Til að ná svona snilldarsamsetningu á mynd þarf tvennt:
1) Skilti með "Reykjavík" á annarrri hliðinni og þessari áletrun á hinni.
2) Frekar einfalda frænku.
Þetta var að finna á statusi Halldórs fjanda á Facebook fyrr í sumar. Hann gat þess reyndar ekki að við næstum lágum á jörðinni veinandi af hlátri yfir þessu gríni sem mér datt síst í hug að endaði á Facebook. Ég trúi líka alltaf á hið góða í manninum, eða trúði.
Ég fékk reyndar heilmikla samúð frá fólki sem kommentaði hjá honum ...en hann, fyrir röð mistaka, lenti í höfundateymi áramótaskaupsins!
Nýlega skrifaði hann fyrir neðan mynd af skjaldböku:
„Skýringin á biðinni er komin ... það er verið að slá skjaldböku um heimilin.
Þið getið kíkt á kvikindið hérna: http://www.facebook.com/dorinn
Síðast þegar ég vissi var síðan hans opin.
Annað:
Ég gleymdi að horfa á boldið í dag, ég hlustaði á Tvíhöfða á Kananum og skemmti mér konunglega. Vandamál Forresteranna urðu hjóm eitt við hlið vandamála þeirra sem hringdu inn, eða t.d. kennarans (reyndar búinn að missa réttindin) og 16 ára eiginkonu hans sem neitaði að fara í skólasetninguna í menntaskólanum sem hún var að byrja í. Ekki nokkur leið að láta hana gera það sem hún vill ekki, hún um 200 kg að þyngd og 1,57 m á hæð. Vesenið mikla með tengdaforeldra hans sem hafa reynt að siga Barnavernd á hann og hvaðeina ... en ástin spyr ekki um aldur. Og þau eru gift, eða vinur hans, fyrrum lögreglumaður, sem hann kynntist við að þrífa rútur einu sinni, gaf þau saman, sagðist hafa leyfi til þess. Tengdamamma hans er eitthvað að linast vegna sambandsins þar sem hann kom stelpunni í gegnum samræmdu prófin í vor en tengdapabbi er alltaf jafnbrjálaður! Og hringingin frá manninum sem bauð sig fram til að hugga fólk í kreppunni, helst vildi hann að það væri nakið og ekki karlkyns. Og konunni sem "fékk það" þegar hún heyrði loks aftur í Tvíhöfða ... Svo var viðtalið við Hugleik Dagsson líka bráðskemmtilegt.
Skal horfa á boldið næsta laugardag um leið og ég hlusta á Tvíhöfða. Konur geta gert fleira en eitt í einu, eins og leynilega skjalið heitir sem inniheldur snilldaráætlunina um að láta konur gera meira en karla og vera samt hreyknar af því!





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
