Var dauð úr þreytu og fór ekki á fundinn á Skrúðgarðinum í kvöld, því miður. Frétti að þar hefði verið rosafjör, Ástþór og allt.
Kaddlinn bara birtist eldhress í bragði og vildi vera með, hleypti upp fundinum um tíma ekki við mikla hamingju viðstaddra sem ætluðu að hlýða á málflutning Borgarahreyfingarinnar yfir kaffisopa.
Þetta (vonandi) skúbb var í boði himnaríkis.
Svo verð ég að bolda svolítið um helgina, þetta gengur ekki. Held að Ridge sé í fangelsi en Taylor er ekki enn búin að frétta að barnið sem hún gengur með er í raun barn Brooke, erkióvinarins, vegna eggjamistaka dóttur Brooke, dr. Bridget, en allar þessar konur konur, Taylor, Brooke og Bridget, hafa verið giftar Nick. Draumur Brooke um að eignast barn með Nick rætist en á annan hátt en hún vonaði.
Þá er að fara að sofa, þó fyrr hefði verið. Gott að ég blundaði aðeins í leisígörl áðan.
Það verður sko nóg að gera á morgun. Við munum þá leggja síðustu hönd á þykkt og djúsí páskablað sem kemur út í næstu viku.
Blogg
Læti á Skaganum ...
23:35 › 26. mars 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
