Misskilningur um Heiðu Verkfæri í höndum örlaganna ... djúsí þáttur

26. janúar 2010

Herskip á hlaðinu og önnur ævintýri

Gurrí

Mikið hefur sumarfríið liðið hratt. Samt hef ég nánast ekkert gert. Það mest spennandi í fríinu gerðist í morgun þegar ég vaknaði með herskip nánast á hlaðinu, sonurinn segir að þetta sé varðskip en hann hefur vafaust ekki heyrt um Icesave-stríðið. Á myndinni sést þetta vígalega herskip.

Jú, svo fór ég til læknis
í morgun, í annaðhvertár-krabbameinsskoðun sem vegna sparnaðar er að breytast í  áfjögurraárafresti-skoðun. Ég bar mig vel þegar ég kom að afgreiðsluborðinu og sagðist vera að koma í mæðraskoðun. Konan flissaði bara þannig að ég neyddist til að hvísla að henni hvert erindi mitt var. Ég fer alltaf í smáflækju í þau örfáu skipti sem ég fer til læknis. Fyrir sex árum fór ég í sónar í Domus Medica út af stóru æxli (reyndist algjörlega meinlaust) sem hafði komið sér notalega fyrir milli innyflanna á mér. Mér fannst sónarmaðurinn eitthvað svo alvörugefinn þegar hann horfði á skjáinn og sagði mér að þetta væri 16 cm í þvermál. Ég gat ekki stillt mig um að spyrja: „Hvort er þetta strákur eða stelpa?“ Maðurinn leit upp og starði á mig svo ég flýtti mér að segja „Úps, fyrirgefðu, þú hlýtur að heyra þetta rosalega oft.“ „Nei, reyndar ekki,“ svaraði hann og ég skammaðist mín helmingi meira. Það var samt aðeins léttara yfir honum eftir þetta.
Maður á að reyna að skemmta heilbrigðisstarfsmönnum. Þeir vinna göfugt starf fyrir lág laun (flestir) og fá ekkert nema vanþakklæti frá sjúklingum sem kenna þeim um að það kostar t.d. tugi þúsunda að fótbrotna nú til dags. Flestir vita ekki af því hvernig heilbrigiðiskerfið okkar er orðið, ekki fyrr en þeir veikjast sjálfir og þurfa að fara að punga út stórfé, of veikir til að mótmæla nokkru eða vekja á þessu athygli. Þegar læknar rífa kjaft er sagt að þeir séu bara að vernda sjálfa sig. Hnusssss. Það ætti að standa strangasta vörðinn um veika fólkið. Það er búið að efla kostnaðarvitund landsmanna nógu mikið og svo er sagt að þetta eigi bara eftir að versna.

Við kjéddlíngarnar þurftum að fara í hallærislegu "sloppana" sem eru reyndar eins og vítt pils með teygju í mittið. Þröstur í þvottahúsinu vissi ekkert hvað þetta var í fyrstu þegar þetta var sent til hans, held að hann hafi giskað á tau-sturtuhengi ...
Þarna biðum við svo nokkrar „bleikar bollur“ í þessum óskapnaði með teygjuna undir höndunum til að vera siðsamlegar og ég fer ekki ofan af því að eiginkona læknisins hefur hannað þennan hrylling ... hehehe

Læknirinn var alveg frábær, eiginlega meira en frábær.
Gott dæmi:
Ég: Já, en ég er að .....
Læknir: Nei, það er algjör óþarfi.
Ég: Mér var nú sagt að ...
Læknir: Nei, þú ert allt of UNG!
Að sjálfsögðu ríkir trúnaður milli lækna og sjúklinga þannig að ég get ekki birt allt samtalið.
Já, ég elska þennan lækni. Krabbameinsfélagið ætti að taka hann sér til fyrirmyndar og hætta að kalla konur eldri en fertugar „konur á þínum aldri.“ Þar er sagt með fínlegum blæbrigðum tungumálsins að maður sé orðin kjéddling sem er náttúrlega alveg óþolandi þegar maður er bara fertugur. Eftir fimmtugt er það bara sætt og þarf enga tæpitungu þar.

Síðan fór ég, kornung og kát, í Skrúðgarðinn og fékk þá bestu súpu sem ég hef smakkað lengi. Ég er enn pakkkkkksödd þremur tímum síðar. Sonurinn, rígmontinn eftir að hafa fengið 10 í skyndiprófi, fékk sér Pipp-marengstertu og Pepsi. Hann borðar ekkert núna nema það sem byrjar á P-i. Þorrinn alltaf vinsæll hjá honum ... pungar sko. Svo bara pylsur, pasta, perur, Pipp, pítsur, pönnukökur o.s.frv.

Ég kíkti að gamni á úthlutanir Æskulýðssjóðs (menntamálaráðuneytið) síðustu tvö árin. Ég sá að KFUM hafði fengið yfir 5 milljónir þar í hin ýmsu verkefni á þessum tíma og óska þeim til hamingju með það. Já, og yfir 30 milljónir frá ríkinu árlega, heilmikið frá borginni (50 milljónir um árið í Vatnaskóg) og frá fleiri stöðum. Systir mín, sem rekur Sumarbúðirnar Ævintýraland, MÁ EKKI sækja um hjá Æskulýðssjóði þar sem hún starfar ekki allt árið, það er nýjasta afsökunin. Ég rakst nú samt á styrk úr Æskulýðssjóði frá 2008 til þjálfunar leiðtoga í alþjóðlegar sumarbúðir. Held að það megi aðeins fara að lagfæra þetta og hætta að sérsníða styrkina að sumum. Furðulegt að einu sumarbúðirnar sem eru óháðar í trúmálum (og hafa ekki efni á viðskiptafræðingi í fullu starfi við að sækja um styrki) skuli vera útilokaðar frá öllu í rúman áratug en hinir tveir aðilarnir á markaðnum þurfa varla á börnum að halda í sumarbúðirnar því svo miklir styrkir standa þeim til boða. Þeir eiga húsnæðið og þurfa því ekki að borga leigu, lengi vel og kannski enn felldi borgin niður öll gjöld af húsnæði þeirra.
Æskulýðssjóður styrkir leiðtogaþjálfun/sjálfboðaliðaþjálfun, 500 þús. í fyrra, 800 þús í hittiðfyrra (KFUM). Systir mín heldur helgarnámskeið á vorin fyrir alla starfsmenn og fær m.a. sálfræðing til að halda fyrirlestur og fleira og fleira, en þar sem umsjónarmennirnir hennar heita ekki leiðtogar þá er þetta ekki styrkhæft ...

Best væri ef engir styrkir væru veittir, sumarbúðastarfsemi á alveg að geta staðið undir sér nema auðvitað þegar samkeppnisaðilinn fær milljónir til að auglýsa brjálæðislega, kaupa dýr og flott leiktæki, endurnýja húsakost, stjórna verðlagningu og fleira og fleira.
Ég hef farið með Hildu minni á marga fundi. Okkur er alls staðar mjög vel tekið en allar dyr reynast síðan vera lokaðar. Ég batt t.d. heilmiklar vonir við Björn Inga þegar við heimsóttum hann í Ráðhúsið eitt árið, jafnvel þótt hann væri gamall Skógarmaður. Hann var alveg frábær en samt kom ekkert út úr viðtalinu. Það er hart að þurfa að bíða eftir því að krakkarnir í Ævintýralandi setjist í embætti í borginni til að réttlætið nái fram að ganga en samt yrði það bara klíkuskapur sem á ekki að viðgangast.
Þetta hefur skekkt alla samkeppnisaðstöðu gríðarlega en það sem hefur bjargað Ævintýralandi eru vinsældirnar.

Ég tek það fram að pirringur minn beinist eingöngu að ranglátum úthlutunum styrkja.
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.