ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Afmælisfréttir og blessað boldið

17:20 › 13. ágúst 2009

Þrátt fyrir boðskortaleysi og "allt á síðustu stundu"-undirbúning
vegna langdregins þursabits (í hálfan mánuð) tókst að halda afmælishóf
í himnaríki í gær. Ég hef ítrekað við fólk í rúm 20 ár að þegar það
hefur einu sinni komið þá sé því sjálfboðið, nema kannski konunni sem
hélt ræðu í afmælinu fyrir nokkrum árum en það er stranglega bannað,
eins og skemmtiatriði.

Mamma og Erna í EinarsbúðHér á fólk að skemmta sér, barnlaust ef hægt er
að koma því við.

Ekki bauð ég t.d. aldavinkonu minni Boggu en hún mætti
nú samt með eiginmann og nýbakað kryddbrauð (og svo gafst ofninn hennar
víst upp).

Ég notaði reyndar Facebook til að pikka í gleymið fólk og
það borgaði sig ... en ekki eru samt allir vinirnir þar.


Bjarni og EinarHeimtur urðu
þó ansi góðar
, eða 70 manns sem er flott miðað við árstíma og búsetu á
landsbyggðinni. Vinir og ættingjar mættu flestir um og upp úr fjögur en
nokkrir komu seinna í leifarnar ...

Rauði krossinn á Akranesi lánaði mér kaffikönnu, stóra og vígalega, og
fengu skvísurnar þar restina af veitingunum fyrir vikið núna í
hádeginu, varla upp í nös á ketti þó.



Óskar, Hrund og Erna úr vinnunniÁ kökunnni stóð:

Þrautseigjuverðlaunin 1989-2009

Hjúskaparmiðlun Hjördísar

Smástafsetningarvilla gerði tertuna reyndar enn betri en hún kláraðist
rétt eftir kvöldmat, þá var stóra brauðtertan löngu búin. Nanna kom með
hindberjasúkkulaðiköku, Einar strætóvinur með skúffuköku, Bogga með
kryddbrauð og Púsla með ricekrispísmuffinskökur. Míu systur var falið
að búa til rækjubrauðtertu en í vinnsluferlinu breyttist hún í algjöra
hollustubrauðtertu, tófú, sýrður rjómi, hvítlaukur og slíkt sem vakti
mikla lukku og var einstaklega gómsætt.

Einkabarnið mitt (ég er hætt að kalla hann erfðaprinsinn þar sem hann
erfir ekkert vegna bankahrunsins) sá algjörlega um eldhúsið;
uppáhellingar og aðrar reddingar.


Vestmannaeyingarnir Elva, Raggi ogGuðjónÉg skildi Facebook-síðuna mína eftir opna í gær, enda hélt ég að
ég þekkti bara sómafólk. Halldór frændi settist við tölvuna mína og
skellti inn í mínu nafni: „Allt í lagi að fá kveðjur, ég er meira fyrir gjafir samt.“
sem var frekar meinlaust miðað við kvikindisskapinn úr þessarri átt.
Vona að leiðrétting mín skömmu síðar hafi bjargað mannorðinu. Sá
Halldóri bregða fyrir skömmu síðar arka í átt frá vinnuherberginu (þar
sem mátti reykja, en hann reykir ekki) og skipaði honum að gera ekki
fleiri skammarstrik. „Of seint,“ sagði hann, „þú ert komin út úr
skápnum!“

JónatanEkki nóg með þetta,
heldur kom heill mávur í heimsókn á svalirnar. Raggi, sem var nýbúinn
að skamma mig fyrir að kalla Halldór frænda fjanda spurði mig hvort ég
ætti nokkuð byssu ... en á þessu heimili drepum við fólk með orðbragði,
ekki byssum, múahahaha.



Afmælisgjafir voru einstaklega flottar
... stórkostlegar alveg.
Dekur-baðdót, konfekt, skart, stjarna (já, alvörustjarna í
himinhvolfinu sem mun heita Gurrí), snyrtivörur (hrukkukrem og svona),
myndarammar, bækur, tónlist, kertastjaki, svæðanuddsokkar, risastór
englastytta, blóm á svalirnar,) klútur/trefill, minnisbók,
Starbucks-kaffi, prjónaðir inniskór og fleira flott. Ég hef þroskast,
áður fyrr reif ég gjafirnar upp jafnóðum en nú geymdi ég það þar til
eftir á og í morgun opnaði ég restina. Kubbur köttur prílaði upp á
gjafahrúguna sem datt beint í gólfið (ekkert brotnaði), það varð til
þess að kort og gjafir aðskildust, held samt að ég viti nokkurn veginn
frá hverjum hvað er, er í smávafa með stjörnuna og einstaklega fallegt
túrkísarmband. Get ekki lýst þakklæti mínu, það má nefnilega alveg koma í
afmælið án gjafa ... afmælið er eina partíið sem ég held á ári hverju
og kemur líka í stað jólakorta. Ég er ekkert sérstakur kokkur og held
því aldrei matarboð. Hef reynt að segja syninum að það væri snjallt ef
hann færi í kokkanám en hann þráast við.


RIDGEEinn afmælisgesturinn, búsettur í útlöndum, bað mig um að bolda
oftar, þar sem hann sér ekkert bold heima hjá sér, og hér kemur smá
uppfærsla. Ég var reyndar búin að bolda einhver ósköp fyrir nokkrum
dögum en færslan datt út áður en ég gat vistað og birt. MJÖG spælandi.
Best að reyna aftur þótt ég hafi misst af nokkrum þáttum. Eins og
aðdáendur boldsins vita skiptir það þó ekki öllu máli.


Taylor er búin að eignast barnið með Nick og dr. Bridget (dóttir
Brooke og fyrrum eiginkona Nicks) uppgötvaði loks að mamma hennar,
Brooke, var óvart eggjagjafinn. Vissulega hefði verið hægt að halda
þessu leyndu fyrir Taylor (geðlækninum með varirnar) ef barnið hefði
ekki fæðst með hættulegan ónæmissjúkdóm sem krafðist þess að
foreldri/skyldmenni gæfi beinmerg. Nick passaði ekki nógu vel ...
Brooke var sagt allt af létta en hún þráði alltaf heitt að "gefa" Nick
barn þegar þau voru gift í nokkrar vikur og hún vildi að sjálfsögðu
gefa merg. Taylor fékk áfall (held ég) þegar hún komst að þessu, þetta
flækir málin ofboðslega að fyrrum keppinautur hennar um Ridge og síðar
Nick eigi í raun barnið sem hún gekk með.


Ridge (fyrri maður Brooke (oft) og Taylor, sonur Stefaníu og
hálfbróðir Nicks), sjá mynd, er líklega hættur með unnustunni Ashley sem mamma
hans handvaldi handa honum og farinn aftur í faðm Brooke. Þegar hann
keypti trúlofunarhringinn handa Ashley hét hann sér því að þetta yrði í
síðasta skipti sem hann gerði slíkt, hahahaha, ekki á meðan
handritshöfundarnir eru á sýru ... Brooke hefur lagt út öll veiðarfærin
til að næla í Ridge og gaf Ashley kinnhest þegar hún gaf í skyn að
Brooke notfærði sér nauðgunina og áfallið sem hún varð fyrir þá en hún
virtist bara vilja stuðning frá Ridge. Brooke hefur engu gleymt og
sannfærði Ridge enn einu sinni um að þeim væri ætlað að vera saman, þau
ættu RJ litla og svona.


Eric (maður Stefaníu, faðir Thorne og Ridge (ekki blóðfaðir þó))
er farinn að vera með Donnu, systur Brooke, en hún skilur hann svo vel.
Stefanía lét sig hverfa þegar hún áttaði sig á því að maðurinn sem hún
sigaði á Brooke (og nauðgaði henni) til að Ridge fengi forræðið yfir
börnunum (RJ og Hope litlu (sem Brooke á reyndar með Deacon, fyrrum
tengdasyni sínum)) og Donna notaði tækifærið á meðan. Það munaði
reyndar minnstu að hún yrði tengdadóttir Erics þegar hún reyndi að
hugga ekkilinn sorgmædda, Thorne, en rétt fyrir brúðkaupið kom
leiðinlega, heilaga systir Donnu og Brooke til Thorne og sagði honum að
Donna ætlaði að giftast honum til að hefna sín á Stefaníu fyrir hvernig
hún fór (óvart) með Brooke. Í þættinum í dag kemst Stefanía væntanlega
að því að maður hennar er kominn með ástkonu og vill skilnað.Það er
eins og ég hafi séð í kristalskúlunni að Donna og Eric eigi eftir að
giftast.

Fyndið, Brooke, systir Donnu, giftist Eric fyrst, síðan Ridge nokkrum
sinnum, Thorne bara einu sinni og svo stakk hún (aftur) undan Bridget
dóttur sinni og stal Nick (hálfbróður Ridge) frá henni. Kannski Donna
fari þennan hring, hún er með Eric, var næstum því gift Thorne og á þá
bara Ridge eftir.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.