ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Rúsínubrauð í afmælisgjöf og fleira stöff

22:16 › 14. ágúst 2009

Ahhh, það er svo fínt í himnaríki að maður þorir ekki að hreyfa sig. Ekkert ryk sem þyrlast upp við hnerra eða óhreinir sokkar sem lifna við og þarf að drepa. Smáýkjur, við breyttum aðeins í stofunni og hún virkar stærri og er flottari svona. Engir leisíbojar eða -girls lengur úti á miðju gólfi og stoppa kettina við músa- og rottuveiðarnar. Sjá mynd.

Ljúf strætóferð í morgun undir klukkan sjö og óvenjumargir farþegar, flestir við það að koma úr sumarfríi, held ég. Á skrifborðinu í vinnunni beið mín ýmislegt skemmtilegt (ég vinn með besta fólki í heimi). Því miður var ég ekki með myndavélina ... en Guðrún (ein af fimm eða sex Guðrúnum fyrirtækisins) hafði bakað handa mér tertu, ekki prinsessutertu, heldur gítartertu rosa flotta. Ekki leyndist súkkulaðikaka undir súkkulaðiglassúrnum og nammiskrautinu eins og allir héldu, heldur æðisleg hollustuterta með m.a. banönum og haframjöli. Tertan átti að mæta í afmælið sjálft með bakaranum sem forfallaðist þannig að samstarfsmenn nutu góðs af, restin af gítarnum er þó komin heim.
Einnig beið á borðinu æðislegt blóm, vökvunarbrúsi, drykkjarkanna með mynd af froski á, súkkulaði og sælgætisskál, einnig var ég kysst mikið, m.a. af Illuga Jökulssyni og Eiríki Jónssyni, geri aðrir betur að fá kossa frá þeim yndislegu mönnum. Erfiður dagur mun léttbærari fyrir vikið. Svo kom sonurinn brunandi í Lynghálsinn um sexleytið, skilaði fyrst risahitakönnum sem ég hafði fengið lánaðar og svo var það bara elsku Skaginn minn.

Góðir vinir mættu með sniðuga afmælisgjöf, nýbakað rúsínubrauð (og gómsætt hvítlauksbrauð) frá Jóa Fel fyrir okkur soninn til að gæða okkur á daginn eftir afmælið (hafa fundið á sér að það yrðu engir afgangar). Rúsínubrauðið rifjaði upp hroðalegrar æskuminningar þar sem ónotaður koppur, rúsínur á gólfinu, ég bleiulaus á öðru árinu, pabbi og stórasystir sem tróðu í sig "rúsínum" og svo kom skelfingarsvipur á þau ... svipur sem boraðist inn í heilann á mér og olli ævilöngu ógeði á rúsínum. Hvítlauksbrauðið var hins vegar einstaklega gómsætt.


Aðeins meira bold:
(byggt á sögusögnum):
Stefanía vill endilega hitta Brooke og biðja hana afsökunar á því að hafa orsakað nauðgunina með stjórnseminni og kænskubrögðum en allir ráða henni frá því. Hún fer samt og uppsker öskur og óhljóð ("komdu þér út!") frá tilvonandi og margoft fyrrverandi tengdadóttur sinni.
Ashley er enn í Paris til að gefa Ridge tilfinningalegt svigrúm sem Brooke notfærir sér óspart og er eiginlega búin að negla Ridge, enda eiga þau barn saman ...
Taylor er enn í sjokki yfir að hafa eignast barn erkióvinarins til áratuga, eða Brooke, sem ber án efa miklar tilfinningar til þessa fyrrum eggs síns sem átti reyndar bara að nota til rannsókna ... döhhh.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.