Leita
Áskrift | Fréttaskot | Auglýsingar Reykjavík: 13.2° 2m/s ENE

  • Of gömul til að daðra með árangri

    4. janúar 2009

    Mikið hefur þetta verið rólegur dagur ... meira að segja sjórinn er stilltur og krummarnir fljúga löturhægt framhjá gluggum himnaríkis. Skyldi þetta vita á stjórnarslit? Eða eldgos?

    Kláraði Síðasta fyrirlesturinn í nótt
    . Dauðvona maður á besta aldri, kvæntur og faðir þriggja ungra barna, skrifar um hvernig við eigum að láta drauma okkar rætast og hvernig honum tókst það sjálfum. Mér fannst t.d. áhugavert að lesa um fyrrverandi kærustuna hans sem skuldaði nokkur þúsund dollara og var að farast úr áhyggjum. Hún fór í jóga öll fimmtudagskvöld til að reyna að róa hugann. Maðurinn benti henni á að ef hún fengi sér frekar vinnu á fimmtudagskvöldum gæti hún greitt upp skuldina á ekki svo löngum tíma. Akkúrat það sem ég hugsaði ... konan gerði þetta, vann á veitingastað eitt kvöld í viku, greiddi upp skuldina og hélt síðan áfram í jógaleikfimi, alsæl og áhyggjulaus. Auðvitað á að vaða í málin, uppræta rót vandans! Jamm. Byrjaði síðan á hörkukrimma eftir sænskan eða norskan höfund. Lofar góðu.

    Sorglegt var að lesa um lát 16 ára sonar John Travolta og Kelly Preston. Ég þurfti að fara á erlenda vefmiðla til að sjá myndir af Jett en með íslensku fréttunum voru bara myndir af pabbanum. Kannski læt ég pirra mig mögulega leti sumra íslenskra blaðamanna við að finna myndir með fréttum en svo gæti verið einhver einföld ástæða fyrir þessu, dýrar myndir ... ég veit það ekki. Eins og fréttin af tvíburunum um daginn, önnur stelpan svört, hin hvít, og engin mynd með. Það tók mig innan við mínútu að finna mynd af tvíburunum nýfæddu ásamt eldri systrunum. Kannski verður þetta með tímanum fréttablogg hjá mér (með stolnum myndum af google.com). Í stað þess að pirrast þá geri ég bara eitthvað í málunum!

    Ætla með Ástu á kagganum í fyrramálið þannig að útsofelsi til kl. 7.15 er ekki inni í myndinni, heldur þarf að stilla klukkuna á 5.55. Já, sá tími er til á vekjaraklukkum þótt ótrúlegt sé. Það er náttúrlega frábært að vera komin til vinnu fyrir kl. 7 og fá góðan vinnufrið í a.m.k. klukkutíma. Spennandi að vita hvernig strætósamgöngur verða á morgun eftir vægast sagt erfiða byrjun á föstudaginn. Sigþóra beið um morguninn ásamt fjölda manns eftir strætó í skýlinu við sundlaugina, þrælmerktu skýli við Jaðarsbakka. Strætó beygði til vinstri frá Garðabrautinni, ekki hægri, og skildi þar með alla farþegana eftir. Innanbæjarstrætó-snillingurinn sá þetta og gerði sér lítið fyrir, tók upp hissa og eflaust grátandi fólkið og elti hinn strætó, æsispennandi alveg. Sigþóra lenti líka í svipaðri seinkun og ég á heimleiðinni, var vön að taka 16.45 vagninn fyrir áramót en stefndi nú á 17.20-vagninn skv. nýju áætluninni. Hann fór ekki fyrr en 17.45 vegna seinkunar og vinnudagur Sigþóru með ferðum var 12 tíma langur!
    Þessu verður örugglega breytt, en hvernig ... það er stóra spurningin. Ef frekar verður dregið úr þjónustunni þá fækkar enn í hópnum sem ætlar að nota strætó. Ég veit ekki hvernig örugglega bílandi fólki dettur í hug að breyta þessum hlutum svona mikið án þess að hafa farþega eða bílstjóra með í ráðum. Kannski ætti bæjarstjórnin okkar, ásamt þeim í Borgarnesi og Hvalfjarðarströnd, að berja í borðið og rifta þessum samningi. Ekki hefur verið staðið við neitt gagnvart þeim í Hvalfirði, það kom í ljós að sveitarstjórnin þar átti að setja útskot við þjóðveginn til að strætó gæti stoppað, tímaáætlunin gerði ekki ráð fyrir að fara inn á nein bílaplön og það gleymdist að segja þeim í Hvalfirði það. Já, ansi margir farþegar voru skildir eftir með sárt ennið þennan fyrsta dag. Vona þó að allt hafi gengið vel um helgina. Aðalreynslan á þetta kemur á morgun og næstu daga þegar skólafólkið kemur úr jólafríi.
    Sigþóra sagði mér annað, eða að talsmaður neytenda hefði sagt að ekki væri löglegt að ógilda strætókort Skagamanna sem þeir hefðu keypt fyrir áramót. Þeir sem eiga slík kort eiga að fara með þau á bæjarskrifstofurnar og andvirði þeirra á að ganga upp í nýtt og helmingi dýrara kort. Eðlilega má þetta ekki og það verður spennandi að fylgjast með framhaldinu. Fólk keypti kannski þriggja mánaða kort í desember sem er nú orðið ógilt í Borgarfjarðarstrætó. Ég ráðlagði ungri, áhyggjufullri konu á stoppistöðinni á föstudaginn að sýna kortið sitt bara þrisvar, það hlyti að duga ... en svo var frítt í strætó, a.m.k. frá Borgarnesi í Mosó. Ef farþegar hefðu verið upplýstir fyrr um málið hefði verið hægt að koma í veg fyrir svona rugl. Skrýtið að halda svona stórmáli leyndu. Ráðast svo á okkur í kreppunni og segja okkur að "keyra kostnaðinn niður", eins og segir svo fallega í bæklingnum sem barst inn á hvert heimili hér milli jóla og nýárs. Áróðurinn er miðaður við þá sem eiga bíla og sett voru upp alls konar dæmi um sparnaðinn af því að taka strætó, farþegi á stoppistöðinni í Háholti á föstudaginn sagði að það þyrfti nú samt að borga tryggingar og gjöld af bílum þótt þeir standi. Fyrir mig er þetta bara pjúra 200% hækkun þar sem kort hentar mér ekki nema Ásta hætti að keyra á milli. Þrír strætómiðar fyrir hverja ferð. Ég er orðin of gömul til að daður við bílstjóra dugi til afsláttar, ef ég t.d. blikka karlmenn núna halda þeir að ég sé með augnsjúkdóm.

    4 athugasemdir

  • Byrjunarörðugleikar?

    2. janúar 2009

    Þegar ég gekk niður Súkkulaðibrekkuna skömmu fyrir fjögur var leið 15 að renna framhjá stoppistöðinni ögn neðar, eitthvað sein á leið í Mosó. Smá spæling en enn minni spæling þegar ég kom í Mosó korteri á eftir hinum, þar sem kom í ljós að leið 57 var 20-25 mínútum of sein. Vagninn lagði síðan af stað á Skagann á sama gamla tímanum 16.45 í stað 16.20. Þessu var búið að spá, ekki af völvu, heldur vönum farþegum, allt of knappur tími gefinn, engar pásur hjá aumingja bílstjórunum, bara keyrsla með sífellt meiri seinkun eftir sem leið á daginn.

    Á www.skessuhorn.is mátti m.a. lesa þetta í dag:
    “Þá er tímaáætlun okkar það knöpp að við höfum einfaldlega ekki tíma
    til að senda bílana inn í Melahverfið né upp á planið við
    Hvalfjarðargöngin. Það þarf því að fara í lagfæringar við gerð útskota,
    bæði við afleggjarann að Melahverfi og við Hvalfjarðargöngin. Sú
    framkvæmd er í höndum viðkomandi sveitarstjórnar. Strætó sér einungis
    um að koma merkingum upp,” sagði Þórhallur.

    Þessi svör Strætómanna komu Laufeyju Jóhannsdóttur sveitarstjóra
    Hvalfjarðarsveitar nokkuð á óvart. “Við höfðum þá trú að skipulagning
    og undirbúningur hefði verið í lagi og hefðum raunar aldrei skrifað
    undir samning um Strætóferðir ef við hefðum ekki haft þá trú að allt
    hefði verið í lagi með undirbúning framkvæmdarinnar til að áætlun gengi
    hnökralaust fyrir sig strax 2. janúar,” sagði Laufey.


    Hress eftirlitsmaður
    frá Strætó bs spjallaði við okkur í næstum hálftíma í strætóskýlinu og einnig á leiðinni og passaði vel upp á að við fengjum frítt í vagninn (til og með 11. janúar) þannig að ég reif í tætlur skiptimiðann minn sem ég fékk í leið 15. Eftirlitsmaðurinn mátti sitja undir heilmiklu nöldri frá okkur og líka skemmtilegheitum, enda eru Skagamenn ekki fýlugjarnir, við erum bara æðisleg en með ríka réttlætiskennd. Þrír eða fjórir Borgnesingar voru með frá Háholti, m.a. börn sem dvöldu hjá pabba um áramótin og voru á leið heim til mömmu sem hafði tekið saman við mann
    í Borgarnesi sem hún hafði kynnst á jólahlaðborði. Já, maður fréttir nú
    ýmislegt.

    Ekki var hlustað á þá sem stungu upp á sérstökum vagni frá Borgarnesi sem myndi eiga stefnumót við strætó frá Akranesi við Hvalfjarðargöngin. Slíkt myndi leysa mörg vandamál og virðist samkvæmt þessu vera það einfaldasta í stöðunni.

    Ég, rólegheitamanneskjan sjálf, setti arabaklútinn minn á mig í morgun, hann er vissulega sá hlýjasti í treflasafninu og með honum reyndi ég að gefa yfirlýsingu að ég væri til alls vís. Hættulegt að bögga mig með skemmdarverki á strætósamgöngum.

    Ég spurði eftirlitsmanninn hvort Strætó bs myndi bregðast við á einhvern hátt ef/þegar farþegum frá Akranesi fækkaði umtalsvert sem allt stefnir í. Það var lítið um svör. Svo vill Strætó bs einhverra hluta vegna EKKI fá milljónirnar frá okkur farþegum vegna kortasölu, heldur fær bærinn peninginn. Til hvers var þá verið að breyta þessu? Ekki borgar bærinn meira en áður til Strætó bs. Hækkunin táknar sjálfkrafa fækkun farþega og drepur þetta kerfi niður hægt og rólega ... eða kannski hraðar en okkur grunar. Yfir 300 manns ferðast daglega bara frá Akranesi, af hverju fær bærinn peninginn? Hvers vegna er gjaldsvæði 2 inni í Hvalfjarðarbotni, miklu lengra frá Reykjavík en Akranes sem er í gjaldsvæði 3 (þrefalt gjald)? Við tilheyrum svo gott sem höfuðborgarsvæðinu þegar t.d. hagrætt er í heilbrigðiskerfinu, þá er sjúkrahúsið á Akranesi eins og við hlið Landspítalans. Mjög furðulegt.

    Skyldu koma svör frá stjórn Strætó bs við bréfinu sem við Vera sendum fyrir hálfum mánuði? Hvers vegna þessi hraði í að koma þessu á? Að vísu sagði eftirlitsmaðurinn frá Strætó að bæjarstjórnirnar (Árborg, Borgarbyggð o.fl.) hefðu dregið lappirnar í marga mánuði í málinu (sem almenningur vissi ekkert um) og ekki viljað skrifa undir þetta. Mikið vildi ég vita hvers vegna. Kannski var þetta allt miklu dýrara fyrir fólkið en vonast hafði verið til. En hvernig þetta gekk í dag gefur ekki góða vísbendingu um framhaldið. Allar tímaáætlanir úr skorðum. Snjallt hefði verið að hafa farþega og bílstjóra með í ráðum áður en þetta var sett af stað og prentaðir fínir bæklingar þar sem skrifað er um þann sparnað sem nýja kerfið ber með sér. Þar sem ég fer ekki daglega með strætó verð ég að kaupa venjulega strætómiða og þarf að borga þrjá fyrir hverja ferð, lítill afsláttur þar. Ég gleðst þó yfir einu ... stoppistöðin mín við Garðabraut er enn inni skv. korti sem eftirlitsmaðurinn frá Strætó bs var með en heilt risastórt hverfi, Grundirnar, hefur enga stoppistöð lengur, þar er m.a. Dvalarheimilið Höfði ... og sjálf sætukarlastoppistöðin!

    Hjón hér á Skaganum skrifuðu bréf í Skessuhorn og útskýra þar hvers vegna þau treysta sér ekki lengur til að taka strætó en þau vinna bæði í Reykjavík. Þau tala reyndar um 100% hækkun á fargjöldum, sú hækkun gildir bara hjá þeim Skagamönnum sem kaupa sérstök kort, allir aðrir fá á sig 200% hækkun. Hér er bréfið og þau tala sannarlega fyrir hönd ansi margra farþega þar:

    http://www.skessuhorn.is/default.asp?sid_id=21464&tid=2&fre_id=81273&meira=1&Tre_Rod=001|011|&qsr

    5 athugasemdir

  • Leið 57- Borgarnes-Akranes-Rvík

    2. janúar 2009

    Leið 57 hóf göngu sína í dag, Borgarnes-Akranes-Reykjavík. Ég fór snemma út í morgun, stóð um stund óörugg í þrælmerktu strætóskýli mínu við Garðabraut, svo óörugg að kjarkurinn brást eftir eina mínútu og ég labbaði að skýlinu hjá bæjarskrifstofunum þar sem ég vissi að strætó myndi örugglega stoppa. Strætó kom fimm mínútum of seint ... samt var aðeins einn farþegi frá Borgarnesi, virkilega eðlileg kona. Farþegar voru komnir á stoppistöðina mína sem ég þorði ekki að bíða á og bílstjórinn hirti þá upp. Kannski helst hún inni, það væri æðislegt. 

    Haukur sat undir stýri, búið að reka Skúla þar sem hann býr ekki í Borgarnesi eða Akranesi. Mikið á ég eftir að sakna hans.
    Í stað þess að keyra út úr bænum í austurátt, framhjá Íþróttahöllinni, dvalarheimilinu Höfða og sætukarlastoppistöðinni (Innnesvegur) beygði bílstjórinn til vinstri hjá sundlauginni til að komast út úr bænum. Stoppistöðvarnar þar voru vonandi ekki fullar af fólki sem enginn var búinn að segja að væru ekki lengur í gangi.
    Nú er aðalleiðin ekin út úr bænum (Akranesi) og ný stoppistöð kemur rétt hjá ÁTVR, skilst mér. Það er eins og allt sé reynt til að koma mér í óreglu. Léleg sjónvarpsdagskrá á nýársnótt og nú strætóstoppistöð rétt við ÁTVR. Við vorum kannski tíu sem skröngluðumst í bæinn.

    Elsku Halli á leið 15 beið eftir okkur og því náði ég leið 18 upp í Hálsaskóg. Einn Indverjinn minn er enn í forritunarvinnu hjá Glitni og hann var í strætó, líka þýðandinn, þótt ég móðgaði hann með því að sjá hann ekki fyrr en við löbbuðum út úr vagninum, en hægláti maðurinn er greinilega enn í jólafríi.

    Nú er eins gott að vinna ekki of lengi á föstudögum, strætó fer kl. 18.20 (ekki 18.45) og svo ekki fyrr en korter fyrir níu um kvöldið! Slæm breyting fyrir alla þá sem vinna í Reykjavík til kl. 18.

    Jæja, best að halda áfram að vinna. Hér verður snitzel í hádeginu, 200 kalli dýrara en fyrir áramót, best að prófa asparssúpuna! Það er ódýrara!

    7 athugasemdir

  • Tvíburar af ólíkum kynþætti - mynd

    1. janúar 2009

    Stundum má lesa fréttir í fjölmiðlum sem gera fátt annað en að pirra mann þar sem sárlega vantar mynd/ir með. Núna skömmu fyrir áramót mátti víða lesa frétt þess efnis að tvíburastelpur hefðu fæðst, önnur svört og hin hvít. Þær nýfæddu eiga systur, sjö árum eldri, sem einnig eru tvíburar, önnur svört, hin hvít ... mjög óvenjulegt. Ég gúgglaði og fann strax mynd af systrunum fjórum. Foreldrarnir heita Dean Durrant (33, svartur) og Alison Spooner (27, hvít), eldri systurnar: Hayleigh (svört) og Lauren (hvít), þær yngri: Leah (hvít) og Miya (svört). Foreldrarnir urðu steinhissa, ekki bara yfir því að eignast aftur tvíbura, heldur að þetta skyldi verða eins og síðast, tvíburar ... ekki af sama kynþætti.

    Er þetta ekki bara þrusuflott fréttamennska hjá mér? Eitthvað sem mætti taka til fyrirmyndar? Hér á þessarri frábæru bloggsíðu má a.m.k. svala forvitninni og sjá þessar yndislegu stelpur á mynd.

    Smá viðbót af vísindavef háskólans eftir athugasemd:

    .... Niðurstaðan er þá sú að kynþáttahugtakið er ekki nothæft til að lýsa
    hópaskiptingu mannkyns. Frá sjónarhorni vísinda er réttara að notast
    við hugtakið stofn (e. population) í þessu samhengi, en það
    er hópur einstaklinga, sem vegna nálægðar eða annarra skilyrða, eru
    líklegir til að eignast saman afkvæmi. Stór kostur við þetta hugtak er
    sveigjanleiki, sem endurspeglar vel veruleika lífheimsins. Þannig væri
    til dæmis hægt að líta á íbúa Akureyrar sem stofn, en einnig mætti líta
    á íbúa Norðausturlands sem sérstakan stofn, eða íbúa Íslands, eða íbúa
    Evrópu, en tegundin sjálf er stærsti stofninn.

    Svaka flott fréttamennska hjá mér ... hehehehehe, þá veit ég þetta.


     

    4 athugasemdir

  • Sjónvarpsefni á nýársnótt ...

    1. janúar 2009

    Afar ljúft og notalegt var hjá Míu systur og Sigþóri mági fyrr í kvöld. Maturinn hrein snilld. Verst að ísinn á eftir var með núggati en ég trylltist ekkert, enda lífsreynd eftir að hafa fengið Toblerone með hnetum og rúsínum frá Ástu fyrir að hafa passað hundinn hennar á dögunum. Búið að eyðileggja bankakerfið, Toblerone-ið, Makkintossið, strætókerfið, þetta fer alveg að venjast.

    Eftir Stöðvar 2 annálinn drifum við okkur heim, enda útsýni með afbrigðum gott yfir til höfuðborgarinnar sem logaði öll. Akranes ljómaði líka fallega, mikið skotið upp hér. Eftir að hafa horft á flugeldana, lesið Moggann og flett í gegnum völvuspá Vikunnar gerði ég það sama og undanfarin gamlárskvöld síðan 1986 þegar ég hef ekki nennt að fara að sofa og ákvað að kíkja á sjónvarpið. Eitthvað rámaði mig í að það yrði sýnd eldgömul ævintýramynd, Jewel of the Nile  ... það skársta sem ég fann, en skv. fyrri drögum dagskrár sem ég sá fyrir tveimur vikum átti hún að vera miklu fyrr á dagskrá. Nennti ekki að horfa á Mít the Fokkers enn og aftur, sem var troðið á undan, ekki heldur Spiderman einu sinni enn og ekki er langt síðan Stephen King myndin á Bíórásinni var sýnd. Það þýðir ekkert að segja við mig að ég eigi að fara í partí og djamma,
    mér finnst slíkt yfirleitt ofboðslega leiðinlegt þótt ég sé annars sæmilega félagslynd.

    Hef árum saman verið ósátt við, fyrir mína hönd og annarra sem ekki nenna að djamma á nýársnótt eða eiga sér ekkert líf, að endursýndar myndir séu á dagskrá þessa nótt, finnst það óvirðing við okkur sem heima sitjum. Talaði við mann á annarri stöðinni og sá sagði að allir, a.m.k. langsamlega flestir, "skemmtu sér" þessa nótt og því þyrfti ekki að leggja í einhver fínheit ... æ, hann orðaði þetta kannski ekki svona en mér tókst ekki að sannfæra hann um að foreldrar, gamla fólkið, fólk eins og ég ... eflaust mörg þúsund manns, værum bara heima og það væri frábært að fá eins og eina góða mynd til að horfa á fyrir svefninn. Hef lesið tryllingslega mikið í tvo mánuði og væri til í eitt sjónvarpskvöld/-nótt.
    Ég lýsi því þó yfir að ég lendi í óreglu á nýársnótt í framtíðinni kenni ég sjónvarpsstöðvunum algjörlega um það.

    En hva ... Gleðilegt nýtt ár! Megi árið færa okkur Íslendingum nýja ríkisstjórn, nýtt fjármálaeftirlit, betri sjónvarpsdagskrá næsta gamlárskvöld og ekki síst ... mýkingarklúta í þurrkara.

    7 athugasemdir




© 2010 DV ehf. - Allur réttur áskilinn