Fékk staðfest hjá Heimi bílstjóra í morgun (sem hélt að hann væri að segja MÉR fréttir) að Ástþór hefði mætt á flottum bíl í Skrúðgarðinn í gær ... með einkabílstjóra. Heimir var þar í öðrum erindagjörðum, eða að hitta félaga sína í klúbbnum Fallegt fjórhjólafólk, eitthvað svoleiðis, og varð vitni að látunum. Hann sá ekki betur en að Ástþóri hefði verið fleygt út, ekki alveg með handafli þó. Skilst að Ástþór fái ekki að vera „memm“ neins staðar. Hann kæmist frekar í fréttirnar ef hann reyndi að gera allt vitlaust á ársþingi Sjálfstæðisflokks eða Samfylkingar. Jamms.
Vígalegur strætóeftirlitsmaður beið okkar í Háholti í Mosó í morgun. Ég væflaðist, vægast mjög grunsamleg í fasi, í kringum leið 6, í vafa hvort ég ætti frekar að bíða eftir leið 15 og rúlla með honum í gegnum allan Mosfellsbæinn og stytta þannig biðtíma minn til muna í Ártúni eftir leið 18.
Nennti ekki að hanga í heilar fimm mínútur í Mosó í kuldanum. Áttaði mig svo á því á leiðinni með sexunni að ég gæti, þar sem það er að koma sumar, farið út úr strætó hjá Manndrápsbrekkunni, hyldýpinu hroðalega við Vesturlandsveg, gengið nokkra kílómetra í átt að Reykjavík til að losna við að húrra niður brekkukvikindið, snúið svo við og gengið virðulega niður rampinn, síðan undir brúna og upp Súkkulaðibrekkuna. Súkkulaðiilmurinn sem hefur legið yfir Hálsaskógi eftir áramótin er nú bara til í draumum mínum ... þar sem páskaeggin eru komin í búðir.
Ég sagði strætóeftirlitsmanninum frá hættulega hyldýpinu, eða Manndrápsbrekkunni, spurði hvers vegna vagninn stoppaði nú á brúnni, þar sem vegkanturinn (hyldýpisbrúnin) er hæstur ... en ekki á sjálfri merktri stoppistöðinni, sem er nokkuð nær Reykjavík, en ekki alveg nógu mikið.
Haffi, fyrrum bílstjóri Skagastrætó, greip fram í fyrir mér í langri og áhugaverðri frásögn minni um næstum því stórslysfarir mínar þarna og sagði að eitt sinn hefði rannsóknarlögreglumaður verið farþegi með Akranesstrætó (sem á þeim tíma fór alla leið í bæinn) og lögginn sá að vagninn stoppaði einum ljósastaur nær Reykavík en stoppistöðin sagði til um, og stytti þar með göngutíma okkar Sigþóru og fleiri nokkuð. Þessi rannsóknarlögga hótaði að kæra þetta (sem ég get ekki skilið) og síðan hefur verið stoppað einum ljósastaur fjær Akranesi sem er miklu, miklu verra. Hvar er þessi rannsóknarlögga núna? Það hlýtur að vera lögbrot að stoppa EKKI á stoppistöðinni ... og fyrst það er ekki stoppað á stoppistöðinni hvers vegna má þá ekki stoppa þeim megin við hana sem er þægilegra fyrir farþegana ... og kemur í veg fyrir, ef stoppistöð yrði sett þar, að Strætó bs þurfi að fara í rándýra tröppugerð þarna niður, sem annars verður að gera.
Ég hótaði 80 milljón króna skaðabótakröfu á Strætó ef ég rúllaði niður brekkuna aftur ... þar sem strætó stoppar nú talsvert ÁÐUR en hann kemur á stoppistöðina en mér skilst að vagnstjórinn sé skaðabótaskyldur ef hann stoppar ekki á sjálfri stoppistöðinni ... Vagnstjórar, passið ykkur, elskurnar.
Ég sting upp á því að þessi fokkings „stoppistöð“, sem var t.d. í fréttunum sl. haust vegna fáránlegrar staðsetningar verði færð sem nemur "einum ljósastaur" NÆR Reykjavík (eða skiltinu skellt á næsta ljósastaur við hliðina og málið er dautt! Þar verði stoppað framvegis, ekki á brúnni. Þá rúlla færri manneskjur þarna niður og við kjéddlíngarnar sem ekki þorum lengur að taka sénsinn að feta okkur varlega niður lóðréttan vegkantinn yrðum þakklátari strætó fyrir að stytta þá vegalengd sem við þurfum að ganga og við komumst fyrr til vinnu okkar. Nema Strætó bs. útbúi bara flottar tröppur fyrir okkur, svona eins og eru í Ártúni (milljóntröppurnar).
Líst vel á þetta framtak að vera með strætóeftirlitsmenn. Það er mjög hressandi að hlaupa hratt með þá á eftir sér (þykjast vera með útrunnið kort)og þegar þeir ná manni þá sýnir maður þeim löglegt kortið með ungmeyjarroða í kinn. Þetta virkar þó ekki þrisvar í röð ... Ég er núna endurnærð og þakklát Strætó bs fer ég inn í daginn sem verður vonandi líka spennandi hjá ykkur, krúttin mín.
P.s. Hitti indæla Formúlumanninn (Gunnlaug sem lýsir Formúlunni) rétt áðan og spurði hann hreinskilnislega hvort ég þyrfti VIRKILEGA að vakna kl. 6 á sunnudagsmorgni til að horfa á Formúluna. Mér til mikillar gleði ætlar Stöð 2 Sport að endursýna keppnina kl. 11.30 á hádegi í OPINNI DAGSKRÁ! Ég elska Stöð 2 Sport ... Vildi deila þessum gleðifréttum með ykkur. Gunnlaugur bætti reyndar við að maður ÆTTI alltaf að horfa á Formúluna í beinni, ekki endursýningu. En hva, hann þarf ekki að vakna kl. 6 á virkum dögum ... held ég.
Blogg
Meira um Ástþór og nýtt um Hyldýpið
09:39 › 27. mars 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
