ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 5m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Leyndarmál á karlaklósetti - uppljóstrun í morgunsárið

11:42 › 6. febrúar 2009

Eitthvað hefur umferðin verið minni um Hvalfjarðargöngin í morgun en undanfarið þar sem ansi margir Skagamenn tóku sér far með mér í næstfyrsta strætó dagsins frá Akranesi. Þetta er líka frábær ferðamáti þegar nýja okurverðið er ekki tekið með í reikninginn. Hlini kom inn skammt frá sætukarlastoppistöðinni og var innilega fagnað af okkur Skúla. Haffi sat hinum megin við ganginn, bara stilltur. Við ræddum um hvalveiðar, kreppu, uppsagnir og slíkt en enginn slóst eða reifst. Kjalnesingar komu meira að segja með friði inn í vagninn við Grundahverfið og er þá mikið sagt.

Nýlega var aðgangskort mitt
að Hálsaskógshúsinu gert óvirkt þar sem fyrirtækið mitt hefur þjappast meira saman og leigir nú ekki lengur óþarflega stór salarkynni Krókhálsmegin í hússinu. Þeir voru ekki lengi að meina mér um aðgang að dyrunum í nokkurra skrefa fjarlægð frá strætóstoppistöðinni ... og ég hef séð fyrir mér hrakningar, fótbrot og slíkt í vetur þegar ég þarf nú að taka á mig aukakrók fyrir húsið, langan krók og hættulegan. Nötraði af skelfingu þar sem ég stóð í frostinu í Ártúni og beið í tíu mínútur eftir leið 18. Ég er fljótari frá Mosó með leið 6 og það þýðir lengri biðtími í Ártúni. Kannski tek ég bara leið 15 og dröslast gegnum fallega Mosfellsborg til að vera lengur í hitanum. 

Mikið hlýnaði mér, bæði andlega og líkamlega, þegar ég sá hjartans þýðandann í leið 18. Honum er nefnilega treyst fyrir lyklakorti að útidyrunum, enda vinnur hann í þeim enda hússins ... við að þýða íþróttaþætti Stöðvar 2 sport. Þýðandinn leyfði mér að fljóta með í gegnum "leynidyrnar" og spurði mig á leiðinni upp stigann hvort ég hefði ekki skrifað bók ... ja, jú, ég tók saman í fyrra lífsreynslusögur eftir mig úr Vikunni og eftir okkur Steingerði almáttuga í hittiðfyrra. Hann glotti og tilkynnti mér svo að bláa lífsreynslusögubókin, þessi seinni, væri heimilisföst á karlaklósettinu! Mikið lesin. Sú fyrri er rauð, eins og sjá má af myndinni. Það er bara ekki nógu karlmannlegt að vera með rauða bók á klósettinu, minnir á ástarsögur og karlmenn verða ekki ástfangnir, hafa því ekki áhuga á slíku væli. Blá bók ... jamm, eitthvað strákalegt! Hehehehe

Fannst þetta mjög merkilegar upplýsingar
og sagði honum eina góða lífsreynslusögu þarna á ganginum í gleðismitaðri geðshræringu minni. Kom þá ekki Gísli Ásgeirsson, ættingi Más Högnasonar og þýðandi Gray´s Anatomy, labbandi. Loksins, loksins. Hann var mjög nálægt því að verða heimsækjandi/fletting númer milljón á moggablogginu mínu gamla fyrir nokkrum mánuðum. Brynja Skordal á einmitt inni kaffiboð í himnaríki fyrir að vera númer milljón. Gísli var c.a. nr. milljón og einn og ég var búin að lofa honum góðum kaffibolla hér í vinnunni. Ég greip í hnakkadrambið á honum og hljóp með hann að kaffivélinni mín megin í húsinu. Hann skyldi fá kaffið nú eða ellegar hafa verra af. Hellti upp á tvöfaldan espressó fyrir hann með því að ýta á einn takka tvisvar, þvílík er tæknin orðin. Held að Gísla hafi ekki orðið meint af. Nú held ég með honum og Álftanesi í Útsvari. Held reyndar að Álftanes hafi dottið út, tapað fyrir fokkings Kópavogi (djók, Hilda systir) en í mínum huga er Álftanes the lið ... jamm, einmitt Útsvar í kvöld. Gísli les stundum bold-færslurnar mínar og er farinn, sér til mikillar skelfingar, að fylgjast með boldinu kl. 9 á morgnana þar sem hann hleypur á brettinu í ræktinni. Hann er samt á því stiginu að skilja betur ef talað er um ljóshærðu konuna (Brooke) og dökkhærðu konuna (Taylor geðlækni með varirnar). Jamm.

Óska ykkur sérlega dásamlegs dags
og enn betri helgar. Ætla að prófa að elda eitthvað nýtt og spennandi um helgina. Lasagnað var ágætis eldskírn, lífsreynsla sem ég mun byggja á þegar næstu tilraunir verða gerðar. Spurning hvað er spennandi að búa til ... má ekki kosta mikið og heldur ekki vera of flókið! Hugmyndir vel þegnar!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?