Á meðan við kettirnir biðum eftir boldinu í dag var sýnt myndband með ungri söngkonu sem söng lagið um músina Heiðu. Hugurinn reikaði beinustu leið til Sauðárkróks þar sem ég dvaldi einn dásamlegan vetur 1974-1975. Ég var 16 að verða 17, mikill hippi, átti Álafossúlpu og gallabuxur, ekki útvíðar eins og var í tísku þá, með hekluðum bótum yfir götum sem ég bjó til sjálf með skærum. Gekk vitanlega undir nafninu Mafíuforinginn hjá hluta skólasystkinanna vegna útgangsins. Ég leigði herbergi hjá frábærum eldri hjónum á Bárustígnum en átti þó ekki orð yfir að þau skyldu hneykslast yfir sjónvarpsmynd um hippa sem bjuggu í kommúnu en ég þráði fátt heitar en einmitt að búa í kommúnu á þessum tíma. Konan átti Guðrúnu frá Lundi komplett og ég las þær allar um veturinn.
Vinkona mín í Reykjavík sagði mér frá nýútkominni plötu sem ég yrði að eignast, byltingarkenndir textar, akkúrat eitthvað fyrir mig. Ég fór í plötubúðina á Króknum og þar sem vinkonu mína minnti að hljómsveitin héti Ábót keypti ég nýútkomna 45 snúninga plötu með þeirri sveit. Ég settist niður og hlustaði með ákefð á lagið um músina Heiðu með rauða slaufu á skottinu, feita en samt svo mikið krútt. Eftir að hafa hlustað margoft (man ekki hvaða lag var á B-hlið) ákvað ég með sjálfri mér að ég væri geinilega ekki jafndjúpt þenkjandi og vinkonan sem hlyti að geta lesið meira út úr textanum en ég. Næst þegar ég heyrði í henni minntist ég á þetta. Hún hló og sagði: „Nei, ekki Ábót, heldur Þokkabót!“
Ég sé þó alla tíð eftir að hafa ekki keypt mér Ginger Baker III sem var til sölu í plötubúðinni á Króknum.
Taylor og Rick hafa greinilega sofið saman þar sem hann var ber að ofan í fyrsta atriðinu í svefnherbergi Taylors og hún á náttsloppnum. Phoebe, dóttir Taylor (og Ridge) og fyrrum kærasta (án kynlífs) Ricks, bankar á dyrnar og Rick þýtur inn í fataherbergið. Phoebe sest á rúmstokkinn hjá móður sinni og talar um hvað hún sé skotin í Rick, hvað hann sé góður og frábær og æðislegur. Taylor og Rick eru í rusli yfir þessu.
Brooke skammar Ashley ilmvatnskonu fyrir að vera enn skotin í Ridge en Ashley svarar fullum hálsi, segir Brooke að velja sér mann og halda sig við hann, hún þurfi að velja á milli Ridge og Nick sem dóttir Brooke, Bridget, er aftur orðin skotin í. Þar sem Brooke er orðin hrædd um Ridge sinn er hún orðin ástúðlegri við hann, mætir til hans í flegnum og stuttum rauðum undirkjól og ærir hann þannig að hann gleymdi fundi sem hann átti að vera á. Storm stormar inn í herbergið sem Ridge er nýfarinn úr og fer að spjalla við systur sína (Brooke). Hún segir honum að hún vilji losna við Ashley úr fyrirtækinu!
Myndin hér að ofan er af konunum sem berjast um Eric, þær Donnu (t.v.) og Stefaníu.
Blogg
Misskilningur um Heiðu
17:53 › 18. janúar 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





