ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 5m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Stóra karlasamsærið ...

15:47 › 14. mars 2009

Klara á símanum skutlaði mér í Mosó eftir vinnu í gær en hún býr þar. Hún sagði mér frá spili (mér láðist að fá nafnið á því) þar sem voru sérhannaðar spurningar fyrir kynin. Aðallega slúðurspurningar fyrir stelpur og fótboltaspurningar fyrir stráka. Held að Klara sé reyndar jafnvíg á hvorttveggja. Hún vissi a.m.k. að Giggs er númer 11 hjá MU ... og Ronaldo nr. 7 (tók við númerinu af Beckham). Hún sagði að þetta væri skemmtilegt spil ef hún kæfði niður femínistann í sér. Veit ekki hvort við losnum við þessar staðalímyndir í bráð, ekki fór hugmyndin um að sleppa bleikum og bláum ungbarnafötum á fæðingardeildinni vel í þjóðina sem vildi að þingmenn hugsuðu um eitthvað markverðara. Þetta var samt góð tilraun. Þótt ég viti ekki mikið um fótbolta er ég samt verri í slúðrinu.
Svo veit ég að karlar hafa talið okkur konum trú um svo margt til að viðhalda þessu. Þeir hafa t.d. af algjörri snilli helmingað vinnuframlag sitt til heimilisstarfa með því að láta gera "kannanir" fyrir sig um að karlar geti bara gert eitt í einu. Þeir hafa talið okkur trú um að okkur konum finnist gaman í búðum og þannig sleppa þeir við þann hrylling. Þeir hafa líka sagt okkur að við séum sjúkar í skó og á meðan við höngum í skóbúðum við að velja skó hamast þeir við að hækka í tign og launum og við sitjum eftir með sárt ennið ... og reyndar skó í skaðabætur! Ég elska þá samt! Karlana sko, ekki skóna.

Spjallaði við indælan mann á stoppistöðinni, löggu sem lenti í slysi fyrir nokkrum árum og verið í skrifborðsvinnu síðan. Við komumst heilu og höldnu á Kjalarnesið hans og síðan á Skagann minn þrátt fyrir hvassviðri, hviðurnar voru rétt um 25 m/sek sem er ekki neitt í rauninni.

Farþegarnir hneykslast enn á (eða gera grín að) són-svæðunum (gjaldsvæðunum), eða t.d. því að són 2 er eitthvert óskilgreint buskasvæði þar sem enginn farþegi býr eða strætó gengur (m.a. í botni Hvalfjarðar) en á því svæði tvöfaldast bara gjaldið, á meðan það þrefaldast á sóni 3 (Akranes). Ég tók undir þetta með einum samfarþega mínum, huggulegasta manni með beiskjudrætti um munninn vegna þessa. Ég fer ekki ofan af því að ef Skaginn yrði settur í són 2 myndi farþegum fjölga aftur og allir græða.

Lína mín frá Palestínu
átti 29 ára afmæli á miðvikudaginn. Við stuðningsfjölskyldurnar gáfum henni silfurhálsmen í afmælisgjöf og knúsuðum hana að sjálfsögðu í ræmur á afmælisdaginn. Svo var sjálf veislan haldin í gærkvöldi. Súkkulaðiterta með arabiskri áletrun, sælgæti og gos/ávaxtasafi. Tónlist á hæsta og mikið dansað. Ég á ekki orð yfir þessar konur ... þær hafa verið hér í sex mánuði og það er hægt að halda uppi samræðum við þær á íslensku. Ég er steinhætt að bregða fyrir mig enskunni, þær eru orðnar betri í íslensku en ensku svo það væri bara bjánalegt. Lína gladdist ekki bara yfir afmælinu, heldur líka því að systir hennar eignaðist dóttur í gær. Bara gaman.

Ég varð auðvitað mjög óþekk
af öllum hávaðanum og sykrinum og þegar ég kom heim höfðu kettirnir aldrei séð annað eins. Ég hefði gert bjölluat hjá nágrönnum mínum til að hrista aðeins upp í þeim ef ég hefði ekki verið að flýta mér að fara að horfa á Útsvar.

Útsvar þurfti að vera í seinkaðri dagskrá
vegna afmælisins og ég vonaði heitt að hið skemmtilega lið Fljótsdalshéraðs sigraði (er sérlega beisk út í Kópavogsliðið fyrir að fleygja Skagamönnum út í tvígang). Skemmtilegur þáttur en mikið vildi ég að Kópavogsstrákarnir hefðu ekki tekið þetta svona alvarlega. Þetta er ekki Gettu betur! Ég reyndi eftir bestu getu að öskra rétt svar á Fljótsdalshérað þegar spurt var um lið Péturs Péturssonar ... en svo mundi ég að þátturinn var í seinkaðri dagskrá ...



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?