ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 5m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Forsetinn og allt ...

13:24 › 7. mars 2009

Mikið var gaman í Þjóðmenningarhúsi á fimmtudaginn. Þangað mætti ég með Hildu systur vegna tilnefningar hennar til Samfélagsverðlauna Fréttablaðsins. Þetta var flott athöfn, forsetinn og allt, og fjöldi fólks sem ég þekki. Sat hjá Gunna í Kjötborg og yndislegu konunni hans, en Kjötborg var einmitt tilnefnd líka en í öðrum flokki. Aðeins framar sat Anna Lára frá Rauða krossinum, ásamt tveimur konum frá Palestínu, önnur fullorðin, hin 16 ára. Ég var mjög ánægð með hverjir hrepptu verðlaunin, þótt Hilda systir hafi ekki fengið í sínum flokki ... tilnefningin ein og sér er mjög mikill heiður. Afar ósátt kona sagði við Hildu eftir á að sér fyndist fáránlegt að þeir sem hefðu starfað „stutt“ væru settir í sama flokk og t.d. 110 ára starfsemi sem einnig var tilnefnd. Hilda var reyndar tilnefnd fyrir störf sín í þágu barna, vetur sem sumar, en þó kannski helst fyrir metnaðarfullar sumarbúðir, eins og Fréttablaðið orðaði það. Það er ekki „magnið“, heldur gæðin, segi ég alltaf. Hélt að 110 ára dæmið hefði fengið nóg af tilnefningum, verðlaunum og styrkjum í gegnum tíðina, m.a. frá Bónus, Sjóvá, kirkjunni, ríki og borg og fleirum, svo ekki þyrfti að hnýta í aðra sem fá verðskuldaða viðurkenningu. Jamm, þetta var bara smá nöldur úr himnaríki um að fólk ætti frekar að samgleðjast en að samgremjast. (nýyrði í mínu boði)

Rauði krossinn á Akranesi hreppti verðlaun í sínum flokki fyrir vel heppnaða aðlögun flóttamannanna. Ég get sannarlega tekið undir að verkefnið sé vel heppnað. Skúli, fyrrum strætóbílstjóri, talaði stundum um hvað það væri gaman að spjalla við palestínsku konurnar þegar þær kæmu í strætó, þær væru orðnar svo góðar í íslensku. Sama sagði María í Skrúðgarðinum við mig nýlega. Ég hnussaði bara og sagði að fólk sem ekki væri altalandi á íslensku eftir sex mánaða dvöl hér ... djók, ég er hrikalega hreykin af þessum elskum. Það er vegna þessa velheppnaða verkefnis sem ég elska bæjarstjórnina hér þrátt fyrir 200% hækkunina á strætófargjöldumum um áramótin.

Ég hvet þá sem ætla að taka þátt í forvali Vinstri grænna að merkja við Önnu Ólafsdóttur Björnsson og setja hana ofarlega. Hún gerði frábæra hluti þegar hún sat þar fyrir Kvennalistann á sínum tíma og mér finnst hún hafa mikið erindi á þing. Hún smalar ekki þessa dagana, heldur hefur látið nægja að mæta á kynningarfundi og halda ræður, spjalla við fólk og slíkt. Las það á blogginu hennar: http://annabjo.blog.is/blog/annabjo/
Viljum við ekki öll heiðarlega, klára og góða pólitíkusa á þing? Held það.

Vona að dagurinn ykkar verði frábær, hér í himnaríki verður skrúbbað, viðrað og slíkt ... nema ég detti ofan í bók, sem ég ætla að reyna að stilla mig um til kvölds.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?