Ég ætla að taka upp nýjan þátt hér á blogginu ... Gurrí og fræga fólkið.
Ekki galið að deila reynslu sinni með tryggum lesendum og öðrum aðdáendum. :)
Ég geri þetta að sjálfsögðu ekki til að monta mig, slíkt hefur lífið barið niður í mér ... heldur til að segja djúsí sögur af fræga fólkinu á auðmjúku bloggi mínu. :)
Af því að þetta er fyrsti þátturinn þá afhjúpa ég hér kynni mín af frægum leikara - algjöru sellebrittí sem hefur leikið í Hollywood stórmyndum og allt!
Vona að lesendur hafi gaman af þessari nýjung þótt hún verði að mestu kynlífslaus.
Gurrí og fræga fólkið
Nýlega fór ég í gegnum myndir til að setja á Facebook og fann eina gamla þar sem ég var á spjalli við einhvern franskan leikara. Á þessum tíma vann ég hjá DV (82-89) sem skrifstofumær og var komin með blaðamanninn í magann þótt liðu rúm tíu ár þar til sá draumur yrði að veruleika. Einhverra hluta vegna var ég samt send fyrir hönd DV á staðinn. Myndin hér að ofan birtist í blaðinu og myndatextinn var eitthvað á þessa leið: „Guðríður Haraldsdóttir, bara skrifstofustúlka hjá DV, spjallar við ....“ og svo kom eflaust nafn leikarans. Mitt verk var síðan að segja alvörublaðamanni frá uppákomunni og viðkomandi setti það í læsilegt form. Ég man að þetta var uppákoma í franska sendiráðinu og mér fannst þetta vera rosalega spennandi.
Ég vissi að leikarinn væri þekktur í heimalandinu, svona álíka og Egill Ólafsson hér á landi ... annað vissi ég ekki um hann.
Eftir að ég skellti myndinni inn á Facebook komu viðbrögð ... Gummi Ben hélt því fram að hann hefði leikið í The Patriot með Mel Gibson ... og Magga vinkona kom með nafnið, sagði að hann héti Tchéky Karyo (sem sagði mér reyndar ekki neitt). Hann er fæddur 4. október 1954 og lék í fyrstu bíómynd sinni snemma á níunda áratugnum (1982) skv. Wikipediu og svo bara hverri á fætur annarri. Hann VAR kvæntur Isabelle Pasco, skv. sömu heimildum. Hefur líklegast aldrei getað gleymt fegurðardísinni á Íslandi og slíkt fer illa með hjónabönd, hugsa ég.
http://images.allmoviephoto.com/2000_The_Patriot/tcheky_karyo_mel_gibson_the_patriot_001.jpg
(Það gengur eitthvað illa að setja inn nýlega mynd af gaurnum. Áhugasamir verða líklega að gúggla).
Magga vinkona dýrkar Mel Gibson og hefur gert til margra, margra ára og hefur nú komist nær því að tengjast honum en nokkru sinni fyrr ...
Sko ... ég kynntist Möggu árið 1989, ég spjallaði við Tcheky í kokteilboði í kringum 1987 og einhverjum árum síðar (2000) lék hann í bíómynd með Mel Gibson. Ég er með gæsahúð og veit að þetta er engin tilviljun. Við Tchéky vorum aðeins verkfæri í höndum örlagannna við að tengja saman Möggu og Mel Gibson.
Ég mun a.m.k. ekki gleyma því að horfa á afar athyglisverða heimildamynd á RÚV mán. 15. mars en hún hlýtur að skýra svona hluti út fyrir manni ...
Connected: The Power of Six Degrees
Í þessari heimildarmynd er sagt frá afar forvitnilegu fyrirbæri, sakleysislegri dægradvöl háskólanema sem varð með tímanum kveikjan að stórmerkilegum vísindum.
Samkvæmisleikurinn „Kevin Bacon og skrefin sex“ gengur út á það að alla leikara á plánetunni megi tengja Hollywood-stjörnunni í aðeins sex tengslaþrepum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
