ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.3° 2m/s E
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Að kjósa RÉTT!!!

18:23 › 25. apríl 2009

Við erfðaprins vöknuðum fyrir allar aldir, eða um 11, og ákváðum að drífa okkur á kjörstað fljótlega eftir hádegi. Á kjörstað komumst við í boði Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi og sjálfur efsti maður á lista þar, Guðbjartur Hannesson, Gutti, skutlaði okkur. Ekki nóg með það, heldur beið hann á meðan við héngum í langri biðröð í Brekkubæjarskóla og kom okkur svo í kosningakaffi. Ég kaus í kjördeild 2 og það var áberandi hversu fallegt fólk var í biðröðinni minni. Kjördeildir 1 og 3 ... ekkijafnfallega-fólkið ... gat bara gengið beint inn. Siggi, mikill sjálfstæðismaður, var rétt fyrir aftan mig og sagði að biðröðin hefði verið ansi löng hjá kjördeild 1 fyrir hádegi þegar hann var að vinna á kjörstað, mikið morgunfólk í þeirri kjördeild og það er greinilega ekki fegrandi að rífa sig of snemma á lappir. Þegar ég tala um fegurð er það auðvitað afstætt. Meira að segja Skagamenn í kjördeild 3 þykja gullfallegir á Reykjavíkurmælikvarða og gætu sigrað hvaða fegurðarsamkeppni sem er.

Ég lenti í óvæntri klemmu í kjörklefanum
þegar ég sá að Ástþór var ekki í mínu kjördæmi ... en fullt af öðru flottu og góðu fólki. Ég ákvað eftir nokkra umhugsun að gefa öllum atkvæði mitt og setti Z í alla ferningana. Strikaði nokkra út, færði aðra á milli flokka, teiknaði broskarla við hvern flokk, orti vísur til allra (ekki dónalegar) og kuðlaði seðlinum svo saman í flotta pappírskúlu sem ég tróð stolt ofan í kjörkassann. Allir brostu ógurlega sætt og ef þetta er ekki að kjósa rétt þá veit ég ekki hvað. Ég var ögrandi, með ljósbleikan varalit og bar stolt barmmerki frá Rauða krossinum. Hvernig verð ég þegar Vera hefur fært mér rússahúfuna sem hún keypti fyrir mig í Moskvu ... og kostaði bara 2.000 kall. Verst að það er að koma sumar.

Næst var það Krónan
, það vantaði kattamat í himnaríki og elsku Einarsbúð er lokuð um helgar (sem heldur matarverðinu niðri þar). Í Krónunni tókst mér að ljúga að Svölu, mömmu Helgu Brögu, að við sonurinn borðuðum bara kattamat í kreppunni, ein tegundin væri t.d. svoooo góð með kartöflumús. Hún trúði mér vonandi og sagði mér svo að hún hefði farið norður að sjá sýninguna hjá Helgu, Björk Jakobs og Eddu Björgvins, gist á Hótel KEA eins og drottning og haft það gott. Hún laug síðan að dóttur sinni að hún ætlaði að taka út séreignarlífeyrissparnaðinn sinn og búa á KEA til æviloka. Jamm, mikið logið þessa dagana, ekki bara stjórnmálamenn, heldur virðulegar frúr á Skaganum. Svala hneykslaðist á verði á þvottaefni og ætlaði að bíða mánudags til að geta keypt það ódýrara í Einarsbúð. Sumt er nú á ágætu verði í Krónunni en ekki allt. Fokkings kreppan.

Þótt ég væri pakksödd langaði mig að koma
við í fleiri kosningaköffum, hitta fólk og spjalla. Erfðaprinsinn flúði með innkaupapokann og keypti lottó í leiðinni, ekki séns að hann langaði með mér í slíkan leiðangur.
Það var fínasta stemmning hjá Vinstri grænum. Ég þekkti engan þar en fékk samt ljúfar móttökur og það var alvörusársauki í augnaráði góðu konunnar sem sá um kaffið þegar ég þáði ekki kökur ... eins og perutertan var girnileg. Í sama húsi, næstum alveg við hliðina, var kosningakaffi Sjálfstæðisflokksins og þangað fór ég auðvitað líka. Það var ansi rólegt þegar ég kom, svona miðað við hjá Samfó, en fjölgaði hratt á næstu mínútum ... Hrikalega girnileg kókosbolluterta var sett á borðið ... ég of södd til að treysta mér í smakk, hvílík spæling. Góð vinkona Ástu minnar kom þangað þegar ég var að fara og þá hitti ég líka blogg/facebook-vinkonu í fyrsta sinn í raunheimum sem var virkilega gaman. Ég spældi Jónínu ljósmóður óvart með því að sjá hana ekki ... nú bara verð ég að fá mér sterkari gleraugu. Hvað ætli ég hafi sært marga holundarsári í gegnum tíðina með því að heilsa þeim ekki?

Ég var svo södd og komin með svo mikla heimþrá í himnaríki að ég sleppti því að heimsækja Framsókn og Frjálslynda, enda lengra labb til þeirra og alveg í hina áttina. Hefði samt alveg verið til í að heimsækja það góða fólk allt saman. Veit ekki hvort Borgarahreyfingin var með kosningakaffi á Skaganum en það hefði verið gaman að kíkja við hjá þeim líka. Ég get ekki fest mig við einn flokk til að halda tryllingslega með og hata alla hina, það er gott fólk að finna í öllum flokkum og hana nú!

Horfði á tvær spennumyndir í vikunni. Transporter 3 sem var hrikalega spennandi, Jason Statham er æðislegur töffari. Plottið kannski óraunhæft en hva ... maður lætur það ekki skemma fyrir sér flotta mynd. Sá svo Taken í gærkvöldi og hún var ansi spennandi líka.

Fékk leyfi til að nota meðfylgjandi mynd en hún er af Einari í Einarsbúð sem fékk þessa líka fínu heimsókn á dögunum (og vonandi rós) frá forsætisráðherranum okkar. Þau eru ekki sammála í pólitíkinni, held ég, en það fór samt vel á með þeim, eins og sést.

P.s. Svo langar mig að óska ritstjóranum mínum, Elínu, innilega til hamingju en eldsnemma í morgun eignaðist hún dóttur! Elín vann til kl. 15 í gær þótt hún væri komin með hríðarverki! Geri aðrir betur. Við á Vikunni vonum að sú litla verði látin heita Guðríður Björk Hrund Íris Haffa ...og vitum að hún verður áreiðanlega forsætisráðherra eða eitthvað ... fædd á svona merkilegum degi, kjördegi, og á afmælisdegi sjálfs Óla Palla!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.