ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Stóratburðir í boldinu ... og strætó

22:00 › 8. júlí 2009

Mér tókst á sjá boldið í gær og hef svo sem horft annað slagið og það hefur gengið svo mikið á þar að ég sé mig tilneydda til að blogga um síðustu sjokkerandi atburði.
Ég veit varla hvar skal byrja! Mig minnir að Ridge hafi haft forræðið yfir börnunum, Hope litlu og RJ, að tilstuðlan Stefaníu, síðast þegar ég boldaði.

Kvöldið fyrir réttarhöldin um börnin (Ridge var þó ekkert áfjáður að fá þau, enda að deita Ashley á fullu) braust maður, "aðdáandi" Brooke, inn hjá henni og nauðgaði henni. Áhorfendur vissu að Stefanía hafði gefið honum nauðsynlegar upplýsingar um lykil undir blómapotti og slíkt en ætlaðist auðvitað ekki til þess að maðurinn gerði þetta. Hann átti bara að tæla Brooke svo rétturinn dæmdi börnin af henni vegna drusluháttar.

Donna, systir Brooke, ákvað að hefna sín á Stefaníu með því að tæla sorgmædda ekkilinn, annan son hennar, Thorne (Ridge er sko hinn). Hún vældi og veinaði þar til Thorne bað hennar. Daginn sem brúðkaupið átti að fara fram kom önnur systir þeirra fram á sjónarsviðið, ákaflega heilög og góð manneskja (hrollur), og sagði Thorne sannleikann. Thorne hætti við að kvænast Donnu sem þó var búin að ákveða að verða honum góð eiginkona þótt eitthvað skorti upp á ástina. Síðast sást til hennar á bar að daðra við Eric, mann Stefaníu, en Stefanía hafði látið sig hverfa eftir að hún frétti af nauðguninni.

Enn eru eggjamál Taylor hinnar óléttu með varirnar, í umræðunni. Gemsi dr. Bridgetar, dóttur Brooke, hringdi í Nick, eiginmann og tilvonandi barnsföður Taylor, einnig fyrrverandi eiginmann Bridgetar og líka Brooke, móður Bridgetar, þar sem hann var ekki læstur, og þar heyrði Nick samtal Bridgetar og lúðalega rannsóknarstofumannsins þar sem hann viðraði áhyggjur sínar af því að Brooke væri líklega "móðir" eggsins sem er í vömb Taylor og þau hamingjusömu hjónin, Taylor og Nick, halda að sé barn þeirra saman. Nú er allt að komast upp. Bíðið spennt eftir næstu færslu. Ég ætla að reyna að komast heim í tíma á morgun ... eða fórna mér og verja sólardeginum, laugardeginum, inni við bold-gláp í stað þess að vera úti á svölum eins og eðlileg manneskja.

Á myndinni hér að ofan sést Brooke og þeir menn sem hún hefur verið gift; Eric (enn kvæntur Stefaníu en stefnir á Donnu, systur Brooke) og sonum hans, Ridge og Thorne. Lengst til hægri er Nick, sem er reyndar hálfbróðir Ridge, sonur Massimo og Jackie en Massimo er blóðfaðir Ridge. Kom upp á yfirborðið fyrir svona þremur árum og olli miklu fjaðrafoki. Á myndina vantar nokkra eiginmenn, held ég.

Ég fékk svar frá Jórunni hjá Strætó bs. Skýrt og skorinort. Strætó bs. hætti á föstu með Skagamönnum af því að gróðinn af samstarfinu var ekki nógu mikill. Ég álasa ekki Strætó bs, heldur stjórnvöldum svona heilt yfir fyrir að ætlast til þess að almenningssamgöngur þurfi að skila gróða.
Nú á að fara að hækka fargjöldin á höfuðborgarsvæðinu og draga frekar úr þjónustunni, ef ég hef skilið þetta rétt í fréttum. Mig langar bara til að ráðleggja þessum elskum hjá Strætó bs að finna aðrar leiðir.

Reynsla okkar Skagamanna af hækkuninni sl. áramót var sú að meira en helmingur farþega hóf að keyra á milli aftur á einkabílum með tilheyrandi sliti, mengun og aukinni slysahættu. Auðvitað geta ekki allir ferðast um á einkabílum vegna fátæktar og þá eykst bara eymd þeirra, eins og hún sé ekki næg fyrir ... Þannig að Strætó bs fær ekki endilega þessa hækkun til sín í meiri gróða, frekar en Akraneskaupstaður, skilst mér. Svo er Skaginn víst að hugsa um að hætta allri niðurgreiðslu til okkar sem kaupum kort en við borgum "bara" tvöfalt á við Rvíkinga með niðurgreiðslunni. Það yrði mikið áfall, segi nú ekki meira.

Ég óttast mest af öllu þreföldunaráhrif af fargjaldahækkun í Reykjavík. Nú kostar 280 krónur í Rvíkurstrætó og við Skagamenn (á svæði 3) borgum þrefalt það til að komast á milli, eins og ég hef stundum öskrað um hérna á blogginu. Ef fargjaldið fer t.d. í 350 kall þá erum við komin yfir þúsundkallinn fyrir staka ferð. Borgarnesstrætó hættir 20. ágúst vegna lítillar notkunar Borgfirðingakrúttanna, enda fargjaldið allt of hátt frá upphafi. Við sögðum þetta! Það er bara aldrei hlustað á farþegana. Fólk sem ferðast um á jeppum og fínum bílum hefur greinilega miklu meira vit á almenninssamgöngum en við.

Það var samt rosalega gaman í strætó í dag ... að vanda. Mikið spjallað. Allt mér að þakka að nýi bílstjórinn á 57 beið eftir leið 15 frá Reykjavík ... Haddi vinur minn hafði skutlað mér í Mosó þannig að ég var tryggilega fest í bílbelti og búin að koma mér vel fyrir þegar biðin hófst. Þegar leið 15 kom í Háholtið hinum megin frá, eða úr sveitinni, ætlaði bílstjórinn bara að leggja af stað á Skagann en ég tók þá eitt af mínum frægu móðursýkisköstum í þær þrjár mínútur sem tók rétta vagninn að komast til okkar. Hann var allt of seinn vegna þriggja bíla áreksturs á Laugavegi, rétt fyrir ofan Hlemm. Bílstjórinn okkar var mjög feginn þegar hann sá hátt í 20 manns koma hlaupandi upp í vagninn og hefði ekki viljað fá þetta fólk upp á móti sér ... skemmtilegur bílstjóri sem er frá Selfossi. Ein afar gáfuð Skagakona spurði mig hvort þessi bið eftir farþegunum frá Rvík væri ekki mér að þakka og með þingeysku montbrosi hvað ég svo vera. Lítið var þó um fjárhagslegt þakklæti, eins og það hefði nú komið sér vel í dýrtíðinni.

Á stoppistöðinni í Mosó spjallaði ég við pólska stelpu sem vinnur hjá kjúklingabúi í Mosó og býr á Skaganum. Hún vildi gjarnan búa nær vinnustaðnum, t.d. í Mosó, en leigan er svo miklu hærri þar. Hún kvartar ekki yfir kreppunni, segir ástandið verra í Póllandi en hér. Hún dáðist einlæglega að pólskukunnáttu minni en ég kann að segja NJE, sem þýðir nei. Það hefur oft komið sér vel á Mörkinni ... eða myndi gera ef ég nennti nokkurn tíma á bari.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.