Hér í himnaríki var vaknað tvisvar í morgun. Hviður á Kjalarnesi reyndust vera 36 m/sek í fyrra skiptið, eða kl. 6.10, en eftir klukkutíma fegurðarblund var kíkt aftur og þá voru hviður komnar niður í 32 m/sek sem er það hvassasta sem strætó treystir sér til að aka í.
Best að hringja í Strætó bs, hugsaði ég greindarlega, karlarnir mínir þar eru alltaf svo árrisulir. Jú, jú, strætómaðurinn hélt að strætó færi en vildi fyrst kanna málið svo fína frúin á Akranesi þyrfti ekki að fara út í norðangarrann til einskis. Síðan bauðst HANN til að hringja í mig og láta mig vita hvort af ferðinni suður yrði. Þvílík þjónusta. Ég var síðan hálfnuð með að búa mér til latte þegar hann hringdi og sagði horfur hafa versnað aftur (34 m/sek) og engar líkur á því að 7.39 ferðin færi, frekar en sú kl. 6.39.
Úti var farið að birta strax kl. 7.30, JESSSS, fallegt út að glápa, höfuðborgin hinum megin við hafið, girnileg, glitrandi og nauðsynleg ... ÉG VERÐ AÐ KOMAST TIL VINNU Í DAG. Myndi segja að mánudagar og föstudagar væru mikilvægastir. Kannski fer ég bara á puttanum ef strætó kemst ekki, þetta er svooo sterkur putti.
Held að næsta strætóferð fari ekki fyrr en 9.39 frá Skrúðgarðinum. Eins gott að það verði farið að lægja aðeins þá. Allt er með kyrrum kjörum undir Hafnarfjalli og einnig undir Akrafjalli (þar sem mælir er nú staðsettur, takk Vegagerð), bara blessað Kjalarnesið sem klikkar svona. Kjalnesingarnir vindbörðu en þó fallegu geta þó glaðst yfir því t.d. að borga bara einfalt gjald í strætó, Kjalarnes er nefnilega 116 Reykjavík. Alveg væri ég til í að selja Skagasálu mína og verða t.d. 115 Reykjavík til að fá lægri fargjöld.
ARGGGGGGG OG GARG:
Einhver órói var í mér vegna strætó og ég kíkti út um einn norðangluggann. Sá mér til mikillar skelfingar að strætó fór kl. 7.39 ... algjörlega öfugt við það sem góði maðurinn hjá Strætó bs sagði við mig í símann. Reyni þó að vera jákvæð ... mér var bara ekki ætlað að fara í þessa ferð, ég verð að þola stríðni samstarfsfélaga minna ... Kannski var þetta ekki strætómaður sem svaraði mér þegar ég hringdi um sjöleytið til að spyrja um ferðir leiðar 57, bara rangt númer, geðvondur karl sem ég vakti og ætlaði að hefna sín með því að láta mig missa af strætó. Þetta gæti líka verið samsæri ríkisstjórnarinnar af því að ég sá í gegnum ESB-frumvarpið Verndun svæðislýsinga smárása í hálfleiðurunum. Ho ho ho ....
Kíkti á hviðumælinn eftir að hafa séð strætó fara Garðabrautina og það virðist lægja hratt. Það er frábært en samt fúlt að hafa misst tvo klukkutíma úr vinnu á svona mikilvægum degi og það að óþarfa. Tek það þó fram að maðurinn hjá Strætó bs var samt frábær og veitti rétta og góða góða þjónustu kl. 7.10 ... forsendur breyttust bara mjög hratt. Einhvern veginn datt mér samt ekki í hug að hringja aftur korteri seinna og tékka - heitir slíkt ekki frekja og flokkast undir: EN NÚNA?, EN NÚNA?
Óska ykkur velgengni í dag, að heppnin elti ykkur hvert sem þið
farið. Hér í himnaríki verður bara unnið til kl. 9.30, þá hoppað út á
stoppistöð nema það hafi hvesst aftur!
Blogg
Klikkað á Kjalarnesið ... eða hvað
07:40 › 9. mars 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
