ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Grömpí kjéddlíng og Davíðs-furðutilviljun

21:24 › 21. september 2009

Þegar ég skoppaði niður Hálsaskóginn í dag í rigningunni á leiðinni á stoppistöðina við Vesturlandsveg (sjá mynd) hitti ég Skúla, fyrrum strætóbílstjóra á Skagavagninum. Hann var eiturhress og hefur undanfarið keyrt flugvallarrútuna.
Ó, hve ég sakna gömlu góðu daganna þegar strætóinn minn var númer 27, ekki 57, Skúli keyrði vagninn, fargjaldið var MIKLU lægra, engin kreppa ríkti og allt var svo gott. Ef Skúli myndi nú byrja aftur hjá okkur þá veit ég að allt kæmist í fyrra horf.

Fór inn á bensínstöðina og beið með harðfiskpoka fremst í þriggja manna biðröð en ein stúlka var við afgreiðslu. Önnur afgreiðslustúlka kom trítlandi og þegar ég ætlaði að fara að kassanum hennar var maðurinn aftast í röðinni búinn að koma sér fyrir þar. „Hrmpf,“ hnussaði ég gribbulega. Þegar ég sá óttasvipinn á unga manninum og flóttalegar hreyfingar þegar hann forðaði sér, áttaði ég mig á því að ég er orðin ein af þessum grömpí kjéddlíngum sem allir yngri en 50 ára óttast. Ég reyndi að setja upp ljúfan svip konu sem enn er á fimmtugsaldri og sagði afsakandi: „Ehhh, ég er alveg að missa af strætó ... og hann gengur sko bara á klukkutíma fresti.“ Maðurinn reyndi að segja eitthvað töffaralegt til að falla ekki í áliti hjá manninum sem stóð á milli okkar í biðröðinni en ég heyrði auðvitað ekki hvað það var. Hingað til hef ég brosað góðlátlega þegar einhver treður sér framfyrir mig í biðröð og sagt takk. Hvað er að koma fyrir mig? Í hvað er ég að breytast? Og ég var ekki einu sinni pirruð. Það var of seint að skella í daðurgírinn, enda er ég svo sem hætt öllu slíku, það virkar orðið betur að hóta daðri. Sagði Míu systur frá þessu en hún fór með Sigþóri á Fúlar á móti um helgina.Hún sagðist kannast við þessi einkenni mín úr leikritinu. Hún virtist mjög áhyggjufull í símanum en náði samt að segja að þau hefðu grenjað úr hlátri allan tímann.

Sá skemmtilega DVD-mynd í gær, Love you man, og síðan dásamlega sænska kóramynd á RÚV. Þegar ég skrönglaðist í himnaríkissturtuna í morgun, að drepast úr grútsyfju, fannst mér samt þess virði að hafa vakað svona lengi.

Bíllinn hennar Hildu systur er víst í döðlu/köku/krambúleraður. Einkabílstjórinn hennar, Davíð, var undir stýri og endaði sem áleggið í samloku á þessum fyrrum annars fína bíl sem orsakaði tár í augum hirðbifvélavirkja Hildu sem sagðist þá ekkert sjá hana næstu árin(eftir að hún keypti sér Toyota). Davíð rétt náði að stoppa bílinn (nr. 2) fyrir aftan annan (nr. 1) sem hafði snarstoppað. Á meðan þau mæðgin sögðu „Sjúkkitt“ kom annar bíll (nr. 3) og klessti Hildubíl harkalega á bíl nr. 1. Svo harður árekstur að númerið á Hildubíl festist við nr. 1. Í sjokkinu fíflaðist Hilda bara og talaði um undarlegar aðferðir við að ná bílnúmerinu ... og slíkt. Hún er þrælaum í skrokknum, blessunin. Vona að tryggingafélag ökumanns á bíl 3 eigi smásjóð eftir til að borga bílinn. Hilda fór samt í skólann eins og sönn hetja og heldur saumaklúbb í kvöld.

Eitt mjög undarlegt ... Daginn sem Davíð frændi var skírður (1989) fór ég og sótti skírnartertuna í Álfheimabakarí við Hagamel. Þar var staddur sjálfur Davíð Oddsson að kaupa sér gúmmulaði ... og það er eins og við manninn mælt, hann er orðaður við ritstjórastöðuna á Mogganum sama dag og nafni hans, Davíð frændi, lendir í árekstri. Ég er með gæsahúð.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.