ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 5m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Allt vitlaust í boldinu

13:14 › 11. apríl 2009

Nú er komið að því. Allt orðið snarvitlaust í boldinu. Dr. Bridget, dóttir Brooke og fyrrum eiginkona fyrrverandi stjúpföður síns, Nicks, er búin að komast að því að frjóvguð eggin sem sett voru í Taylor, sem nú er gift Nick, eftir að Brooke hætti með honum eftir að hafa stolið honum frá Bridget, eru í raun egg Brooke, mömmu hennar. Ekki frá eggjagjafa, eins og ætlunin var. Brooke tók þátt í einhverri tilraun og gaf egg þannig að eggjabakkinn var merktur Mrs. Marone, eins og gjafabakkinn sem átti að notast í núverandi Mrs. Marone, hana Taylor. Allt vitlaust á sjúkrahúsinu, yfirlæknir vill þagga þetta niður og segir þetta engu máli skipta, hann segist reyndar vera með sannanir fyrir því að réttu eggin hafi verið notuð. Bridget er þó órótt.

Svo er samband Ricks (sonar Brooke) og Phoebe litlu (dóttur Ridge og Taylor ólétta geðlæknisins) líklega að fara til fjandans. Rick er skotinn í ilmvatnskonunni (sem ég man aldrei hvað heitir en vinnur hjá Forrester við að búa til ilmvötn og var áður í sambandi við Rick). Rick þolir ekki Konstantín sem ætlar að gera Phoebe að frægri söngkonu. Konstantín er Idol-stjarna í raunheimum og leikur sjálfan sig í boldinu (hvílík örlög), hæfileikaríkur tónlistarmaður sem hefur séð í gegnum Rick, veit að hann er skotinn í ilmvatnskonunni. Rick sér átfittið sem Phoebe á að vera í, svona stjörnuklæðnaði og með sérstaka förðun, og verður alveg brjálaður yfir því að Konstantín reyni að stjórna Phoebe svona, ekki að hann reyni það, alls ekki, sjúr. Hann nánast tilkynnir henni að hún þurfi að velja á milli ilmvatnsbransans (það á að gera ilmvatn í nafni hennar) og söngbransans. Konstantín var áður búinn að segja Rick, pabba Phoebe, frá því að Rick væri eitthvað að bralla, væri ekki jafntryggur og hann létist vera ... nú bíð ég bara spennt eftir uppgjöri þeirra.

Brooke er komin aftur til Forrester, hætt að vinna fyrir Nick, og allir eru glaðir nema Stefanía. Hún óttast að Brooke reyni að tæla Ridge til sín aftur og að það kosti son hennar, Ridge, enn eina ástarsorgina. „Þótt þú eigir barn með henni þarftu ekki að deila lífinu með henni,“ segir Stefanía við son sinn. Mig grunar að áhorfendur hafi viljað óvináttu þeirra tveggja aftur, Stefaníu og Brooke, þær voru orðnar einum of góðar vinkonur á tímabili, en þegar Ridge fékk hjartaáfall þráði hann bara Brooke sína og þá gerði Stefanía allt til að koma þeim saman. Nú er allt fallið í sama gamla, góða farið aftur. Stefanía biður ilmvatnskonuna um að hjálpa Ridge út úr óhamingjuhringekju Brooke ... og að hún reyni við drenginn (54) hennar. Hún veit bara ekki að ilmvatnskonan er skotin í Rick (30), syni Brooke og bróður Bridgetar.

Á myndinni sjást Ridge og Brooke og einnig Phoebe litla, dóttir Ridge, og Rick, sonur Brooke.

Myndin tekin í Ástralíu þegar allt lék í lyndi, Ridge og Brooke ætluðu að gifta sig en Ridge trylltist við tilvonandi stjúpson sinn (sem er reyndar hálfbróðir hans, ekki blóðskyldur þó) og barði hann af því að hann vildi ekki að fráskilinn, mun eldri maður, tilvonandi stjúpbróðir í þokkabót, kæmi nálægt dóttur hans, Phoebe litlu. Þar með hætti Brooke við brúðkaupið og allt varð vitlaust, enn einu sinni.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?