Í gærmorgun uppgötvaði ég mér til mikillar ánægju að ég er loksins orðin grömpí óld kjéddlíng, eða styttri í mér kveikiþráðurinn en áður. Nenni engu kjaftæði; fórnarlambsaugnaráði og andvörpum. Ungur piltur reykti í biðskýlinu í Mosó og hrakti okkur tvær skvísurnar út í rok og rigningu. Þótt vanti heilar tvær hliðar í skýlið, brotið glerið vestanmegin, þá var örlítið skjól að finna þar, bara örlítið. Eftir 10 sekúndur í leiðindaveðrinu utan skýlis sagði ég ljúflega við piltinn: „Æ, ertu nokkuð til í að færa þig aðeins niðureftir.“ Stráksi hljóp út úr skýlinu þótt ég hefði ekkert farið fram á það og væri ekkert gribbuleg á svipinn. Hann stóð bara þar sem vindurinn feykti reyknum um allt skýlið, bara hugsunarleysi hjá honum, ekki mannvonska. Þótt ég syndgi nokkuð eftir hádegi þá finnst mér tóbakslykt AM (á morgnana) alveg skelfileg en vel þolanleg PM (past mötuneytishádegismatur).
Svo lentum við í strætóævintýri í morgun. Ég var í aukavagninum frá Skaganum og við stoppuðum beint fyrir aftan leið 15 við komu í Mosó. Þegar við vorum að ganga út gerði bílstjórinn á 15 sér lítið fyrir og bakkaði á okkur. Heilt framljós brotnaði, vá! Ekkert stórmál svo sem. Bílstjórinn minn vippaði sér út en þá byrjaði vagninn okkar að renna aftur á bak. Karlarnir, sem enn voru í vagninum, trylltust af skelfingu. Áður en ég gat ákveðið hvor pedallinn gæti mögulega verið bremsan var bílstjórinn kominn inn aftur og festi handbremsuna betur. Þessir 30 cm sem vagninn rann niður brekkuna voru eflaust sem 30 ár í hugum hræddu karlanna en við stelpurnar skríktum bara og harðneituðum áfallahjálp sem indæli bílstjórinn á sexunni, við hlið leiðar 15, hefði örugglega boðið upp á. Bílstjórinn minn fékk kvörtun út af atvikinu en ekki hrós fyrir að vera svona yfirvegaður og viðbragðsfljótur. Hann sá líka hvað var í aðsigi, flautaði á bílstjórann fyrir framan til að vara við árekstrinum en án árangurs. Eins og sést á myndinni hér að ofan var margt um vagninn við Háholt kl. 7.15 í morgun.
Borgnesingarnir okkar hafa miklar áhyggjur af því að strætóferðir þeirra verði lagðar niður eftir mánuð. Það kostar þá 2.000 krónur Á DAG að ferðast á milli ef þeir kaupa strætómiða, eitthvað minna ef þeir kaupa kort, en með peningum næstum 2.500 kr. Strætóvinkona mín, sem vinnur hjá Bílastæðasjóði og situr stundum hjá mér, sagði mér að Borgnesingar myndu þá hópa sig saman í bíla. Þeir hafa borgað 10.000 á mann á mánuði í bensín, miðað við 5 í bíl, sem er nokkuð MIKIÐ ódýrara en að fara með strætó ... eða þeir skiptast á að keyra einn dag í viku.
Svo sagði einn Skagakarlinn í strætó í dag að bæjarstjórnin á Skaganum væri ekki til í að halda þessu áfram hjá okkur í óbreyttri mynd með svona fáa farþega. Allir sem heyrðu þetta skelltu upp úr. Við erum ekki búin að gleyma 200% hækkuninni sl. áramót, eða úr 280 kr. í 840 kr. Við hverju bjóst bæjarstjórnin? Að allir héldu áfram að taka strætó eftir þessa aðför sem allir vissu að myndi fækka farþegum til muna? Reyndar finnst mér að ríkisstjórnin ætti að styrkja bæjarfélögin hérna, Akranes og Borgarbyggð, til að halda úti almennilegum og ekki svona rándýrum almenningssamgöngum. Við erum háð því að borga í Hvalfjarðargöngin á leið til vinnu þar sem vinna býðst ekki í heimabyggð. Það yrði þjóðfélagslega hagkvæmt á allan hátt og hjálplegt við almenning sem verður líka fyrir annars konar aðför í formi vaxta og verðbóta og hækkandi matarverðs. Ég borga hæstánægð fyrir heilbrigðiskerfið þótt ég þurfi lítið sem ekkert á því að halda, borga fyrir leikskóla þótt krakkakvikindið mitt ætti, miðað við aldur, að vera farið að fjölga sér sjálft ... o.s.frv. Held að þótt ég ætti bíl myndi ég glöð borga fyrir minni mengun, minni slysahættu á vegum og minna slit.
Þótt mér þyki vænt um Strætó bs og alla sætu karlana þar þá held ég að þeir hafi svínbeygt bæjarstjórnirnar okkar norðan rörs, taka meira að segja 2 milljónir á mánuði í svokallað umsýslugjald af bæði okkur og Borgarbyggð, segir sagan, 4 millur alls. Borgarbyggð hefur nóg með menntaskólann sem hefur farið 400 milljónir framyfir áætlun og á kannski erfitt að borga með tíu farþegum á dag.
Það hefur bara aldrei tíðkast hjá aðilum sem stjórna í svona málum að leita ráða hjá fólki sem notar þjónustuna. Margt sem við farþegar bentum á og vöruðum við á fundi í des. sl. í Skrúðgarðinum þótti neikvæðni en rættist svo með tímanum. Sumum göllum var nú kippt í lag fljótlega, eins og að gefa strætó bara klukkutima til að keyra 70-80 mínútna leið.
Auðvitað héldu Borgnesingar að þeir fengju strætó á betra verði en raunin varð en nú er miklu ódýrara að fara á milli nokkrir saman á einkabíl. Fólk þarf hvort eð er að borga gjöld og tryggingar af bílunum þar sem þeir standa óhreyfðir í Borgarnesi ...
Við Skagamenn bjuggumst við því að strætó væri kominn til að vera (ég flutti á Skagann vegna tilkomu strætó), ekki yrði hækkað svona hroðalega við okkur á erfiðum tímum og síðan reynt að minnka þjónustuna eða leggja hana niður af því að svo fáir (eins og við spáðum) notuðu þetta. Spurning um orsök og afleiðingu. „Það á ekkert að láta þessa fokkings jeppakarla semja um almenningssamgöngur sem þeir líta niður á,“ sagði einn farþeginn beiskur og bætti því við að þetta væri sko geymt en ekki gleymt. Strætófarþegar og fjölskyldur þeirra eru víst líka kjósendur, held ég að hann hafi átt við.
Jamm, ég er reyndar þakklát bæjarstjórninni minni fyrir margt gott sem hún hefur gert en í hennar sporum hefði ég fengið harðan samningamann (handrukkara?) til að semja við Strætó bs og að farþegar og bílstjórar hefðu verið hafðir með í ráðum. Þetta er nokkuð sem skiptir margar fjölskyldur hér á Skaganum gífurlega miklu máli, það eru manneskjur á bak við allar tölur og útreikninga. Miðað við farþegafækkunina miklu sem verðhækkunin mikla orsakaði hefði líkast til verið hægt að halda fargjaldi óbreyttu og sama heildarupphæð og áður rukkast inn. Kannski kemur enn minna í kassann núna en fyrir áramót, mikið væri áhugavert að vita það.
Annars held ég að okkur farþegum sé að fjölga aftur. Leið 6 (sem með öðru kostar bæjarstjórn 2 millur á mánuði) er yfirleitt kjaftfull á morgnana frá Mosó. Og í ferðinni kl. 16.45 í dag var nokkuð þétt setið á Skagann og heilir sjö farþegar fóru til Borgarness, sýndist mér. Borgfirðingarnir eru skrambi sætir og það verður mikill missir að þeim. Nýja sætukarlastoppistöðin mín er við göngin núna. Ég sver það.
Ég sem hefði orðið fastur farþegi til Borgarness í sumar, allar helgar á leið í sumarbúðirnar hennar Hildu systur á Kleppjárnsreykjum. Bestu sumarbúðir í heimi ... þótt víðar væri leitað.
Kíkið á www.sumarbudir.is og www.sumarbudir.blog.is og skráið litlu englana ykkar í ævintýraviku þar. Ég sé um að dekra við þau um helgar, svona þegar ég er ekki þjóðnýtt á skrifstofunni.
Komst að því í gær að Eiríkur Jónsson nennir ekki að lesa bloggið mitt. Ég sagði frá því við kaffivélina að forseti alþingis hefði óvænt ekið með mig á kjörstað á laugardaginn og Eiríki fannst mikið til koma. Hélt að hann ætlaði að setja það í kjaftasögumolana í Séð og heyrt og til að forða því lét ég hann vita að ég væri þegar búin að skúbba því, sjá síðustu færslu. Svipur Eiríks bar vott um samviskubit (nei, hann er ekki samviskulaus, það er blekking gerð með speglum) og hann viðurkenndi að honum fyndist ég skrifa of langan texta. Sem kurteis samstarfskona kunni ég ekki við að segja honum að lesendur bloggsins míns væru allir sæmilega læsir og þjáðust ekki af athyglisbresti, ég þyrfti ekki, eins og SUMIR, að skrifa stutta texta til að lokka þá að blogginu mínu.
Jæja, 24 er byrjað og Anna Pihl verður í endursýningu um 22.30-leytið en ég missti af henni á sunnudaginn og svo er ég með þvílíkt djúsí spennubók. Í frjálsu falli eftir Lee Child, held að hún sé fyrsta bókin eftir þennan höfund sem þýdd er á íslensku. Jesssss! Lífið er dásamlegt hjá bókaormum þessi misserin eftir að kiljuæði greip loks landann.
Blogg
Grömpí óld og spæling Eiríks
21:44 › 30. apríl 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
