Eins og alþjóð vonandi veit þá eru reknar dásamlegar sumarbúðir í Borgarfirðinum, Sumarbúðirnar Ævintýraland. Systir mín stofnaði þær fyrir 12 árum.
Ævintýraland kom sem þriðji aðilinn á þennan „markað“ - fyrir voru KFUM og skátarnir. Þeir aðilar fá árlega tugi milljóna í styrki af almannafé og hafa fengið um langa hríð. Flott að styrkja gott barnastarf en þetta hefur skekkt samkeppnisstöðuna alvarlega í gegnum tíðina. Hilda systir segir af reynslu sinni að sumarbúðir geti vel staðið undir sér - en það sé ekki hægt ef bara sumir fái styrki en aðrir ekki. Hún verður t.d. að hafa verðlagningu sína í stíl við þær ríkisstyrktu, jafnvel þótt hún bjóði upp á mun fjölbreyttari starfsemi en þær.
Á fimmtudaginn síðasta var „almannafé“ gróflega misnotað að mínu mati. Auglýsingar systur minnar í útvarpinu um að skráning væri hafin hjá Ævintýralandi voru kaffærðar af margfalt fleiri auglýsingum keppinautarins sem auglýsti grimmt sína skráningu sem átti að hefjast tveimur dögum seinna. Skattpeningarnir mínir!!! Líklega yrði samkeppnin harðari ef engir styrkir væru en heiðarlegri.
Vissulega hefur hún systir mín sótt um styrki og ég hef stundum farið með henni í slík viðtöl. Öllum finnst ógurlegt óréttlæti að bara tveir af þremur fái styrki en ekkert gerist.
Einhvers staðar í kerfinu virðist vera óskiljanlega sterk fyrirstaða.
Ýmsar ástæður hafa verið nefndar fyrir því að Hilda fái ekki styrki. Fyrst þurfti hún að sanna sig - og það hefur hún heldur betur gert. Undanfarin ár hefur verið sagt að hún geti ekki fengið styrki, sem eru ætlaðir til sumarstarfsemi, ... þar sem hún starfi ekki líka yfir vetrartímann! Frekar undarleg rök sem standast auðvitað ekki. Ég myndi hlæja ef ég væri ekki með kökk í hálsinum og öskureið yfir þessu óréttlæti.
Í sumarbúðunum hennar Hildu fer fram mögnuð og uppbyggileg starfsemi og Hilda lét þar
gamlan draum um öðruvísi sumarbúðir rætast. Börnin hafa val um það sem
þau vilja gera á daginn og er líka boðið upp á æðisleg námskeið
(grímugerð, dans leiklist, listasmiðja, íþróttir, kvikmyndagerð
o.fl.) sem þau geta valið um. Allir með, allir njóta sín. Afraksturinn er
sýndur á lokakvöldvökunni af hreyknum börnum. Sumarbúðirnar hennar eru líka hlutlausar í trúmálum sem kemur þó ekki í veg fyrir að ýmsir prestar og safnaðarforstöðumenn sendi börn sín þangað.
Árlega hefur Hilda fengið einhvern frægan leynigest í heimsókn ... og það kunna krakkanir að meta. Páll Óskar hefur tvisvar mætt í sumarbúðirnar á
unglingatímabilinu og tók ekki krónu fyrir að spjalla við krakkana um
skaðsemi áfengis og tóbaks, einelti og fleira, af því honum þótti starfsemin svo frábær.
Það eru góð meðmæli. Þegar Birgitta Haukdal
mætti í nokkur skipti eitt sumarið svifu börnin um á sæluskýi. Lögin
hennar voru vinsælust að velja sér til að syngja í vikulegri
karaókíkeppninni og þau heyrast sannarlega enn. Það verður gaman að vita hvaða leynigestur kemur í ár!
Hilda hefur m.a. þurft að láta prenta rándýran bækling árlega en ákvað í ár að sleppa því vegna okurs hjá dreifingaraðilanum. Í fyrra fengu ekki næstum því allir landsmenn bæklinginn þótt Hilda hefði borgað fyrir það en dreifingarfyrirtækið sagðist ekki bera ábyrgð á því. Megi þeir snæða óhreinindi.
- Hilda borgar háa húsaleigu á meðan borgin hefur fellt niður fasteignagjöld af eigin húsnæði keppinautanna sem var þar að auki byggt fyrir styrki á sínum tíma.
- Keppinautarnir fá styrki til að þjálfa starfsfólk sitt (leiðtoganámskeið). Hilda fær ekki einu sinni að sækja um styrk til að þjálfa umsjónarmenn sína og annað starfsfólk sem hún gerir alltaf á helgarnámskeiði á vorin með aðstoð sálfræðings, leiðbeinanda í skyndihjálp og fleira og fleira. Starfsfólk ónefnds sjóðs hjá menntamálaráðuneytinu meinar henni að senda umsókn. Ég er brjáluð yfir því. Eitt er að fá nei, annað er að fá ekki einu sinni að sækja um á jafnréttisgrundvelli við keppinautana.
- Í hittiðfyrra, eða árið þar á undan, fékk Vatnaskógur 50 milljónir frá Reykjavíkurborg til að byggja nýjan svefnskála sem áætlað er að kosti 75 milljónir. Hilda hefur borgað ansi margar milljónir í húsaleigu í gegnum tíðina.
- Pokasjóður úthlutar styrkjum á hverju ári. Hilda hefur tvisvar fengið smástyrk þar og það hefur sannarlega komið sér vel, t.d. til að byggja upp unglingastarfið um verslunarmannahelgina. Keppinautarnir fá marga styrki úr pokasjóði árlega í hin ýmsu verkefni, eins og t.d. „opnun“ sumarbúða sinna.
Ókei, Hilda hefur ekki efni á því að ráða viðskiptafræðing í fullt starf við að sækja um styrki eins og keppinautarnir. Hún gæti það ef hún fengi styrki - bara pattstaða!
Ég er vægast sagt mjög ósátt við að skattarnir mínir séu notaðir á þennan hátt - öll mismunun er viðbjóður. Nú ætla ég ekki að láta nægja að arga mig hása hér á blogginu, ég ætla að gera eitthvað í málunum. Réttlætiskennd minni er gjörsamlega misboðið.
Allt um sumarbúðirnar: www.sumarbudir.is.
Blogg
Gjörsamlega nóg boðið
21:25 › 20. mars 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
