ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 5m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Viðbjóðsleg fiskitvenna, strætó og BOLD

21:20 › 4. júní 2009

Fiskitvenna var í matinn í mötuneytinu í dag. Það var greinilega lax sem sat ofan á hvíta fiskinum og til að halda greindinni fékk ég mér auðvitað lax og hvítt og salat með. Haldið að hvíti, sakleysislegi fiskurinn undir laxinum hafi ekki verið SALTFISKUR!!! Á föstudögum er vanalega betri matur en síðasta föstudag voru SALTFISKSTRIMLAR! Kannski var rýmingarsala á saltfiski einhvers staðar. Kreppa, verðtrygging, AGS, háir stýrivextir, hátt matarverð, svimandi hátt strætóverð, þynnri sumarsjónvarpsdagskrá (sem heitir nú á Stöð 2: Sérvalin dagskrá fyrir konur) og svo þetta! Er ekki komið nóg?

Mikið er talað um strætó og framtíð hans af Skagamönnum. Hvar sem maður kemur heyrast sögur ... ein kona fullyrti við mig að strætóferðir yrðu hreinlega lagðar af. Bærinn, eins og önnur bæjarfélög landsins, væri illa staddur og hefði ekki efni á því að borga 6 milljónir á mánuði fyrir leið 6 í Háholti. Ég sagði henni að það væri frekar ótrúlegt að Skagamenn byggju við slíka afarkosti af hendi glerharða Strætó bs-fólksins sem leitar líka allra leiða til að spara (og hafa talað um okkur Skagamenn sem dýra í rekstri fyrir þá ... en ég hefði haldið að fargjöld nokkur hundruð manns aukalega í vasa þeirra hefðu einhverju skipt til áramóta).
Hef annars staðar heyrt töluna 2 milljónir en það er samt allt of dýrt ef rétt er. Vildi að ríkið kæmi á móts við bæjarfélög til að bjarga málum, það yrðu bara aukahörmungar ofan á aðra kreppuömurð ef strætó hætti að ganga.
Ég (50) hef ekki áhyggjur af því að geta ekki selt himnaríki (54) ef ég ætlaði að flytja í bæinn. Íbúð í stigaganginum mínum seldist á methraða um daginn og pólsk, mjög vinaleg hjón (40+) fluttu inn. Mig langar bara ekkert að flytja frá Akranesi. Hér er dásamlegt að búa ... en það var einmitt tilkoma strætó á milli sem gerði mér mögulegt að flytja á Skagann á sínum tíma. Þetta laðaði að fleiri en mig en eitthvað hefur verið um flutninga héðan eftir strætófargjaldahækkunina og dýrmætt útsvar tapast við það.

Í fyrstu ferð á morgnana fara tveir vagnar
. Aðalbíll og svo aukabíllinn sem Heimir (30) keyrir og ég fer með. Farþegum úr báðum vögnum er hleypt út í Háholti þar sem gleðigjafinn André Backmann (93?) bíður okkar á sexunni og ekur með okkur alla leið úr Mosó og niður í miðbæ og Hlemm, ekki amalegt en frekar mikið dekur á krepputímum. Heimir ekur síðan beint til Reykjavíkur með tóman vagn og fer að keyra börn í skólasund í Kópavogi. Góð sparnaðarleið, þar sem okkur farþegum hefur fækkað umtalsvert eftir hækkunina (200%), væri að við farþegar færum samferða Heimi í Ártún og gætum skipt þar um vagn. Í morgun vorum við í kringum 25-30 (án skólakrakkanna) en fyrir hækkun fargjalds voru alltaf tvær fullar rútur. Nú hættir skólasundið eftir morgundaginn og það er spurning hvort fyrsti vagn dagsins hefði tíma til að bruna í Ártún og náð aftur í Mosó áður en hann þarf að leggja í hann á Skagann aftur. Við gætum auðvitað tekið leið 15 í bæinn en það veldur Mosfellingum óþægindum ... nei, nei, ekki lyktin ... við fyllum öll sæti og þá þurfa innfæddir að standa alla leið í bæinn og finnst það fúlt, skiljanlega. Við Skagamenn gætum auðvitað staflað, við stelpurnar í fanginu á strákunum, eða staðið upp fyrir hrumum Mosfellsbúum (sem við myndum auðvitað hvort eð er gera) ...

Donna, systir Brooke, ákvað að hefna sín á Stefaníu fyrir að hafa haft börnin af Brooke með aðstoð Barnaverndar Bandaríkjanna, kveikjara sem Nick gleymdi og misskilnings um barnapössun, og hefur nú spilað með vesalings ekkilinn hann Thorne, son Stefaníu og bróður Ridge. Hún tældi Ridge og nú eru þau trúlofuð. Loksins smá hamingja hjá Thorne eftir að Taylor hvarf úr lífi hans en hann var tilbúinn að fyrirgefa henni fyrir að hafa ekið á eiginkonu hans, Dörlu, og drepið og síðan leynt því lengi. Thorne ætlaði að kvænast henni af því að hún sem geðlæknir var svo góður huggari og hefði gert ef krakkarassgatið hans, litla, sæta móðurlausa stúlkan, hefði ekki klippt brúðarkjól Taylor í tætlur. Ég hef óttast þetta barn síðan og held að hún verði fjöldamorðingi þáttanna eftir 10 ár eða svo, börn eldast mjög hratt í boldinu, annað en fullorðna fólkið. Ég hló upphátt þegar Stefanía sá Donnu heima hjá Thorne og fleygði henni út með ofbeldi, alveg brjáluð.Thorne styður auðvitað konuna sem hann elskar og veit ekki að hún elskar hann ekki rassgat. Jackie, mamma Nicks, styður Donnu í þessu og þegar Donna hreykir sér af þessu í síma þá snýr hún auðvitað baki í dyrnar og fattar ekki að Stefanía heyrir allt. Veit ekki hvað gerðist í þætti dagsins en það hefur verið eitthvað krassandi.

Rick reynir og reynir að fá Phoebe sína aftur, 18 ára, og finnst hreint æðislegt að hún skuli ekki vilja sofa hjá honum ... eða nokkrum manni fyrr en hún er gift. Hún á enn erfitt með að fyrirgefa honum fyrir að hafa sofið hjá Ashley þegar þau tvö voru í pásu en Ashley er farin að deita Ridge, pabba Phoebe litlu, sem fyrirgaf Ashley fyrir að hafa verið með næstum tengdasyninum en Rick (stóri sonur Brooke) er reyndar hálfbróðir Ridge (ekki blóðskyldur þó) og nokkrum sinnum hefur hann verið stjúpsonur hans.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?