Fékk gríðarlega áskorun sem má lesa í athugasemd við síðasta blogg og mun því bolda í dag, ekki blogga, en margt og mikið hefur gengið á hjá Forrester-fjölskyldunni. Hef ekki horft á boldið um tíma en það gerir ekkert til, auðvelt að ná plottinu með því að horfa þriðju hverja viku.
Nick sat í fangelsi um tíma grunaður um að hafa drepið Shane, flakkarann og eltihrelli Phoebe litlu. Eins og glöggir og minnugir bold-aðdáendur muna þá reyndi Ridge að koma í veg fyrir að Shane skyti sig en tókst ekki. Ridge fékk áfall sem tengist fortíð og losaði sig við líkið með því að sökkva því í sæ ... með akkerinu úr snekkju Nicks sem er hálfbróðir hans og keppinautur um ástir ýmissa kvenna.
Phoebe litla sagði Rick upp þar sem hann hélt ekki með Ridge, pabba hennar, heldur Nick sem mamma Ricks (Brooke) elskar enn. Rick er farinn að deita aðra ...eða ilmvatnskonu Forrester-tískuhússins sem átti að fara á stefnumót með Ridge kvöldið örlagaríka. Rick hringir í Phoebe og ilmdræsan sést uppi í rúmi þegar Phoebe segist þarfnast hans ... vondi Rick.
Taylor (geðþekki geðlæknirinn með varirnar) er orðin ólétt eftir frjósemisaðgerð ... óvitandi um að egg erkióvinarins (Brooke) voru sett í hana ... mistök dr. Bridget, dóttur Brooke, sem var áður gift Nick, eða áður en hann féll fyrir mömmu hennar (Brooke). Senn hlýtur því að líða að því að Brooke komist að þessu og ást hennar til eggsins kvikni. Þá verður stuð.
Nick losnaði úr fangelsi þegar Ridge játaði aðild sína að málinu. Brooke komst að þessu öllu saman, en Stefanía, mamma Ridge, reyndi að koma í veg fyrir að hún kjaftaði frá með ýmsum ráðum ... m.a. hræddi hana með símasnúru ... vafði henni um háls hennar í óhugnanlegu atriði ... Ógnaði henni svo með byssu og fór með hana í Big Bear, fjalla"kofa" fjölskyldunnar og hélt henni þar í sólarhring til að Brooke næði ekki að kjafta frá. Fortíðarmál Ridge var víst þannig að hann var sýknaður vegna einhvers en dómarinn sagði þá að ef hann kæmi nálægt öðru máli þar sem skotvopn kæmi við sögu gæti hann kembt hærurnar í steininum. Þetta mundi krúttmolinn þegar hann stóð yfir Shane sem hafði áreitt dóttur hans mánuðum saman. Hann vissi að enginn myndi trúa sögu hans.
Vona svo að kvöldið verði stórkostlegt hjá ykkur. Fimmtudagar eru frábær sjónvarpskvöld, eiginlega þau bestu ... bæði 24 og Boston Legal ... og auðvitað Aþrengdar eiginkonur þótt ég sé hætt að nenna að horfa á þær. Maður getur ekki horft á allt! Það þarf líka að lesa ... og lifa (horfa á sjóinn, sofa og slíkt).
P.s. Myndin er af Taylor inni í framtíðinni ... þegar hún er búin að eignast barnið (egg Brooke) en kristalskúlan mín segir að þau Nick skilji og hún fari að marinera sig í brennivíni. Nick fær forræðið yfir syninum! Svo sá ég ekki meira. Takið eftir vörunum og hversu stórt hlutverk þær leika í andliti hennar.
Blogg
Ridge í steininum, mjög djúsí boldfærsla
17:33 › 12. mars 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
