Mikið er gott að vera í sumarfríi á þessum tíma. Enginn tími fer til ónýtis, engin hættuleg sólböð á svölunum, enda hefur himnaríkisfrúin slæma reynslu af þeim. Hér er aðallega sofið frameftir, lesið og nú er nýjasta David Baldacci-bókin, First Family, sem fangar hugann. Einhverjar íslenskar jólabækur eftir þó en nægur er tíminn.
Þeir sem hafa áhyggjur af því að fólk geri ekkert í fríinu sínu þurfa ekki að stressa sig yfir mér. Einu sinni fór ég í Evrópuferð í sumarfríinu mínu, í kórferð. Við sungum víða um Austurríki, Þýskaland og Ítalíu og enduðum á sólarströndu í Riccione þar sem flestir lágu í sólbaði og slökun. Ég hef aldrei komið jafnþreytt úr nokkru fríi og fannst arfaslæmt að hafa ekki getað átt eins og tvo daga í að slaka á.
Margt hefur gengið á, sérstaklega í boldinu reyndar, frá síðasta bloggi. Nú kann ég að búa til guðdómlegar fylltar kalkúnabringur með öllu og þegar jólunum var slúttað hér í gær, á átjándanum, gerði ég allt nákvæmlega það sama nema úr kjúklingabringum. Mesti snilldarmatur í heimi. Takk, Jói Fel., takk Stöð 2.
Sonurinn er byrjaður á fullu í skólanum og er alsæll. Hann heitir ekki lengur erfðaprinsinn þar sem hann mun ekkert erfa nema kannski skuldir. Þökk sé verðtryggingunni. Ég aftur á móti er að hugsa um að detta inn í kraftaverkalausn forsetans sem, eins og einn Facebook-vinur minn setti á statusinn sinn í dag, læknar allt frá gjaldþrotum til særðs þjóðarstolts. Hmmmm ... sjúr.
Brooke er búin að komast að því að sonur hennar, Rick, elskar Taylor og er í rusli yfir því! Taylor sem hefur barist í gegnum áratugina við Brooke um ástir Ridge. Ridge, sem er á föstu með Brooke núna, fer og talar við fyrrum konu sínu, Taylor um þennan hrylling (aldursmun) og hún segist ekki elska Rick. Rick var að koma inn úr dyrunum með blómvönd og heyrir þetta auðvitað þar sem allir snúa alltaf bökum í dyrnar í boldinu og verður voða sár. Allt er gert til að passa að Phoebe litla, dóttir Taylor og Ridge, frétti þetta ekki þar sem hún deitaði Rick um skeið, held þó að þau hafi ekki sofið saman.
Donna er komin á blýfast með Eric eftir að Stefanía, kona Erics, hætti við að hóta Storm fangelsi en það var einmitt Storm sem reyndi að myrða Stefaníu með því að skjóta hana. Systir Stefaníu ætlar aftur á móti að reyna að bjarga hjónabandi systur sinnar, reynir að hræða Donnu, jafnvel drepa hana. Doktor Bridget er farin að reyna við Nick aftur eftir skilnað hans og Taylor. Hún vill líka hjálpa honum með barnið sem er reyndar litli bróðir hennar þar sem Taylor gekk óvart með barn úr eggi erkióvinarins Brooke eins og allir vita. Fleiri fréttir á næstu dögum.
P.s. Myndin var tekin við sólsetur á nýársdag.
P.s. 2, viðbót kl. 16.50: Langar að benda á þennan dásamlega jólastresspistil:
Blogg
Sumarfrí, matargerðarsnilld og bold
14:26 › 12. janúar 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
