Eldsnemma á miðvikudaginn (um kl. 8) kom Nellí prófarkalesari til mín og sagði: „Gurrí, átti ég að tala við þig um viðtengingarhátt? Gulla var eitthvað að tala um það.“ Af því að ég er svo gáfuð svaraði ég: „Ó, kæra Nellí, þú hefur látið plata þig, það er 1. apríl í dag!“
Nellí fnæsti og sagði: „Ég kýli hana Gullu!“ Við þetta brá mér mjög mikið, enda ólíkt Nellí að tala svona. Nellí má ekki vamm sitt vita, leikur á harmonikku í frístundum og klífur Esjuna alltaf þegar hún getur, jafnvel í matartímanum sínum, held ég. Svo var þetta annar dagur Gullu prófarkalesara í vinunni eftir að hafa hafa verið heima handleggsbrotin. Gulla er enn í gifsi. Svona flettir 1. apríl ofan af fólki.
Ef ég hefði ekki verið svona upptekin þennan dag hefði ég hlaupið fram vegna dýrlegs pósts sem okkur starfsmönnum barst frá yfirstjórn fyrirtækisins. Það átti að gefa okkur páskaegg númer 5 frá Nóa Síríus og af því að ég er svo meinlaus datt mér ekki í hug að nokkur gæti verið svo viðbjóðslegur að lofa súkkulaði og svíkja það svo. Við áttum að skrifa okkur frammi hjá Klöru og sækja eggið inn á lager. Ekki heimskulegt af mér að trúa þessu, þetta ER gjafmildur vinnustaður ... fjandans 1. apríl og sumt fólk sem heldur að það VERÐI að plata saklaust, góðviljað, heiðarlegt og vinnusamt annað fólk!
Það var helst heimska DV-liðið sem lét gabbast af páskaeggjaplatinu ...múahahaha, úps, aðeins of fast að orði kveðið þegar mér er bara illa við eina manneskju á DV í augnablikinu ... eða annan fk. fréttastjórann.
Skýring: Ég sat í rólegheitum við skrifborðið mitt í morgun, alein í salnum af því að ég kom svo snemma, leitaði að mynd í myndabanka til að myndskreyta grein sem ég er að skrifa og hlustaði með tárin í augunum á gamla Jethtro Tull-tónlist á youtube (Passion Play og Thick as a brick). Í einum afar áhrifamiklum kafla (hér neðar má finna tóndæmi ... spólið yfir 2 mínútur til að finna upphaf áhrifamikla kaflans) var allt í einu barið þvílíkt í gluggann fyrir aftan mig að ég hoppaði hæð mína ... sitjandi og allt. Ég varð gjörsamlega miður mín, fór samt að hlæja til að halda andlitinu en þá var fokkings fréttastjórinn farinn framhjá en Tóti, hinn fréttastjórinn, kom inn í salinn í sama mund. Hann heyrði tónlistina, sá mig hlæjandi af engri ástæðu fyrir framan tölvuna og fannst það óhugnanlegt. Nú er Tóti hræddur við mig, enda trúir hann engu upp á Binna.
Vá, hvað ég ætla að hlusta á þessar tvær plötur (cd) heima í kvöld, ég á þær báðar (Passion Play og Thick as a brick). Enginn kemst að mér í himnaríki nema fuglinn fljúgandi og ég sé ekki fyrir mér mávana eða krummana hrekkja virðulega konu sem lifir sig inn í gamla og góða tónlist. Erfðaprinsinn verður örugglega upptekinn við að lesa, hann er í algjöru lestrarkasti núna og spænir þvílíkt í sig góðar bækur. Hann horfði ágirndaraugum á bókina sem ég byrjaði á í gærkvöld, Rauðbrysting, splunkunýja bók eftir Jo Nesbö, norskan hagfræðing (en samt ágætan), rokktónlistarmann og metsöluhöfund. Bók sem þau í Kiljunni, Egill, Kolla og Páll Baldvin mærðu í tætlur sl. miðvikudag.
Þegar ég sagði samstarfskonum mínum hér á Vikunni að Uppheimar, flotta bókaforlagið á Skaganum, væri að verða aðalglæpasagnaútgefandi landsins, sagði þeim að góður maður kæmi reglulega til mín í himnaríki með kynningareintök af þykkum og djúsí spennusögum ... og sagði við Björk: „Ég elska hann. Hann heitir Kristján!“ Þá fór Björk að hlæja, henni finnst ekki koma málinu við hvað maðurinn heitir ... þetta væri sama snarklikkunin og lýsti mér í Facebook þegar ég valdi fimm uppáhaldsbíómyndirnar mínar þar, sagði Björk. Henni fannst svo skerí að ég skyldi hafa hlið við hlið myndirnar Sound of Music og Kill Bill. Hinar myndirnar sem ég valdi voru Love Actully, Delikatessen og Empire of the Sun (þar sem Christian Bale sló fyrst í gegn). Í svona könnunum á að gefa manni færi á að velja tíu myndir, ekki bara fimm! Nú halda allir Facebook-vinir mínir að mér finnist bara gaman að fyrri Kill Bill-myndinni þar sem ég tímdi ekki að láta þá seinni taka upp heilt pláss frá annarri mynd, eins og t.d. Empire of the Sun.
Hér er svo tóndæmið af Thick as a brick, njótið:
http://www.youtube.com/watch?v=9ASj8UQSAyw&feature=related
... og hér er stuttur treiler úr Empire of the Sun, njótið líka:
http://www.youtube.com/watch?v=D9KRSabAMT0&feature=PlayList&p=5AAE3F4FD390768C&playnext=1&playnext_from=PL&index=57
Blogg
Ónæði, morgungabb og súkkulaðisvik
12:42 › 3. apríl 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
