27. janúar 2010
Fjörutíu ára-álög
Gurrí
Ég gleymdi að segja syninum (sem skutlaði mér) að þarna fyrir framan dyrnar, fyrrum aðalinngang Sjúkrahúss Akraness, hefði ég (8) dottið af hlaupahjóli og fengið gat á ennið. Næstum nákvæmlega 40 árum síðar datt ég (48) síðan á ógæfumölinni bak við íþróttamiðstöðina á leið heim úr strætó (sem var þá ekki farinn að stoppa á Garðabrautinni) og fékk gat á hnéð, eins og alþjóð veit.
Helmingi fleiri spor saumuð í seinna skiptið þar sem læknirinn neitaði að kyssa bara á bágtið. Einhver reyndi að kalla mig hrakfallabálk vegna þessa en kommon, óhapp á 40 ára fresti gefur fólki ekki leyfi til að segja svona. Árið sem ég verð 88 ára ætla ég að klæðast svampbúningi til að ögra þessum álögum með því að taka hvorki strætó né vera á hlaupahjóli allt það ár.
Ætlaði að hlekka á vefmyndavélina (sha.is) sem beinist næstum því að innganginum að blóðprufusetrinu en hún virðist ekki vera virk lengur. Hvenær ætla ég að drífa í því að bjóða bænum að skella slíkri vél á svalirnar mínar alveg frítt? Súperstaður fyrir vefmyndavél. Alltaf brjálað líf og fjör á Langasandinum, vetur sem sumar.
Þennan hálftíma sem ég stoppaði á Skrúðgarðinum í gær komu tveir einstaklingar með erindi ótengd kaffi og cupcakes. Annar ætlaði að kaupa strætómiða, hinn fá að vita eitthvað um strætóferðir um helgar.
Nú er búið að breyta hlutum þannig að fólk þarf að fara á Safnasvæðið (nánast uppi í sveit þar sem strætó gengur ekki) til að fá upplýsingar um spennandi staði á Skaganum (Langasand og svona) og til að kaupa strætómiða og -kort þarf það að fara í Íþróttamiðstöðina Jaðarsbökkum.
Líklega var þetta gert í sparnaðarskyni til að nýta starfsfólk sem var hvort eð er til staðar en þetta hlýtur að vera mjög ruglandi fyrir ferðamenn ... og bitna illa á Skrúðgarðinum þar sem endastöð Rvíkurstrætó er.
Farþegar sem bíða eftir að komast í bæinn nota kaffihúsið sem biðskýli, fara á salernið og vilja láta skipta þúsundkallinum svo þeir geti borgað 840 krónur (NB: fyrir aðra leiðina). Svo verður fólkið grautfúlt yfir því að fá engar strætóupplýsingar þar.
Vonandi verður þessu breytt með tíð og tíma, þetta er svipað og að vera með aðalferðamannamiðstöð Reykjavíkur í Grafarholti og sölustað strætómiða við Hótel Esju en ekki á Hlemmi.
Annars mæli ég heilshugar með Safnasvæðinu, það er alveg stórkostlegur staður. Steinasafnið, gamla stúkuhúsið, Byggðasafnið og fleira og fleira. Innanbæjarstrætó ekur Grundirnar og þaðan væri hægt að labba uppeftir, svona fyrir þá sem eru ekki á bíl, hinir geta bara elt innanbæjarstrætó.
Bæklinga um það hvar Safnasvæðið er að finna - er að finna á Safnasvæðinu ;)
Myndin er auðvitað tekin á Safnasvæðinu eftir stórkostlegt djamm þar með gömlum skólafélögum.

















