ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.3° 2m/s E
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Friðarspillar

15:33 › 12. júlí 2009

Miklu, miklu þægilegra er að sitja inni í himnaríki við tölvuna en voga sér út á svalir í hitasvækjuna þar. Þvílíkt veður. Ég elti ekki lengur hvern sólargeisla eins og þurfti í gamla daga þegar sumrin voru kaldari og engir geitungar fundust á Íslandi. Eitt árið, líklega á áttunda áratugnum kom sumarið eftir hádegi á miðvikudegi og ekki meira það árið. Sakna þess tíma svolítið en hver veit nema ég lifi það lengi að það verði komin ísöld aftur. Þá verð ég í essinu mínu í Max-gallanum mínum með flottu loðhúfuna sem Vera keypti handa mér í Moskvu sl. vor og ég hef enn ekki getað prófað nema heima á góðum kvöldum til að hræða kettina og erfðaprinsinn.

Heimilisfólk í himnaríki vaknaði á síðustu stundu í Formúluna í hádeginu og ég náði að búa til latte áður en ræsingin hófst. Hef áður sagt frá því að ef svefni mínum er raskað þá þarf ég yfirleitt að byrja upp á nýtt að sofa þessa átta tíma mína. Um hálfþrjú í nótt komu nokkrir hressir menn, utanbæjarmenn líklega, og settu fjarstýrðan bíl í gang á planinu hérna fyrir neðan. Erfðaprinsinn vaknaði líka. Við erum bæði svo gömul og grömpí að ef gæjarnir hefðu ekki farið niður á Langasand til að leika sér hefðum við hringt í lögguna.

Annar „friðarspillir“ er fokkings körfubíll
(sjá mynd) sem lagt hefur verið hér fyrir neðan og karfan er í hæstu hæðum. Það venst kannski en undanfarið hef ég fengið nett áfall þegar ég tek mér göngutúr um himnaríki og verður litið út um gluggana, svo óvenjulegt er að sjá einhverju bregða fyrir nema hafinu og Reykjavík í fjarlægð

Ég ræddi þetta aðeins við Halldór frænda í gær og sagði að nú gætu óvandaðir menn aldeilis  kíkt á mig í svefnherberginu. Hann tók lítið undir það en spurði hvort körfubíllinn gæti mögulega verið á vegum sömu aðila og stæðu fyrir hvalaskoðun ...



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.