Þvílíkir atburðir sem hafa átt sér stað undanfarið og enginn tími til að blogga, líklega hef ég gleymt helmingnum af stórviðburðunum í öllum látunum.
„Gurrí, ég frétti að þú værir komin með kaddl,“ sagði gömul strætóvinkona þegar hún kíkti í heimsókn nýlega. Ég reyndi að rifja upp síðustu æsilega atburði lífs míns en kom þessu ekki fyrir mig. Erfðaprinsinn var upptekinn við að skipta um eldhúsinnréttingu fyrir fyrri undankeppni Evróvisjón og gat ekki aðstoðað mig. Þannig að ég neyddist til að neita þessu og bað konuna líka í guðanna bænum um að leiðrétta þetta við karlana sem sögðu henni þetta svo það eyðilegði ekki allan séns fyrir mér hjá sætu mönnunum á Akranesi og nærsveitisssss. Það gæti vissulega hafa misskilist að ég pantaði myndarlega tertu í Harðarbakarí fyrir Evróvisjón sl. þriðjudag, sjá mynd. Oft þarf ekki meira til ...
Þegar ég sagði mömmu frá þessu í afmælisveislunni hennar um síðustu helgi spurði hún blátt áfram: „Varstu að þvo stórisa?“
Þegar mamma þvoði stofu-stórisana í apríl 1969 barst sú saga með eldingarhraða um Skagann að hún væri að fara að giftast Einari lækni og við værum að flytja til Reykjavíkur.
Svo er líka allt að verða kolvitlaust í boldinu. Ridge er kominn með tímabundið forræði yfir Hope litlu og RJ litla, börnum Brooke en stúlkuna á hún með fyrri tengdasyninum af tveimur sem hún rændi frá Bridget og Ridge á með henni upphafsstafina, held að þeir standi fyrir Ridge Junior. Aumingja Brooke hefur verið miður sín eftir að Ridge fór að dúlla með ilmvatnskonunni Ashley (sem hann veit ekki að var að dúlla með hálfbróður hans (ekki blóðskyldum) Rick, syni Erics og Brooke, sem á meðan var að dúllast með Phoebe litlu, dóttur Ridge og Taylor. Ég sá ekki alveg hvað Brooke gerði, fór á eitthvert djamm við sorginni á meðan hún hélt að börnin væru í öruggri umsjá systur hennar, Donnu. Donna sá bíl koma heim að húsinu og rauk við það út, hélt að þetta væri Brooke en þá var það bara sendill. Börnin voru því alein heima heila nótt, dauðhrædd litlu dúllurnar. Einhvern veginn komst þetta upp, krakkarnir hafa líklega hringt í 112 því kona frá barnavernd komst í málið. Mjög stuttu síðar gætti Nick (seinni tengdasonurinn sem Brooke nældi í en er núna kvæntur Taylor og búinn að barna hana en líklega frjógaði hann egg Brooke, kemur í ljós) barnanna og í látunum, Nick er svo barngóður, missti hann kveikjara úr vasa sínum. Þegar Brooke var að smyrja brauð ofan í börnin síðar sama dag fór Hope litla að fikta með kveikjarann og vúmm, það kviknaði í gardínum. Brooke kom fram og gargaði og ef Ridge hefði ekki komið óvænt í heimsókn hefði eitthvað hræðilegt gerst. Konan frá barnavernd kom aftur, orðin mjög góð vinkona Stefaníu, hatursmanns Brooke, og saman ákváðu þær að svipta Brooke börnunum og láta dómara dæma í málinu. Í réttarhöldunum bar geðþekki geðlæknirinn, Taylor hin ólétta, vitni og sagði hreinskilnislega að hún myndi ekki treysta Brooke fyrir börnum sínum (hennar Taylor sko) núna, Brooke væri í slíku ójafnvægi. Dómarinn dæmdi því börnin af henni tímabundið og Brooke er brjáluð. Hún hætti hjá nýja Forrester-fyrirtækinu og tældi Nick til að ráða sig í vinnu hjá gamla Forrester sem hann hafði af fjölskyldunni eftir meinta hrindingu Stefaníu þar sem Jackie, mamma Nicks, slasaði sig. Taylor er ekki hrifin af, hún veit nefnilega að Brooke er enn skotin í Nick, stutt síðan þau tvö skildu og Brooke fór í faðm Ridge aftur þangað til Ridge brjálaðist yfir sambandi Ricks (sonar Brooke) og hinnar 18 ára Phoebe sem komst að því í dag að Rick var að dúlla við Ashley sem gæti orðið næsta stjúpmóðir Phoebe-ar ef ekki verður sprenging bráðlega ... Ég bendi á að Lára Hanna stórbloggari þýðir þessa stórkostlegu þætti.
Bestu strætóvinir mínir undanfarna daga eru Borgfirðingarnir knáu. Þessi kvenkyns spurði mig í Háholti í dag hvar hún fyndi bloggið mitt en þessi karlkyns var búinn að finna það þrátt fyrir brjálæðislegar og nokkuð árangursríkar tilraunir tölvumanns dv.is til að fela það ... „Sko, þú ferð inn á dv.is, ýtir á takka sem á stendur BLOGGIÐ, rúllar aðeins niður þangað til þú sérð mynd af ofboðslega fallegri konu ... ég er fyrir neðan hana,“ útskýrði ég greindarlega en með glettið blik í fögrum augunum sem glitruðu af góðvild og smá sandfoki.
Ég er fegin því að hún virðist ekki andlega, dulrænt sinnuð og skammaði mig fyrir þetta. Hef ekki svo sjaldan lent í slíku fólki sem segir við svona gríni, fullt góðvildar, að fólk eigi ekki að gera lítið úr sér ... og solles. Ef þetta fólk bara vissi hvað ég er í raun ofboðslega montinn Þingeyingur aftur í ættir, og Skagfirðingur þar að auki, myndi það hika við að dæma. Einu sinni sagði breskur miðill við mig að ég væri rosalega gömul sál. Ég átti að verða voða glöð og segja sömuleiðis og saman gætum við nært egó hvors annars út í eitt. Þegar ég ákvað að stríða honum og gera smá grín að gömlusálardellunni en í fúlustu alvöru þó, og sagði að ég gæti ekki verið gömul sál þar sem gamlar sálir lifðu fyrir garðyrkju og ég hataði garðvinnu af lífi og sál, móðgaðist hann. Vá, hvað ég fékk leiðinlega ræðu frá honum um meint lágt sjálfsmat, að ég rifi sjálfa mig niður og allt í þeim dúr. Lærdómsríkt, síðan þegar ég hef fengið spúkí hrós segi ég bara Takk, eða En athyglisvert. Ég hef aftur á móti áskilið mér rétt til að svara spælingum fullum hálsi ef því er að skipta. Dæmi, spæling: „Vá, hvað þú hefur fitnað síðan ég sá þig síðast!“ Svar: „Ó, takk, þú lítur líka æðislega vel út!“ Jamm, þessi kennslustund var í boði himnaríkis á meðan horft er eftir seinni Evróvisjón-undankeppnina. Hátíð í bæ. Annars fyrirlít ég auðvitað þessa keppni, fáránlegt bara að fólk horfi á svona Evrópu-rusl. Frekar spila ég lúdó við erfðaprinsinn og kettina ... not!
Blogg
Meintur kærasti og brjálað bold
19:31 › 14. maí 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
