ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Trylltur læknir og nunnur í felum

17:30 › 16. febrúar 2010

Þú tekur svo bara úr þér saumana sjálf eftir viku,“ kallaði læknirinn vingjarnlega en ákveðið á eftir mér í morgun þegar ég staulaðist út frá honum. Mér finnst áberandi hversu vel sjúklingum er treyst til að gera ýmislegt eftir að bankahrunið varð, eins og að þurfa að sprauta sjálfa sig með blóðþynningarlyfi í magann daginn fyrir aðgerð. A.m.k. tíðkast það grimmdarlega á Kvennadeild LHS.
Saumaúrtaka er að vísu ekkert miðað við það, bara klippa, draga og kveinka sér kannski pínulítið. Ég brosti bara og samþykkti, enda íslensk valkyrja. (ATH. Fyrirsögn færslunnar tengist áðurnefndum lækni ekkert, heldur öðru hér aðeins neðar)

Það kemur svo bara í ljós eftir næsta þriðjudag hvort ég verði lögsótt fyrir að fara inn á lögverndað starfsvið annarra. Ég slapp fyrir nokkrum árum með sprautunina (þar sem ég neitaði að gera þetta sjálf sökum sprautuhræðslu og prinsipps) en verð kannski ekki jafnheppin núna. Síðast þegar ég vissi máttu ekki einu sinni sjúkraliðar sprauta fólk og þeir hafa aldeilis meiri menntun til þess en sauðsvartur almúginn. Best að lesa til öryggis Do it yourself - í læknisfræði áður en sparnaðaráformin ganga enn lengra. (Ho ho ho)

http://www.amazon.com/yourself-brain-surgery-other-skills/dp/0891042644



Það hefur reyndar alltaf blundað í mér að það gæti verið gaman að vinna á sjúkrahúsi. Það má segja að ég hafi alist upp á Sjúkrahúsi Akraness. Mamma var yfirhjúkka þar í æsku minni og ég var nánast daglegur gestur á spítalanum, spjallaði við sjúklinga, heimsótti Guðbjörgu matráðskonu í eldhúsið og reyndi líka ákaft að kíkja inn á skurðstofuna þegar uppskurðir voru í gangi. Ég hef saknað spítalaandrúmsloftsins og stundum séð eftir því að hafa ekki lagt eitthvað fyrir mig (annað en að veikjast auðvitað) sem kæmi mér um borð í heilbrigðisskipið. Finnst spítalar æðislegir og lít á starfsfólkið sem guði, ekki bara læknana. Samt hef ég bara legið tvisvar á sjúkrahúsi sem ég man eftir, annað skiptið var það bara vesæl hálskirtlataka. Ég var of ung þegar ég lærbrotnaði (13 mánaða) til að muna eftir því þótt nunnurnar í Stykkishólmi hefðu gert sitt af hverju til að gera það eftirminnilegt. Þær létu mig víst liggja heila nótt grátandi á stofu með heyrnarlausri konu (sem vaknaði samt en þorði ekki að hringja bjöllunni) af því að þær vildu ekki vekja lækninn, hvað þá hugga mig. Strekkurinn sem hélt fætinum uppi hafði losnað og fóturinn dottið niður. Mamma hafði hæversklega bent á þetta í kvöldheimsóknartímanum en fengið bágt fyrir afskiptasemina. Læknirinn trylltist yfir þessu næsta morgun en gat engan skammað þar sem nunnurnar hlupu í felur. Hef ekki tekið nunnur í sátt eftir þetta, frekar en rúsínur sem ég á líka steingleymda en áminnta minningu um.

Í gærkvöldi kíkti ég á bloggsíðu sem vísaði á fáránlegan vef ofsatrúaðra Kana og þar var verið að rakka niður elsku Latabæ á mjög svo viðbjóðslegan hátt. Mér ofbauð algjörlega.Trúði auðvitað hverju orði en létti óstjórnlega þegar ég sá í dag að þetta væri grínvefur, það hefði verið hræðilegt ef ég hefði bloggað um þetta dæmi  - sem var samt trúlegt ... a.m.k. trúarlegt (ho ho ho):

http://eyjan.is/blog/2010/02/16/islendingar-rifast-um-latabae-vid-ameriska-hadfugla-a-netinu-heldu-ad-adeilan-vaeri-i-alvoru/#comment-260778

 

Einhverjir Íslendingar hafa blandað sér í umræðuna og bent þessum „vitleysingum“ á að hlutverk Latabæjar sé að örva börn til að hreyfa sig og borða hollan mat. Margt hefur verið látið flakka og svona svaraði einn "rugludallurinn" gagnrýninni:


Us? Perverts?!!! How can you say
that when you all voted for a lesbian, Jóhanna Sigurðardóttir, to be your Queen?
Oh, yes, we can believe in a
country that says it does not produce pedophile TV shows and then elects a
rug-muncher!
As for your being a Christian,
that is unbelievable – it is well known that Lutherans only appoint homosexuals
for their priests.
Disgusting! No wonder God made
you live on a little island miles from anywhere!


BOLD: Storm er dáinn en ekki til einskis þar sem hjarta hans passaði algjörlega fyrir Katie, systur hans, sem var næstum því dáin eftir slysaskotið þar sem þau systkinin slógust fyrir misskilning um byssu sem átti ekki að vera hlaðin. Allir eru í rusli, sérstaklega ég þar sem ég vonaði að Bridget, systurdóttir Katie, fengi að framkvæma hjartaaðgerðina, hún virðist vera aðallæknirinn á þessu sjúkrahúsi þótt hún hafi aldrei litið í bók í þessum þáttum, heldur verið upptekin við að láta mömmu sína ræna af sér eiginmönnum og slíkt. Gott ef hún og Ridge (núverandi tilvonandi stjúpfaðir hennar í tíunda skiptið) döðruðu ekki eitthvað hvort við annað þegar í ljós kom að þau voru ekki líffræðileg hálfsystkini.
Handritshöfundar boldsins verða nú að taka ábyrgð á þessu því ekki er hægt að lífga Storm við, nema nota Dallas-Bobby í sturtu-dæmið. Þegar Felicia dó á sínum tíma var hún lífguð við þannig að mamma hennar stal "líkinu" og flutti það á einkaklíník þar sem kraftaverkalæknir og fullt af peningum gerðu hana heilbrigða. Með því að taka hjartað úr Storm eru litlar líkur á slíku ... og þó.

Myndin hér að ofan var tekin á hlaðinu hjá mér um sólarlag í gær í vonda veðrinu þegar hviður á Kjalarnesi fóru upp í 42 m/sek og ófært var á Skagann með strætó eftir hádegi.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.