ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.4° 10m/s S
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Harðsvíraður hurðaskellir

21:06 › 16. janúar 2010

Við Skagamenn eigum okkar „Góða hirði“ sem gengur undir nafninu Búkolla og er bak við gamla iðnskólann. Þessa þrjá daga sem opið er í viku má iðulega hitta skemmtilegt fólk, nema kannski núna, þekkti ekki hræðu. Maðurinn sem var á undan okkur syninum inn skellti á nefið á okkur þótt við bærum bæði kassa í fanginu með ýmsu dóti til að gefa, hann bauð þó kurteislega góðan dag áður. Hann má eiga það.
Þarna mátti finna sjónvörp á allt að þrjúþúsundkalli, sófasett, tölvur og prentara í svipuðum verðflokki og ... bækur á 100 kall. Ég hringdi ofsaglöð í vinkonu mína frá einni bókahillunni, ég fann nefnilega bók sem hana vantaði í safnið, Fjallahótelið eftir Phillis Whitney. Hún minnti mig á að ég hefði reyndar fundið hana fyrir hana í Kolaportinu fyrir einhverjum árum, hana vantaði aftur á móti Í skugga fortíðar eftir sama höfund. Þar sem bókum er raðað á dásamlegan hátt í Búkollu nægði mér að fara í gegnum Í-in. Hún var því miður ekki til. Prófa aftur um næstu helgi. Ég keypti að gamni gamla bók sem ég skemmti mér konunglega yfir þegar ég var við það að verða unglingur. Kastalagreifinn heitir hún og er eftir Viktoríu Holt. Ég er spennt að vita hvernig hún hefur elst, hvort ég hafi kannski elst. Kemst að því í kvöld. Ég kenni þó Barböru Cartland meira en Viktoríu um endasleppt hjónaband mitt.

Við komum næst við í Skrúðgarðinum og fjárfestum í kaffi, súkkulaði og svívirðilega girnilegum möffinskökum til að taka með okkur heim. Ég fylltist valkvíða, hvort átti ég að fá mér möffins með gulu, bleiku, bláu, grænu, brúnu eða hvítu kremi? Gult varð fyrir valinu en sonurinn valdi möffins úr gulrótardeigi og með hvítu kremi. Alltaf þarf hann að vera öðruvísi, það vantar alveg hjarðeðlið í hann. Fórum að síðustu á bensínstöð til að kaupa kattamat og þar mættum við karlinum sem skellti á nefið á okkur hjá Búkollu. Ég galopnaði dyrnar fyrir honum og hneigði mig djúpt í huganum þegar ég hleypti honum út og vona að hann hafi lært mikið af þessu þótt ég efist um það. Kannski er karlinn þiggjandi í eðli sínu en alveg pottþétt siðblindur flatskjáreigandi.

Heyrði áðan í dásamlegri konu sem er tæplega fertug að aldri. Hún fer daglega í sund og nýtur þess að liggja í heita pottinum á meðan börnin hennar ærslast í lauginni.
Hún sagði um síðustu sundferð: „Ég sat í mestu makindum í heita pottinum, lygndi aftur augunum og naut þess að vera alein þarna. Ég fór að hugsa um hvernig mann ég myndi velja mér ef ég væri á þeim buxunum. Ég ákvað með sjálfri mér að hann ætti að vera fyrst og fremst hress, vinmargur, skemmtilegur og barngóður. Svo heyrði ég að einhver kom niður í pottinn og settist andspænis mér. Ég opnaði augun og sá ... Hemma Gunn.“

Rick, sonur Brooke og Erics
(sem er pabbi Ridge og Thorne), fékk bréf þar sem stóð m.a..: „Ég veit að aldursmunurinn er mikill en ég elska þig og vil elskast með í kvöld. Komdu. Ég (undirskriftin)“.
Vitanlega hélt Rick að bréfið væri frá Taylor (geðlækninum með varirnar, fv. konu RIdge og mömmu tvíburanna (Phoebe og Steffí) og Tómasar) og varð ofsaglaður þar sem hann er svo skotinn í henni. Hann mætti á staðinn og þá kom í ljós að gamla kærastan hans, Phoebe (dóttir Taylor og Ridge (sem er bróðir Ricks, ekki blóðskyldur þó, og enn og aftur mögulega tilvonandi stjúpfaðir þar sem Brooke og Ridge eru trúlofuð) hafði sent honum bréfið. Hún tók á móti honum í mjög, mjög stuttum kjól. Hún varð mjög glöð þegar RIck kom og sagðist alltaf hafa elskað hann þótt hún hafi sagt honum upp, nú væri hún fyrst tilbúin til að sofa hjá honum. Rick var að hugsa um að segja henni að hann elskaði mömmu hennar, Taylor, en svo bara kom Taylor óvænt og spurði hvað gengi á. Þegar Phoebe hugaði að matnum frammi í eldhúsi sagði Rick Taylor hið rétta og að dóttirin yrði að fá að vita sannleikann. Taylor má ekki heyra á það minnst. Hún vill ekki verða eins og Brooke, mamma Ricks, sem tvisvar hefur stungið undan aumingja Bridget, dóttur sinni, og þar af eignast barn (Hope litlu) með öðrum tengdasyninum (Deacon) og reyndar óbeint með hinum, Nick, eða barnið sem Taylor gekk með og vissi ekki frekar en aðrir að Brooke væri eggjagjafinn.

Nú er Bridget farin að reyna aftur við Nick sem hún var gift þar til mamma hennar tók hann frá henni og síðar giftist Taylor honum og eignaðist barn með honum sem, eins og áður sagði, reyndist vera af eggi Brooke vegna mistaka Bridgetar á spítalanum. Eðlilega heldur Brooke að Taylor sé að hefna sín á henni með því að táldraga Rick. Sjálf er hún að deyja úr afbrýðisemi út í Bridget. Hugur Nicks er þó hjá systur Brooke, henni Katie, þessari sem er dökkhærð en samt ekkert svo ljót. Lítur þó á sig sem ljóta andarungann þar sem Brooke og Donna, systur hennar, eru ljóshærðar gellur.

Já, Donna greyið. Hún ætlar að fara að giftast Eric, pabba Ridge og Thorne sem hún var næstum búin að giftast (þ.e.a.s. Thorne) en systir Stefaníu, fyrri konu Erics og mömmu R og T, sem laumaði sér í vinnu hjá Forrester-tískuhúsinu, gerir hvert hrekkjabragðið á fætur öðru til að gera Donnu lífið leitt. Hún fiktaði í tækjunum í sólbrúnkuklefa sem Donna fór í þannig að það sprautaðist endalaust sólbrúnkuefni á Donnu sem er ekki bara brún, heldur kolbrún. Svo tókst henni lævíslega að skipta á hárlit og tannhvíttunarefni þannig að hárið á Donnu varð grænt og tennurnar brúnar. Systir Stefaníu er að reyna að sýna Eric hvað Donna er yfirborðskennd og pjöttuð drusla og að hann ætti frekar að halda sig við Stefaníu, eiginkonu til 50 ára eða svo.

Ég held að það sé stutt í að Storm, bróðir Brooke, Donnu og Katie, deyi, hann er gerður að svo gífurlega miklum engli. Maður klökknar í hvert sinn sem hann kemur á skjáinn. Mark my words!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.