ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Brjálað bold og Akranes-Hálsaskógur

20:00 › 11. september 2009

Nú er allt orðið vitlaust í boldinu - enn einu sinni.

Eric, maður Stefaníu, endurheimti Forrester-fyrirtækið, eins og allir vita, og blés til sýningar á nýjustu tískulínunni. Nýja konan í lífi hans (já, hann ætlar að skilja við Stefaníu), Donna (sjá mynd), systir Brooke, veitti honum innblástur við sköpunina og í sýningarlok átti hún að taka við heiðrinum með honum. Stefanía áttaði sig á því að þetta gæti orðið hneyksli og eyðilagt áhrif sýningarinnar og ákvað að gera eitthvað til að koma í veg fyrir þetta. Börn þeirra Erics, Felicia og Thorne (sem Donna næstum giftist um daginn til að hefna sín á Stefaníu fyrir að hafa valdið því að Brooke var nauðgað), voru sammála henni og gripu til sinna ráða á meðan tískusýningin stóð yfir. Þau tóku Donnu með valdi og læstu hana inni í gufubaðsklefa með þeim afleiðingum að maskarinn lak niður andlit hennar - hroðaleg sjón. Undrandi Eric lét þó sem ekkert væri í sýningarlok þegar Stefanía birtist á sviðinu í stað Donnu og tók við fagnaðarlátunum með honum.

Donnu var bjargað úr gufunni og fékk strax þær skelfilegu fréttir að sýningunni væri lokið. Hún trylltist og allt hennar fólk sem lét hatur sitt á Stefaníu í ljós. Stefanía var áður búin að láta vísa Jackie, mömmu Nicks, út af sýningunni og hafði látið eins og hún ætti allt þarna. Nick seldi þó Eric fyrirtækið með því skilyrði að Stefanía fengi ekki að vera með og að Eric skildi við Stefaníu ...

Stefanía var ein í sýningarsalnum eftir að sýningunni lauk, slökkti ljósin og þá BANG, einhver skaut hana. Donna, búin að þurrka maskarann af kinnunum, kom að henni, sneri henni við og sá blóð. Hún fékk auðvitað taugaáfall og gargaði, Eric kom inn og hélt fyrst að Donna hefði skotið Stefaníu. Kvenlegt taugaáfallið varð til þess að Donna gat ekki sagt hið sanna alveg strax ... en hver er sannleikurinn svo sem? Svo margir hugsuðu Stefaníu þegjandi þörfina.

Kallað var á lögreglu og sjúkrabíl, og mig grunar að aðeins einn lögreglumaður vinni í Los Angeles, þessi svarti sem hefur mikið reynt að koma m.a. Stefaníu, Ridge og Taylor í fangelsi fyrir ýmis brot, Stefaníu fyrir að hrinda Jackie niður stiga (sem hún gerði ekki), Ridge fyrir að hafa myrt flakkarann/garðyrkjumanninn/vitnið sem áreitti Phoebe, dóttur hans (sem hann gerði ekki), og Taylor fyrir keyra undir áhrifum og drepa konuna hans Thorne (sem hún gerði). Flakkarinn var vitni að því.

Eitt mjög grunsamlegt: Jackie, mamma Nicks, pakkaði niður og flúði úr bænum. Það segir svo sem ekki allt, mjög margir liggja undir grun, t.d. pabbi Brooke og Donnu (Bobby í Dallas), Nick sjálfur, Brooke og fleiri. Ég sá þáttinn ekki nógu vel og lengi til að geta tékkað á fjarvistarsönnunum ...

Strætófarir hafa verið með miklum ágætum undanfarið. Stóri strætó frá Akranesi er nánast fullur á morgnana og líka aukabíllinn, bara frábært og farþegum frá Kjalarnesi hefur líka fjölgað. Borgfirðingarnir okkar keyra saman niður á Skaga og taka vagninn þar eftir að Borgarnesvagninn hætti að ganga. Þeir eiga alltaf inni hjá mér kaffi, svona þegar veður gerast sérlega válynd undir Hafnarfjalli eða í góðu veðri. Annar stundar sjósund á fullu, veit ekki með hinn (kvk). Ég get boðið upp á pakkann sjósund-kaffi, enda örstutt á Langasandinn frá mér.

Leið 19 frá Ártúni venst ágætlega
og líka göngutúrinn frá landamærum Árbæjar niður í Hálsaskóg, enda hefur veðrið verið gott og maður sér bílana enn vel þegar farið er yfir göturnar hvernig sem það verður þegar stórhríðirnar geisa í vetur.

Ég hringdi í Strætó bs um daginn og átti fróðlegt og gott samtal við starfsmann þar. Hann tjáði mér að leið 18 færi ekki framar í gegnum Hálsaskóg þar sem íbúar Grafarholts hefðu kvartað yfir því að þurfa að hossast í gegnum hluta Árbæjar og "iðnaðarhverfi" á leið sinni heim. Ég er mjög ósammála þessum íbúum og skil ekkert í Strætó ... (undrunin kom eftir símtalið, sumir lengi að fatta)
Ég hossast þvílíkt í gegnum heilu íbúðahverfin (Akranes, Kjalarnes, Mosfellsbæ, hluta af 110 Rvík) á leið minni til vinnu og finnst ekkert athugavert við það. Strætó er til að flytja fólk að heiman í skólann eða vinnuna (t.d. Hálsaskóg) og síðan úr vinnu og heim. Auðvitað þarf að fara í gegnum "iðnaðarhverfi" og íbúðahverfi, það er eðli strætó, hélt ég. Kannski leiðinlegt um helgar og á kvöldin þegar allir eru í fríi. Hálsaskógur er einstaklega stórt atvinnusvæði þar sem ábyggilega mörg hundruð manns vinna en það er aðeins þægilegt fyrir íbúa Grafarholts, Grafarvogs og Árbæjar að vinna þar en leið 26 gengur þar á milli en kemur ekki nálægt Ártúni, Hlemmi eða slíkum aðalstöðum.

Góði maðurinn hjá Strætó talaði um að það væri í athugun að fimman færi kannski niður í Hálsaskóg, það væri nú gott, svona ef hann verður á sæmilegum tíma í Ártúni (ekki nýfarinn). Fyrir virðulega frú í 5%móherkápu er frekar ódannað að hlaupa á fullu niður milljóntröppurnar, undir brúna og mása upp lúmsku brekkuna til að ná fimmunni. Lenti stundum í því þegar ég þurfti að taka leið 18 í árdaga Skagastrætó sem gekk þá alla leið í Ártún (fyrsta ferð) og var varla mínúta sem ég hafði til að komast þetta - upp á líf og dauða, verst í djúpumsnjó. Já, maður á sko spennandi minningar.
Ég dauðsé annars eftir því að hafa ekki beðið indæla strætómanninn um sérleiðina Akranes-Hálsaskógur ... hann var í því stuðinu heyrðist mér, og vildi greinilega gera allt fyrir svona tryggan farþega (til 30 ára).



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.