29. janúar 2010
Þjóðremba á undanhaldi
Gurrí
Það var ógurlega gaman að sjá Þingvelli í fyrsta skiptið á þrítugsafmælinu og skömmu áður komst ég austar en að Kirkjubæjarklaustri, eða nánast alla leið til Hafnar, og sá þá Jökulsárlón með erlendu ferðamönnunum í rútunni og var alveg jafngargandihrifin og þeir. Heimsótti þarna soninn austur á Vagnstaði þar sem hann var í sveit hjá góðu fólki sem munaði lítið um að hýsa og fæða mömmuna þessa helgi.
(Kenny Muir tók þessa flottu mynd af Jökulsárlóni. Ég fann hana á Wikimedia og vona að ég brjóti ekki höfundaréttarlög með því að birta hana.)
Já, ég var illa haldin af þjóðrembu, trúði því að við værum fallegust, klárust og best. Þurfti ekki annað en að líta í spegil til að taka andköf af hrifningu (sem virkar ekki lengur). Ég var bálreið út í Dani fyrir að gagnrýna á sínum tíma frábæru útrásarvíkingana okkar (öfund vegna velgengni þeirra/okkar) og trúði því líka blint að það ríkti góðæri (þótt það væri t.d. löngu hafinn klikkaður sparnaður í heilbrigðiskerfinu sem ekki sér fyrir endann á). Allt er breytt. Núna fer ég hjá mér þegar ég heyri fólk segja: „Við eigum ekki að borga krónu!“ Mér fannst líka frekar óþægilegt þegar íþróttaþulurinn sagði: „Ætla Norðmenn virkilega ekki að leyfa okkur að komast í undanútslit?“ Jamm, svona er maður nú orðinn þroskaður/bugaður ...
- - - - - - - -
Bíóhöllin á Akranesi (og Shell) gefur í dag 240 miða á Avatar á sunnudaginn. Við sonurinn, bæði Facebook-vinir Bíóhallarinnar, skelltum okkur í Skaganesti/Shell til að næla okkur í miða. Ég sagði þessar stórgleðifréttir á Facebook en sumir sem kommentuðu vilja meina að myndin sé ekki neitt neitt nema í þrívídd en mér er alveg sama - á meðan hljóðið er í steríó þá er ég sátt. Hlakka heilmikið til og fannst hálfskrýtið að vera nánast eini núlifandi Íslendingurinn sem hafði ekki séð hana. Hef reyndar ekki farið til Reykjavíkur á þessu ári og á samt eftir að fara með jólagjafir á tvö heimili. Það fara að koma vextir á þessar gjafir er ég ansi hrædd um.
------
Bold-fréttir - sumir ættu ekki að lesa neðar:
Ridge er búinn að reka Storm (bróður Brooke, Donnu og Katie) og biður Ashley, fyrrum kærustu sína, um að hætta að deita Storm, það hafi verið Storm sem skaut Stefaníu (mömmu Ridge). Ashley lofar því. Þau sjá ekki Storm á veitingahúsinu þar sem þau sitja og spjalla, hann er bak við blóm og hreint ekki fallegur á svipinn.
Brooke hótar jafnöldru sinni Taylor öllu illu ef hún hætti ekki að deita Rick (son Brooke). Hún hótar því að láta alfarið taka litla barnið af henni en nú fær Taylor aðeins að hitta Jack litla einstaka sinnum. Minnstu munar að Taylor maríneri sig í brennivíni eftir rifrildið við hina réttu barnsmóður Nicks (sem var eggjagjafi Taylor fyrir mistök) en hún áttar sig og hringir í bjargvættinn Rick. Nick aftur á móti á í vandræðum með dóttur Brooke, hann var kvæntur henni áður en hann gekk að eiga Brooke (fyrrum tengdó hans) og nú vill dr. Bridget taka upp sambandið aftur. Nick hefur aftur á móti hug á Katie, ljóta andarunganum, systur Brooke og Donnu, þeirri sem ekki er ljóshærð. Katie hefur ekki verið þekkt fyrir hvatvísi en þar sem hún býr hjá Nick til að hjálpa honum með barnið (Jack litla) sem hann fékk bráðabirgðaforræði yfir þá á hún sífellt erfiðara með að standast hann, sjóarann síkáta og ríka. Hún rýkur á hann á kyssir. Skammast sín ógurlega og talar endalaust um þetta þar til kemur að því að Bridget, systurdóttir hennar, heyrir eitthvað og fer að spyrja. Katie játar allt og Bridget hin ljóshærða verður eiginlega bara hissa (af því að Katie er dökkhærð) en ekkert hrædd um Nick þótt hann sé búinn að gefa í skyn við hana að þau skuli taka því rólega. Hann hefur þó samrekkt henni a.m.k. tvisvar ...
Phoebe litla, dóttir Ridge og Taylor, er orðin skotin í Rick aftur, einmitt þegar hann er orðinn skotinn í mömmu hennar. Nú ætlar hún í söngferðalag með Konstantín, Idol-sigurvegara, og spyr foreldra sína og Rick (sem hún heldur að sé líka skotinn í henni) sem stödd eru heima hjá mömmu hennar hvort það sé ekki í lagi að hún fari í ferðina. Brooke og Ridge (kærustupar núna) sýna ótrúlega hneykslun þegar Phoebe er farin, og segja Rick (syni Brooke) að þetta séu hrikaleg svik við hana, Rick sé skotinn í mömmunni þegar dóttirin er skotin í honum. Skammmm.
Ég bíð bara spennt eftir því að Tómas, sonur Ridge og Taylor og bróðir Phoebe litlu, verði nógu stór (kannski 18 ára) til að fara að deita kjéddlíngarnar. Dettur helst í hug Jackie (65), mamma Nicks, hún hefur svo flottan breskan hreim ... og er ekki skyld honum, held ég.

















