ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 7m/s WSW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Andi liðinna vagnstjóra og varúð á fésbók

10:02 › 24. ágúst 2009

Veturinn hófst í himnaríki í morgun, eða því sem næst, þar sem gammósíurnar úr Ellingsen, ætlaðar sjómönnum og strætófarþegum, voru teknar fram og dustað af þeim sumarrykið.
Engir Borgfirðingar voru með í för í morgun, sýndist mér, nema Heimir á aukabílnum hafi nappað þeim eða gleraugun mín of dauf fyrir farþega sem sátu aftarlega í stærri bílnum. Nú er Borgarnesvagninn hættur að ganga vegna kreppunnar ... farþegar voru líka svo fáir því að fargjaldið var haft alllllllt of hátt, eða stakt fargjald aðra leið rúmlega 1.100 krónur!

Ég fór ekki í sexuna eins og venjulega
við komu til Mosó (enda Andri hættur), heldur hossaðist í gegnum Mosó með leið 15 troðfullri af skólakrökkum. Ég vildi ekki vera komin of snemma í Ártún þar sem leið 18 átti að vera þar korter fyrir átta. Eða hefði átt að vera þar ... Búið er að breyta leiðakerfinu og fólk eins og ég sem hef haft sömu auglýsingarnar fyrir augunum í strætó lengi, lengi (frá áramótum um það hversu ódýrt það sé í raun að taka strætó frá Skaganum eftir 200% hækkuna sl. áramót) þá var ég ekki búin að taka eftir þessu með leið 18 sem fer nú eftir Vesturlandsveginum (eins og leið 15) í Bauhaus og Grafarholt, Ég var búin að missa af leið 19 og leið 26 sem fer þarna líka stoppar ekki í Ártúni (fokk). Jamm, endilega þið sem lesið þetta blogg og sjáið um breytingar á leiðakerfinu samkvæmt því ... hér kemur orðsending:  Það myndi koma mér einstaklega ILLA að geta tekið vagn um 7.30 leytið frá Ártúni og upp í Hálsaskóg (Lyngháls/Krókháls). Þannig að ykkur er óhætt að skella einum vagni þangað án þess að það komi mér nokkuð vel.

Eins gott að ég komst að þessu í tíma, ég held að andi liðinna vagnstjóra hafi hvíslað að mér að kíkja á tímatöfluna sem hékk uppi. Annars hefði ég lent í ljótum málum, langri bið og röngum áfangastað! Ég þurfti að klöngrast yfir glerbrot þar sem einhverjum asna hafði dottið í hug að brjóta eitt stykki biðskýli um helgina. Kannski sama fíflið og braut Fréttablaðskassann okkar við Höfðabraut á Akranesi! Náði að stökkva upp í leið 15 á síðustu stundu og fara áleiðis í vinnuna.

Á göngu minni frá bensínstöðinni á Vesturlandsveginum í vinnuna áttaði ég mig á því að við erum algjörlega sjálfbær í Hálsaskógi. Andlegt fóður fæst hjá Birtíngi, malt og appelsín kemur frá Egils, líkamlegt fóður frá Nóa Síríus, hollustan frá Grænu og gómsætu, gervilimir frá Össuri og allt hitt frá Rekstrarvörum.

Eigið góðan dag, dúllurnar mínar og til hamingju með haustið!

P.s. Farið varlega á Facebook. Sjá: http://imgur.com/Q6umM.png



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.