verið ítarlega ígrundaðar
því við sjáum strax marga hnökra á þeim.Hafa verður í huga að ef ófært verður undir Hafnarfjalli, eins og oft er, munu hundruðir Skagamanna verða veðurtepptir af
þeim sökum þótt færð sé góð á Kjalarnesi. Hér á Akranesi verður enginn vagn
staðsettur eftir að nýja kerfið tekur gildi um áramót. Með fyrstu ferð, kl.
6.41, á morgnana fara rúmlega 100 Akurnesingar, eða á tveimur rútum. Vegna
eðlis þessarra ferða, eða að allir þurfi að vera í sæti á þjóðveginum, mega
ekki margir Borgfirðingar bætast við til að kerfið springi.Einnig álítum við að Strætó bs sé ekki aðilinn til að ákvarða hvar
strætóstoppistöðvar verði staðsettar á Vesturlandi því með fyrirhuguðum
breytingum þarf meira en helmingur farþega á Akranesi að ganga langar leiðir í
öllum veðrum til að komast á stoppistöð. Stoppistöðvar verða í útjaðri bæjarins
og geta því bara þjónustað um þriðjung Skagamanna á sanngjarnan máta.Mun hagkvæmara yrði einnig fyrir alla farþega ef Háholt í Mosfellsbæ yrði hefðbundin
stoppistöð og Ártún endastöð.Væri hægt að fá að vita hvað það kosti Skagamenn að komast til Borgarness?
Borgum við 280 krónur úr svæði 3 í svæði
4 eða helmingi meira?Við teljum afar áríðandi að almennar rútusamgöngur á milli Norðurlands og
Reykjavíkur haldist óbreyttar. Það er vanhugsað að halda að strætókerfið geti
annað þeim farþegum sem koma að norðan með kannski mikinn farangur og jafnvel
reiðhjól eins og iðulega yfir sumartímann, og erfitt að giska á fjölda þeirra
hverju sinni. Hvað gerist ef strætó fyllist í Borgarnesi, fá Skagamenn þá enga
þjónustu?Á sumrin er Norðurleið yfirleitt stútfull af íslenskum og erlendum
ferðamönnum og það hlýtur að flækja
ferðalagið til mikilla muna og auka óþægindi þeirra, svo ekki sé talað um þann
tíma sem tekur strætóbílstjórann að fara í starf rútubílstjóra og koma farangri
og reiðhjólum fyrir.Það er þjóðhagslega hagkvæmt og umhverfisvænt að almenningssamgöngur séu
góðar. Á þessum erfiðu tímum þegar fjöldi fólks tekur á sig launalækkun eða missir
vinnuna getur það ekki rekið bíl og mun því þurfa að treysta á strætó. Því
skýtur það skökku við að hækka fargjöld og skerða þjónustu.Við viljum líka benda á að almenningssamgöngur ættu aldrei að vera
gróðafyrirtæki, heldur sjálfsögð þjónusta á sanngjörnu verði. Á móti kemur að
útblástursmengun og svifryk minnkar með minni bílaumferð og slit á vegum minnkar
með öflugum almenningssamgöngum.Okkur þótti leitt að heyra á fundinum í dag að áður jákvæð afstaða Strætó
bs til Skagastrætó hefði snúist svona gjörsamlega við frá því strætósamgöngur
hófust á Skagann.Við teljum það vera afar óhagkvæma og óumhverfisvæna lausn að hækka
fargjöld og mismuna farþegum enn frekar vegna búsetu.Við óskum eftir því að fá að vita hvaða kosti Akraneskaupstað var boðið upp
á í hinum nýju samningum.Við höfum einnig áhuga á því að vita hvort eigendur Strætó bs muni
niðurgreiða fargjöld fyrir þá höfuðborgarbúa sem sækja vinnu og skóla til Akraness.Að síðustu langar okkur að spyrjast fyrir um þær kröfur sem Strætó bs gerir
til þeirra bifreiða sem notaðar verða á Vesturlandi. Þeir vagnar sem notaðir
hafa verið síðustu þrjú ár hafa margir verið algjörlega óviðunandi og ógnað
öryggi farþega. Kaldir, óþéttir og með háa bilanatíðni.Með vinsemd og virðingu.
Annars verð ég að segja að stóra strætómálið er hjóm eitt miðað við fyrirhugaðan niðurskurð á geðlæknaþjónustu við börn og unglinga. Hin rétta ríkisstjórn Íslands, Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn, segir að við verðum að spara enn meira árið 2010. Þá held ég að verði endanlega óbúandi á Íslandi.
Getum við virkilega ekki tekið lán úr lífeyrissjóðunum okkar til að bjarga málum í bili, eins og Írar ætla að gera? Þá þyrftum við ekki að hlíta þessum ofurkröfum sem eru allt að kæfa. Eða er kannski búið að tæma sjóðina með gambli og ofurlaunum þeirra sem bera ábyrgð á mörgum þeirra?6 athugasemdir
-
Þau feitu og fáránlegu ... boldfærsla með meiru
17. desember 2008
Ný uppþvottavél er komin i himnaríki. Hún er náttúrlega ekki ný, ekki á krepputímum, heldur notuð, ókeypis og á að vera í lagi, að sögn fyrri eiganda sem er að flytja úr landi. Spenna ársins verður að prófa hana í kvöld eða á morgun. Já, lífið er sannarlega tilbreytingaríkt hér á Skaganum. Gamla vélin gaf sig endanlega á dögunum sem hefur bitnað mest á skólapiltinum á heimilinu. Ég varð ansi hreykin þegar hann sótti einkunnirnar í morgun. Út úr stærðfræðiprófinu fékk hann 9,7 og í heildareinkunn 9,0. Montí mont. Danskan 7,0 sem er bara flott miðað við að hann nennti aldrei að læra hana í denn.
Skrýtið hvað allt bilar í einu, ég þarf að tala við espressóvélarbúðarfólkið vegna lekans í vélinni þótt hún virki alveg. Þori samt lítið að nota hana. Bíll erfðaprinsins er kominn á ágæt, notuð vetrardekk svo hægt verði að fara í bæinn um jólin ... en hann ætlar að geyma að láta gera við bilunina fram yfir áramót. Nú kann hann a.m.k. að spyrja verkstæðiskarla hvað þeir meini nákvæmlega með því að eitthvað "verði ekki svo dýrt" því þótt honum þyki 100 þúsund kall mikið að borga fyrir viðgerð er ekkert víst að öllum verkstæðiskörlum þyki það mikið að fá.
Ég hugsaði erfðaprinsinum þegjandi þörfina í morgun kl. rúmlega 6 þegar ég klæddi mig í rök fötin mín úr þurrkaranum. Hann hafði í gærkvöldi ýtt á takkann sem þurrkar með köldum blæstri, eitthvað sem ég hef nöldrað yfir í huganum að þurrkarinn byði ekki upp á. Nú veit ég betur. Skildi ekkert hvað þessi takki var að gera þarna en gat ekki lesið mér til þar sem leiðbeiningarnar voru á þýsku. Þýskan mín er ekki upp á marga fiska ... þótt ég slái um mig með frösum úr Jólaóratóríunni. Ég þornaði þó hratt, enda gat ég látið þurrkarann malla í sjö mínútur á heitum straumi sem gerði þetta léttbærara.
Ég sofnaði tvisvar yfir Mamma Mia þegar ég horfði á hana sem segir ekkert um myndina, heldur þreytu. Mér finnst hún alveg æðisleg! Ætla að horfa á hana aftur um helgina og þá í heilu lagi. Ég bjóst við kjánahrolli þegar Pierce Brosnan brast í söng en það var ekkert eðlilegra en hann gerði það. Þá eru söngvamyndirnar orðnar þrjár í lífi mínu, þessi, Sound of Music og Mary Poppins.
Rick (sonur Brooke) og Phoebe (dóttir Ridge) hafa lofað að hætta saman en samband þeirra hefur sett allt í umnám í Forrester-fjölskyldunni. Brooke stóð með þeim en hefur eitthvað skipt um skoðun, enda verður unga parið að systkinum innan skamms þegar Brooke verður frú Ridge Forrester. Stefanía, sem var orðin svo góð við Brooke þótt Brooke hafi á sínum tíma stolið Eric frá henni og eignast Rick og dr. Bridget með honum. ...sem ætti að gera Rick og Phoebe skyld en í hittiðfyrra kom í ljós að elsti sonur Erics, Ridge, var ekki blóðskyldur Eric, heldur er Massimo, pabbi Nicks, líka pabbi Ridge. Ég gleymi því alltaf að þeir eru hálfbræður sem ég ætti ekki að gera þar sem Ridge náði Brooke frá Nick eftir að Nick hafði sofið hjá Bridget, dóttur Brooke, en Bridget var reyndar áður gift Nick þegar mamma hennar stal honum frá henni.
Ég hef líklega misst af einhverju en Brooke lofaði? Phoebe litlu (18) að Rick væri ekki með neinni annarri (ég hélt að hún væri á móti sambandi þeirra) en svo endaði þátturinn á því að einhver gömul kærasta Ricks dúkkaði upp, ekki við sérlega miklar vinsældir Ricks, sýndist mér. Nýja Forrester-tískuhúsið má ekki við hneyksli núna þegar á að fara að opna nýju búðirnar, það yrði allt vitlaust ef fréttist af samdrætti óblóðskyldu systkinanna.7 athugasemdir
-
Nokkrar góðar niðurskurðarhugmyndir
16. desember 2008
Úr frétt á dv.is:
„Guðlaugur bindur vonir við að þrátt fyir mikinn niðurskurð samkvæmt
fjárlögum verði heilbrigðisþjónustan ekki skert. Hann segir að nú sé í
gangi vinna undir forrystu Péturs Blöndals og Ástu Ragnheiðar
Jóhannesdóttur þar sem litið er til þeirra leiða sem hin Norðurlöndin
hafa farið í heilbrigðismálum og niðurstaða þeirrar vinnu væntanleg í
byrjun næsta árs.
Hann getur þó ekkert fullyrt um að
niðurskurðurinn bitni ekki á þeim sem minnst mega sín. „Við verðum bara
að sjá hvað verður. En þetta eru markmiðin,“ segir hann.“
Frábært og hreinlega stórfenglegt að fá Pétur Blöndal í þessa vinnu um sparnað á sjúkrahúsum. Hann, einn örfárra, sér í gegnum vælið í fátæklingunum sem spara ekki peninga, heldur eyða þeim í mat og slíka vitleysu. Hann er réttur maður á réttum stað. Vona bara að Ásta R. dragi ekki of mikið úr honum og snilldarhugmyndum hans. Það hefði verið áhugavert að fá að vita hvaða leiðir hin Norðurlöndin hafa farið í heilbrigðismálum. En hva ... Pétur reddar þessu á réttan hátt.
Hér koma nokkrar stórkostlegar sparnaðarhugmyndir til Péturs og annarra sem halda um hnífana:
1. Rukkið endilega sjúklinga sem þurfa að leggjast á sjúkrahús. Sérstaklega fyrir matinn þótt viðkomandi sé fastandi eða lystarlaus. Það yrði bara sniðugt. Rukkið endilega börnin á barnadeildinni þar sem ríkið sparar ekki nóg á því að annað hvort foreldra verði að vera yfir barni sínu allan sólarhringinn og því ekki þörf á jafnmörgum starfsmönnum. Svo er snjallt að láta sjúklinga borga sérstaklega fyrir verkjalyf, viðkvæmasta starfsfólkið getur bara keypt sér eyrnatappa. Látið fólk endilega sprauta sig sjálft, ekki bara heima, eins og hefur viðgengist undanfarin ár fyrir aðgerðir, nú má láta það líka taka blóðþrýstinginn, jafnvel framkvæma einföldustu skurðaðgerðir. Spegill, kennslubók í uppskurðum og nokkrar magnyltöflur ... þarf ég að segja meira? Ef ekki næst að setja sjúklingamatarskatt á væri þá ekki sniðugt að láta bara ættingjana koma með mat fyrir sjúklingana? Svo er snjallt að segja nýbökuðum foreldrum að þeir fái ekki að taka barnið með heim nema þeir borgi t.d. 10.000 kall. Held að allir myndu borga. Held að konur leggi ekki í að eignast börn sín heima svo þetta verður flott skattheimta.
2. Rukkið eigendur íbúða og fyrirtækja sem kviknar í fyrir að fá slökkviliðið til að koma. Með því sparast örugglega háar fjárhæðir, mögulega reynir fólk þá í lengstu lög að slökkva eldana sjálft og deyr kannski sem sparar hellings eftirlaunakostnað. Síðan er hægt að rukka dánarbúið um kostnað við komu slökkviliðsins, tvöfaldur gróði.
3, Rukkið almenning fyrir þjónustu lögreglu. Ef brotist er inn hjá fólki getur það lagt 5.000 kall inn á lögguna og hringt síðan eftir þjónustu. Einnig er snjallt að láta kosta jafnmikið að hringja í 112 og það kostar að hringja í 118. Það mætti alveg hafa það sjálfvirkt að almenningur næði ekki sambandi fyrr en eftir tvær mínútur og gjaldmælirinn tifaði á meðan.
4. Rukkið endilega fólk sem fer um landið á bílum. Ekki er næstum því nóg að rukka bara fyrir að fara í gegnum Hvalfjarðargöngin. Tollhlið víða um landið yrði svona svolítið „erlendis“ Við ættum t.d. að borga fyrir að komast inn í höfuðborgina eins og Englendingar gera. Þar eru Hafnfirðingar og Kópavogsbúar ekki undanskildir. Góður peningur myndi koma í kassann þarna.
5. Finnið síðan helling af málum sem eru „stormur í vatnsglasi“ til að dreifa athygli almennings og bloggara frá alvörumálum stjórnarinnar sem best er að almenningur skipti sér ekkert af.
Dettur ykkur eitthvað fleira í hug sem stjórnvöld gætu notað til að skera niður kostnað?11 athugasemdir
-
Hvar eru skítadreifararnir?
15. desember 2008
Við Ásta spjölluðum áhyggjufullar saman á leið okkar í bæinn í morgun og umræðuefnið var náttúrlega strætóhækkunin. Ég gleymdi að segja henni að ríkisstjórnin væri að hugsa um að fara að rukka sjúklinga á sjúkrahúsum. Strætófarþegar, sjúklingar ... það hlýtur að fara að koma að öryrkjum ... kannski hægt að skerða lífsgæði þeirra meira? ... og hvað með gamla fólkið? Fær það ekki svo rosalega háan lífeyri sem verkalýðsforystan vill vernda með öllum ráðum, eða áframhaldandi verðtryggingu, þótt það þýði verri lífskjör hjá vinnandi fólki? Svo bara hlýtur að vera hægt að reka fleiri skúringakonur úr starfi.
Öll læknisþjónusta er t.d. ókeypis í Frakklandi! Ef frönsk yfirvöld íhuga einhvers konar aðför að almenningi verður allt vitlaust og fólk mótmælir þangað til hætt verður við. Bændur koma m.a. akandi á skítadreifurum til Parísar og láta skítinn vaða á þá staði sem við á.
Jú, við mætum á mótmælin á Austurvelli, jafnvel 5.000 manns en höfum verið töluð niður af fjölmiðlum, iðulega "talin" niður, eins og fjölmiðlar hafi einhverja hagsmuni af því að segja mótmælendur færri en þeir eru. Yfirvöld hér virðast ekki taka mark á mótmælum, enda friðsamleg, og ef einhver er með læti þá er hann bara óeirðaseggur, illa upp alinn bjáni ... eða slíkt. Ég er orðin fimmtug og mig klæjar í lófana til að kasta eggjum, velta bílum og kveikja í þeim ... segi nú svona, en eitthvað þarf að gera til að hlustað verði á okkur. Það er ekki nóg að skipta út ráðherrum, það róar engan.
Stýrivextir eru himinháir hér á meðan þeir eru í sögulegu lágmarki víða annars staðar í heiminum til að minnka skellinn af kreppunni á fólkið.
Þeir sem hafa sett svikamyllur á stofn erlendis hafa verið handteknir og eiga yfir höfði sér langa fangelsisvist. Hér á landi er ekki hróflað við þeim sem hafa þar að auki komið heilu landi á hausinn. Horfið bara á Silfur Egils og lesið síðuna hennar Láru Hönnu á Moggablogginu til að sannfærast um að það er allt að fara til andskotans.
Það er aðför að Skagamönnum að Strætó bs (í Reykjavík) ákveði einhliða að setja okkur í gjaldflokk 3 (þrefalt gjald) á meðan Kjalarnesið er í gjaldflokki 1 (einfalt gjald) og það verður einokun á þessarri leið, engin Akraborg, engin rúta ... bara helvítis okurstrætó! Eini afslátturinn verður í formi afsláttarkorta á kennitölu. Strákurinn minn mætti ekki nota kortið mitt ef hann þyrfti að bregða sér í bæinn, heldur 840 krónur fyrir ferðina, 1,680 báðar leiðir.
Það er aftur á móti aðför að öllum Íslendingum ef rukka á sjúklinga sérstaklega. Ég krefst þess sem skattgreiðandi að sjúklingar séu látnir í friði. Eins og það sé ekki nóg áfall að verða veikur, þurfa kannski að hætta að vinna vegna veikindanna, vera atvinnulaus fyrir eða á skítalaunum og þurfa að borða pasta í öll mál. Það myndi setja gríðarlega mikið strik í reikninginn fyrir fólk að þurfa að fara að borga fyrir að leggjast inn á sjúkrahús. Það bara má ekki gerast. Við verðum að mótmæla því! Ekki bara gefast upp og segja að þetta sé óhjákvæmilegt!
Lokið frekar sendiráðum, afnemið bílahlunnindi, lækkið ofurlaun, minnkið umsvif forsetaembættisins eða hættið með það osfrv. Fáið lán úr lífeyrissjóðunum, þá hafa stjórnendurnir á ofurlaununum þar minna fé til að gambla með. Ekki ráðast á veikt fólk! Heilbrigðisþjónusta er nógu dýr hér á landi, það er búið að efla kostnaðarvitund okkar vel og vandlega síðan Sighvatur tók upp niðurskurðarhnífinn hér um árið, takk! Nóg komið!
Erfðaprinsinn ætlar að láta gera við eitthvert legudæmi í bílnum, eitthvað sem ákveðið verkstæði á Skaganum rukkaði 100 þúsund um en gerði ekki betur við en þetta. Verkstæðiskarlinn sagði "þetta mun ekki kosta mikið", var ófáanlegur til að gefa upp tölu, en svo var reikingurinn þetta hár og efnahagurinn fór í rúst hjá skólastráknum á heimilinu sem óttaðist að þetta yrði kannski 30 þúsund en var búinn að gera ráð fyrir því. Hvekktur erfðaprinsinn þorir ekki annað en fara með bílinn á verkstæði í Reykjavík, verkstæði sem pabbi hans mælti með. Þessi sami verkstæðiskarl á Skaganum sjokkeraði mág minn líka fyrir nokkrum árum, sagði að ákveðin viðgerð yrði sko ekki dýr en svo var reikningurinn 70 þúsund. Þarna eru bara tveir aðilar nálægt mér sem fengu svona meðferð og ætla aldrei með bílinn sinn aftur á þetta verkstæði. Karlinn hlýtur að fara á hausinn með þessu áframhaldi.
Það þarf að drífa sig að láta gera við bílinn fyrir áramót en það mun reynast ódýrara fyrir soninn að keyra til Reykjavíkur ef hann á erindi þangað en taka strætó þar sem hann hefur ekki hag af því að kaupa afsláttarkort og afsláttur ekki veittur nema þeim sem kaupa kort. Ég vinn bara fjóra daga í viku í Reykjavík og er ansi fúl út í Strætó bs fyrir að gefa svona skít í okkur Skagamenn, þeir voru áður svo jákvæðir og hvetjandi og töluðu um frábær umhverfisáhrif og annað ef Skaginn bættist við.
Frá áramótum fær Skaginn allan ágóðann af kortasölunni ... sem minnir mig á ... ef t.d. 500 manns kaupa mánaðarkort á 11.000 kr. gerir það ansi væna upphæð, helmingi meira en þá upphæð sem Akraneskaupstaður hefur niðurgreitt í strætó hingað til og mun halda áfram að borga, enginn aukahækkun á bæjarsjóð.
Þýðir það ekki að mesti gróðinn fælist í því að borga þetta meira niður fyrir bæjarbúa (niður í sömu fjárhæð og áður) fyrst þetta kæmi hvort eð er til baka með fargjöldum? Allir græða. Fólk myndi hætta við að sameinast í bíla til að keyra í bæinn, hvað þá flytja frá Akranesi og þetta dregur nýja íbúa til okkar í íbúðirnar sem standa auðar og eru engum til gagns.
Ég vil samt berjast fyrir því að við Skagamenn förum í gjaldsvæði 2. Það þýðir að þeir sem ferðast til Akraness með strætó borga tvöfalt gjald, ekki þrefalt eins og verður um áramót. Það er eitthvað svo rangt við það að það verði ódýrara fyrir vini mína að heimsækja mig á bílnum frá Reykjavík en taka strætó.
Viðbót:
Vá, hvet ykkur til að lesa leiðarann hans Jóns Trausta! http://www.dv.is/leidari/2008/12/15/island-hvolfi/5 athugasemdir


















