ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 5m/s S
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Óveður og Sorpusjokk

21:23 › 8. maí 2009

Vegagerdin.is sagði 22 m/sek við tékk á Netinu kl. 6.15 í morgun og því var haldið á stoppistöðina,. Ég var kappklædd og minnti helst á bangsa (eða hval, sjá neðar) í 5% kasmírkápunni sem ég var búin að leggja eftir veturinn ... þar til í gærrmorgun en þá sótti ég líka gammósíurnar úr Ellingsen inn í skáp þar sem þær biðu þolinmóðar næsta vetrar. Í morgun komu þær aftur í veg fyrir blá og skjálfandi læri. Tveggja trefla veður ríkti í gær og í dag og veitti sannarlega ekki af góðri kasmírkápu.

Náði ekki aukavagninum, sorglegt fyrir Heimi sem einhverra hluta tróðst á undan okkur frá Íþróttahöllinni og stal öllum sætu mönnunum upp í bílinn hjá sér á leiðinni út úr fallega bæjarfélaginu mínu. Haukur dólaði fyrir aftan hann og flissaði þegar ég kvartaði yfir þessu, sagðist vera hæstánægður með sætu stelpurnar sem komu í hans hlut. Það þaggaði niður í mér og ég roðnaði af gleði.

Eins og glöggir blogglesendur vita þá fer Heimir á aukabílnum beint í göngin og tekur upp fólkið á Kjalarnesi (Grundahverfi) á meðan Haukur/Kiddi/Elínborg sækir Borgfirðingana við Hvalfjarðargöngin og sleppir í staðinn Kjalarnesinu. Góð samvinna og trylltur spenningur hvern morgun að vita hvor vagninn verður á undan í Háholt í Mosó. Ég neyddi einn Borgfirðinginn, hressa konu sem vinnur hjá Bílastæðasjóði, til að setjast hjá mér. Um að gera að njóta þeirra áður en þeir þurfa að fara að keyra á milli. Lögfræðingurinn hjá Tryggingastofnun (einnig búsettur í Borgarfirði) bættist í litla hópinn okkar þegar við færðum okkur yfir í sexuna við komu í Mosó ... Á UNDAN aukavagninum. Hann ferðaðist afturábak alla leiðina í bæinn sem virtist ekkert trufla hann, ég ferðast t.d. alltaf aftur í tímann þegar ég sit í slíku martraðarsæti. Við þrjú spjölluðum um kreppuna, bókina Sofandi að feigðarósi og Búlgaríu. Við Klambratún hoppaði löffinn út og ég á Lækjartorgi þar sem ég átti stefnumót. Við vinkonu sem keyrði mig upp í vinnu þegar við höfðum keypt kaffi og rúnnstykki to go. Kristín, ökukennari með meiru og fyrrum lærimeistari minn í útvarpi (sjá Sérstæð sakamál, nóv. 1985), er blýföst í karlaklúbbnum sem mætir upp úr 7.30 alla morgna og rífst um stjórnmál út í eitt á milli þess sem drukkið er kaffi. Garðar Cortes, Pjetur Stefáns (PS&Co) og fleiri stórmenni eru meðlimir.

Svo tók við stórkostlegur vinnudagur. Allir í góðu skapi eins og venjulega og dagurinn leið hratt. Við vorum óvenjufljót að klára blaðið og ég hefði vel getað labbað út kl. 16 og tekið 16.45 strætó heim ... nei, þá var fokkings ófært! Of hvasst fyrir strætó. Ég vældi og veinaði á Facebook og einn af þessum 770 vinum mínum reyndist eiga frænda (búsettan á Akranesi) sem vinnur í næsta nágrenni við mig. Ég æpti upp yfir mig af fögnuði og samstarfsfólkið fagnaði tryllingslega því að loksins væri fundinn maður handa Gurrí. Það mætti halda að ég daðraði stöðugt við allt karlkyns í vinnunni. Reyndar lít ég á þá sem bræður, syni, feður og frændur og reyni bara að vera góð við þessar elskur.

Um hálfsexleytið ók maðurinn í hlað, það hafði tekið hann lengri tíma en hann hélt að sækja eiginkonuna. Við ókum sem leið lá upp á Skaga og sáum á mælinum í Mosó að hviður voru komnar upp í 38 m/sek ... og auðvitað mátti sjá fullt af bílum með kerru í eftirdragi, húsbílum og slíku ... svona áhættufíklum sem ákváðu að tékka á því hvort þeir væru ófjúkjanlegir í óveðrinu. Í Kollafirðinum var sjórinn rosalegur (flottur) en svo er hann bara stilltur hér við himnaríki. Suðvestan átt á morgun og oft eru læti í sjónum (landhelginni minni) eftir rok ... ég vona það besta. Öldurnar ná sér ekki almennilega upp í norðanáttinni sem heldur sjónum í gíslingu núna ... arg.

Frænka mín fór nýlega í Sorpu í Ánanaustum til að losa sig við gosumbúðir. Fremstir í röðinni voru tveir gæjar með nokkurt magn af flöskum. Eitthvað fannst starfsfólkinu í Sorpu pokinn léttur miðað við talningu ungu mannanna, taldi flöskurnar og miklu munaði. Maðurinn í afgreiðslunni bað þá kurteislega um að taka flöskurnar til baka, telja þær aftur og koma svo á nýjan leik með rétta tölu. Svo bara næsti gjörsovel. Bara kurteisi og hugsað um biðröðina fyrir aftan ... og almannafé. Ungu mennirnir tóku þessu þunglega, gáfu í skyn að verið væri að þjófkenna þá og voru mjög ókurteisir við manninn sem afgreiddi þá. Ungu mennirnir fundu fína leið til að hefna sín, eða þannig, ekki svo löngu síðar mátti víst heyra þá hrauna yfir starfsmenn Sorpu ... í útvarpinu. Strákarnir reyndust vera útvarpsmenn á X-inu! Frænka fékk sjálf snögga og góða afgreiðslu rétt á eftir strákunum og hafði ekkert og hefur aldrei haft yfir nokkru að kvarta þarna. Hún var vægast sagt hneyksluð á þessu og vonar að Sorpufólk klagi strákskammirnar fyrir að nota aðstöðu sína svona í úbartinu. Jamm, mikið sakna ég annars Tvíhöfða ... og Górillunnar ... og Radíusbræðra ... umm, þeir gömlu og góðu dagar þegar ekki var hlustað á annað á morgnana.

Facebook er frekar fyndið fyrirbæri. Maður setur (ef vill) inn stöðu sína, t.d.hvað maður er að gera eða hugsa og slíkt sem ég nenni ekki mjög oft (ég á mér ekkert líf) nema kannski þegar ég er veðurteppt í himnaríki eða Reykjavík og arga á hjálp. Það hefur gerst tvisvar og í bæði skiptin fékk ég far!
Í fyrradag setti ég sem stöðu mína: „Gurrí Haraldsdóttir sá tveggja hæða Whale Watching-strætó á Suðurlandsbraut í dag og fannst óþægilegt hvað fólkið í honum starði á mig ...
Facebook-vinirnir skrifuðu fjölmargar athugasemdir við þessa játningu mína, flestar kvikindislegar, en margir hughreystu mig vegna þessarra dónalegu túrista og sögðu að þeir hefðu bara horft á mig af því að ég væri svo sæt. Það var reyndar enginn túristi í vagninum sem ég þorði auðvitað ekki að játa eftir alla samúðina. Ég treysti því bara að Facebook-vinirnir skreppi aldrei í bloggheima.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.