ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 5m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Í lögreglufylgd í vinnuna

09:13 › 9. febrúar 2012

Sonur minn reynir stundum að fá móður sína frá tölvunni og til að horfa meira á sjónvarp og í gær um kvöldmatarleyti þegar ég ætlaði að vera að vinna plataði hann mig til að horfa á einn þátt með sér. Ég settist í sakleysi mínu í leisíboj-inn sem ég er með í pössun. Kona vön þjáningum skrifborðsstólsins missti sig í þægindunum og steinsofnaði, vaknaði útsofin um miðja nótt, þegar klukkan var farin að ganga þrjú! Og hvað gerir kona þegar slíkt gerist? Jú, hún heldur ró sinni og fer að vinna, drekkur kaffi, fer í sturtu um sexleytið - og sleppur naumlega út á stoppistöð í trylltri hálku áður en strætó kemur. Þar biðu elsku Höfðabrautarvillingurinn og pólskukennarinn okkar, hún Katarzyna, og fylgdust í spennu með mér reima skóna í kapp við strætó sem nálgaðist óðfluga. Við H erum nú ekki góðir nemendur. Öll þessi kennsla í vetur hefur skilað okkur einu orði - ÁTÓBÚSS (strætisvagn) en hver veit nema það orð eigi eftir að verða okkur til mikllar gæfu í skrýtnum aðstæðum. Jafnvel bjarga lífi okkar.


Elskan hún Jóna sem prjónaði á mig lopapeysu um jólin síðustu, settist hjá mér í strætó þar sem ég sat hægra megin við glugga í þriðju röð, og saman kúrðum við alla leið í Mosó og dormuðum í kapp við lætin á Bylgjunni ...  Ekki laust við að maður hlakki til vikulegs Abba-lagsins í fyrramálið ... ef sami bílstjóri-sama útvarpsstöð ...  Vér strætófarþegar erum búnir að fatta kerfið varðandi vandlega skipulegt lagavalið - sem getur vissulega verið pirrandi nema maður sé róbót. :)


Í sexunni á leiðinni frá Mosó gátum við nú aldeilis spjallað farþegarnir. Það virðist vera meiri jákvæðni ríkjandi gagnvart „standandi“ strætóum en áður - en ég veit auðvitað alls ekki skoðanir allra. Mögulega eftir að í ljós kom að það verða 54 sæti - og ef okkur fjölgar umfram það þannig að standandi fólk verður viðvarandi „ástand“ ... verður skipt yfir í 70 sæta vagnana sem eru líka með 25 standandi pláss eins og hinir. Og svo gengur strætó auðvitað ekki í brjáluðu veðri. Við vorum ansi kát í morgun, enda komin með „sófabíl", aftur, „tveggja manna sófi“ beggja megin við ganginn í fremri hluta vagnsins, og alveg eins sæti á móti. Svo skellum vér Skagamenn og Borgfirðingur (Guðlaug), stöku flækingur (Kjalnesingur, nema Íris) þarna og látum móðann mása um allt! Við erum mjög ánægð með fargjaldalækkunina sem tekur gildi í sumar. Til að gleðja okkur öll enn meira tilkynnti ég að yrði svona hviss-bang-fríhöfn í göngunum, sígó, brennivín, ilmvötn og Rolex-úr. Það hringdu engar viðvörunarbjöllur þegar leðurklæddur maður með rannsakandi augnaráð settist í sófann á móti mér um svipað leyti ... smápása vegna geðshræringar.


Jæja. Það hefði getað komið illilega í hausinn á mér að reyna að plata fólk, maðurinn sem sat í sófanum á móti mér vinnur sem rannsóknarlögreglumaður en hann var svo sem ekki búinn að stimpla sig inn. Hann hoppaði út úr vagninum við Vesturlandsveginn eins og ég (!) og saman fetuðum við niður hyldýpið ... Ég benti honum á að það yrði mun virðulegra fyrir fólk á okkar aldri að ganga nokkra metra til vesturs fyrst og hann virtist þakklátur, enda ekki jafnbratt þarna vestar. Svo fór hann að yfirheyra mig á leiðinni upp Súkkulaðibrekkuna. Hann gerði það svo læviíslega og vingjarnlega að ég sagði honum öll mín leyndarmál, líka þau skelfilegu sem lesa má um í sérheftum um óupplýst sérlega sérstæð sakamál. Lögreglumaðurinn slagaði síðan niður að Sportbúðinni þegar ég bjó mig undir að hoppa upp götuna mína við Lyngháls og líklega er ég sloppin. Ég montaði mig síðan af því á feisbúkk að hafa fengið lögreglufylgd í vinnuna, ekki bara það, heldur rannsóknarlögreglufylgd. Einn feisbúkkvinuinn spurði hvort Halldór fjandi hefði eitthvað með þetta að gera, lögreglufylgdina sko, en fjandinn sagði þá: „Ekki tengt mér. Landmælingar nótera líka þegar hún fer yfir sýslumörk.“


Hafið það stórkostlegt í dag, elskurnar og verið góð við lögguna. Hver veit hvaða samferðafólk löggufólkið hefur haft í strætó í morgun ...


Myndin tengist færslunni beint, nema kannski textinn, og sýnir hvernig strætóferðirnar gætu orðið, hvaða stuð það yrði ef það kæmi  fríhöfn um borð í vagnana - bara rétt í gegnum Hvalfjarðargöngin.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?