ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 5m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Ferlega léleg fréttamennska

18:37 › 17. apríl 2009

Ég hef stundum nöldrað/tekið æðiskast yfir fréttum sem vantar í. Oft eru þetta reyndar ansi hreint yfirborðskenndar „fréttir“, ég viðurkenni það fúslega. Nýlega birtist ein á mbl.is (já, skamm) um jafnöldru mína sem varði miklu fé í lýtaaðgerðir og nú er henni ruglað saman við tvítuga dóttur sína. Hér er upphaf fréttarinnar:
„Hin breska Janet Cunliffe hefur á undanförnum tíu árum varið á þriðju
milljón króna í lýtaaðgerðir og nú er svo komið að hún líkis mest
dóttur sinni Jane. Mæðgurnar, sem eru 50 og 22 ára, eru nú svo líkar að
þær líta helst  út fyrir að vera tvíburar. Þetta kemur fram á fréttavef
Jyllands-Posten.“

Mér finnst fáránlegt að birta þetta þar sem ekki fylgir mynd með. EN ... þar sem ég er svo æðisleg lagðist ég í rannsóknir  (nokkuð flóknar þar sem ég var búin að gleyma co-inu í co.uk-endinum í Bretlandi) og fann flotta mynd af mæðgununum. Áður en þið lesið lengra ... hvor er mamman? (áminnt um sannsögli) Svar neðst á síðunni.

Svo var önnur frétt á dögunum sem gerði mig alveg brjálaða ...kannski af því að ég er bókaormur. Maður nokkur sat inni í skógi í Austurríki og las bók. Honum þótti bókin svo fyndin að hann hló brjálæðislega. Kona nokkur heyrði í honum óhljóðin, hringdi á þarlenda neyðarlínu og sagði að verið væri að misþyrma manneskju í skóginum. Þyrla og björgunarsveit voru send af stað og þá kom hið sanna í ljós. Alvörublaðamaður hefði reynt að komast að því hvaða bók maðurinn var að lesa. Þetta mun trufla mig til dauðadags, alla vega í einhverja daga í viðbót. Ef ég kynni meira en "Ég elska þig" og "Við sitjum saman við grátviðartréð" á þýsku myndi ég reyna að gúggla þetta.

Í boldinu stendur yfir mikil barátta milli Konstantíns (Idol-stjörnu) og Ricks um Phoebe litlu.Rick kom með grimmdarlega áætlun til að ná henni til sín þótt hann sé reyndar skotinn í ilmvatnskonunni (Ashley) og veit ekki að hálfbróðir hans og næstum því stjúpfaðir er farinn að deita hana, Brooke, mömmu hans til mikillar mæðu. Áætlun Ricks gengur út á að halda einvígi á Insomniu, kaffihúsinu þeirra, þau Phoebe syngi saman dúett annars vegar og svo syngi Phoebe dúett með Konstantín, uppstríluð eins og Konstantín vill hafa hana en Rick ekki. Móttökur gesta kaffihússins eiga að skera úr um hvort parið sé betra og Rick er viss um sigur. Annars sýndist mér í þætti dagsins að Phoebe sé ekki lengur jafnskotin í Rick og áður. Líklega truflar Konstantín þetta eitthvað.
Rick komst að sambandi Ashley og Ridge og er í losti ... biður hana að segja ekki orð um þau tvö ... sem ég tel ekki líklegt þar sem Ridge heimsækir Ashley og segist sko ætla að hafa upp á þessu viðhaldi hans Ricks sem VIÐ vitum að er Ashley ...

Ég er að lesa bókina Bréf frá Jörðu eftir Mark Twain ... enn einu sinni. Hún er bráðfyndin og rúmlega það. Kom út 1971 á íslensku og komst í mína eigu ekki svo löngu síðar. Hún hefst á því að Guð (sem er ansi sjálfhverfur skv. Twain) refsar Satan fyrir ósvífni og skort á aðdáun á sér með því að senda hann í skammarkrók út í himinhvolfið. Satan ákveður nota tímann til að skoða nýjustu sköpun Guðs, Jörðina, og laumast til að skrifa Mikael og Gabriel erkienglum bréf frá Jörðu um upplifun sína af þessu undarlega mannkyni sem heldur í fúlustu alvöru að algóður Guð hafi ekkert við tímann að gera annað en að dást að sköpunarverki sínu, hlýða á bænir mannfólksins og slíkt. Mark Twain las greinilega biblíuna spjaldanna á milli og fannst mikið um grimmd í henni. M.a. segir hann í bókinni: „Drottinn drap Ónan, og allt til þessa dags er kristnum mönnum óskiljanlegt með öllu, hversvegna hann lét staðar numið við Ónan, í stað þess að drepa alla íbúana innan fimm hundruð kílómetra fjarlægðar - þar sem þeir voru saklausir af misgerðinni og þarafleiðandi einmitt þeir sem hann var vanur að drepa.“
Áður hafði Twain minnst á nokkrar ansi hreint harðar refsingar gagnvart saklausu fólki, sérstaklega hreinum meyjum sem voru gefnar stríðsmönnum sem stríðsgróði eftir að allir ættingjar meyjanna voru drepnir. Þessi Ónan hafði látið sæði sitt falla á jörðina en ekki í skaut konu bróður síns eins og honum hafði verið boðið. Því hlaut hann að deyja.
Bókin er gerð upp úr handritum sem fundust eftir dauða Twains en Clara, dóttir hans, kom í veg fyrir útgáfuna í mörg ár. Sumir segja Twain hafa verið beiskan eftir barnsmissi og því skrifað svona kaldranalega um guðdóminn sem jaðrar við guðlast ... aðrir segja þetta vera fínasta skemmtilestur fyrir trúaða jafnt sem vantrúaða.
Mjög gaman var að lesa um Nóaflóðið, m.a. þegar Nói þurfti að snúa örkinni við af því að ein fluga hafði óvart orðið eftir, smitberi sem bar í sér frábæra sýkla til að kvelja mannfólkið síðar meir. Það var bráðfyndið að lesa um Adam og Evu, hvað þau voru saklaus og alltaf að finna eitthvað upp í Eden. Á ári 10 segir Eva m.a.: „Við eigum nú níu börn - helminginn drengi, helminginn stúlkur.“

P.s. Mamman er til vinstri á myndinni.
P.s. Kíkið endilega á þetta myndband með Ridge (57 ára), hann syngur líka, eins og sjónvarpsþulan Bjöggi:

http://www.youtube.com/watch?v=5PSBp2zC6CY&feature=related



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?