ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 5m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Tónleikar, útvarpsþættir og allt ...

11:59 › 28. mars 2009

Ein af uppáhaldamanneskjum lífs míns hringdi áðan og sagði mér af tónleikum sem halda á hér á Akranesi í dag kl. 14. Háskólakórinn ætlar að syngja eitthvað fallegt fyrir okkur Skagamenn og er sonur hennar einn kórfélaga. Verst að kirkjan er í hinum enda bæjarins og verst hvað það er hvasst núna eða yfir 14 m/sek, skv. www.yr.no, veðursíðunni norsku en samt ágætri (djók). Eins og íþróttahöllin hefði verið flottur staður ... fyrir mig, enda bý ég nánast við hliðina á henni.

Nú eftir hádegi hefst síðasti þáttur Halldórs fjanda og Markúsar á Útvarpi Sögu en í nýlegri færslu sagði ég frá fádæmaósvífinni spælingu sem ég varð fyrir af hendi Halldórs. Hvað er í gangi? Þessi þáttur að hætta og Spurningakeppni fjölmiðlanna líka! Einhvers staðar las ég að síðarnefndi þátturinn færi kannski yfir á Bylgjuna. Hvernig væri að fá Halldór og Þórhall á einhverja aðra stöð ... eini þátturinn sem fær mann til að hlæja upphátt vegna einmitt fádæmaósvífni Halldórs meðal annars.

Er þegar búin að stilla á Útvarp Sögu hér í tölvunni minni til að gleyma örugglega ekki að hlusta kl. 13. Arnþrúður segist vera skíthrædd við kommúnismann sem tröllríður öllu núna, meira að segja verið að banna nektardans og allt ... Réttið upp hönd sem viljið að dætur ykkar/systur/mæður stundi nektardans!

Breytingar strax, samkvæmt fólkinu í útvarpinu, ogkreppan á líka að hætta strax, skiljanlega. Ég segi samt eins og Obama forseti. Það tók tíma að koma þessu ástandi á, það hlýtur að taka tíma að lagfæra það aftur. Ég tek undir með fólkinu í útvarpinu að ég treysti ekki lífeyrissjóðunum lengur. Þetta eru gífurlegar fjárhæðir sem fara þar inn í hverjum einasta mánuði og er gamblað með (víðast). Ég vil gjarnan lána ríkinu þessa peninga og sleppa við lánið frá AGS. Held að Írar ætli að leysa eigin mál þannig. Jamms.

Í hádeginu í gær fór ég á blaðamannafund vegna Formúlu 1. Hann var haldinn í húsinu sem ég vinn í, bara hinum megin við mötuneytið, mjög þægilegt. Það var MJÖG gaman að prófa formúlubíl (ókei, svona hermi) og mér tókst á stuttum tíma að rústa þremur bílum sem ég ók, samt var ég Schumacher, ekki að eigin vali reyndar. Flott að vera bara á strætó, hugsaði ég, enda örugglega 20 ár síðan ég keyrði síðast. Svo horfði ég á karlana (aðeins ein önnur kona var þarna og áhugalaus um Formúlu 1) rústa hverjum bílnum á fætur öðrum, aka út af og hvaðeina. Það má ekkert snúa stýrinu þá er maður kominn út af. Væri samt alveg til í að eiga svona hermi heima hjá mér og æfa mig grimmt. Þá væri nú ekki mikið mál að fara að keyra í rokinu stundum á Kjalarnesinu.

Óska ykkur góðrar helgar, issgurnar. Endilega drífið ykkur á tónleikana í Akraneskirkju kl. 14 ef þið hafið færi á. Þetta er flottur kór! Ekki svo gleyma að horfa á Formúluna í OPINNI útsendingu í hádeginu á morgun. Ég er svo ánægð með að endursýningarnar verði líka í opinni dagskrá að ég er jafnvel að hugsa um að kaupa mér áskrift að Stöð 2 sport til að sjá þættina í kringum Formúluna.
Þrjóskan bar mig ofurliði í fyrra, ég bæði neitaði að vakna um miðjar nætur um helgar til að horfa og einnig að láta pína mig til að kaupa stöðina til að ná endursýningum sem þá voru ruglaðar. Svona getur maður nú verið ruglaður.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?