Eins gott að Sigþóra var ekki í sama strætó og ég í morgun. Ekki nóg með að það væri hvasst heldur ýldi undarlega í vagninum á Kjalarnesi. Hljóðið var alveg eins og í sturtuatriðinu í myndinni Psycho (1960). Vegna vöðvabólgu (syfju og leti líka) gat ég ekki snúið mér almennilega við. Kannski var þetta bara fiðlusveitin hans Ragnars við æfingar aftar í vagninum.
Þetta var klikkaður bolludagur, svo mikill að á heimleiðinni þurfti enginn að gera sig sérlega þungan í strætó til að halda honum á veginum, enda svo sem hægari vindur. Bara ég: Tvær fiskibollur í hádeginu, ein vatnsdeigsbolla í kaffinu og tilhugsunin um sams konar bollu við heimkomu gerðu allan galdurinn.
Í heila viku hef ég ferðast um á röngu strætókorti. Ég sýndi Skúla það nógu lengi núna seinnipartinn að hann rak augun í að talan 1 var á því í stað tölunnar 3 en talan 3 gefur mér rétt til að taka þrjú sæti í Reykjavíkurstrætó þar sem ég borga þrefalt (tvöfalt reyndar þar sem þetta er niðurgreitt kort). Ég tók eftir þessu á bæjarskrifstofunum þegar ég sótti það eftir að hafa greitt fullt gjald fyrir 3, gerði athugasemd en var sagt að talan þýddi að ég hefði borgað fyrir einn mánuð. Græni liturinn segir reyndar til um að þetta sé mánaðarkort, tölustafurinn að ég vegi þrefalt meira (sérstaklega eftir allar bollurnar) en einhver minnaborgandi strætólúser í Reykjavík. Hressu konurnar á bæjó sannfærðu mig um þetta, ég þurfti að sjá græna kortið hjá öðrum farþega merkt 3 til að ég tryði Skúla en ekki þeim.
Ég er búin að fatta að ef ég ætla að græða almennilega á þessu korti þarf ég helst að rúnta til Hveragerðis minnst aðra hverja helgi með strætó. Alltaf gaman í Hveragerði.
Mikið fannst mér annars fallega gert af Skúla að leyfa mér að komast heim á ranga græna kortinu. Ég hélt upp á þessa heppni með því að fá mér latte í Skrúðgarðinum. Tvöfaldur latte þar heitir Himnaríki! Ég rétt missti af Maríu Skrúðgarðsdrottningu en systir hennar býr líka til gott kaffi, ekki sjóðandi eða tungubrennandi heitt, heldur u.þ.b. 150°F heitt, án froðu og með mátulega mikilli mjólk, sokkabuxnabrúnt.
Ég er pólitísk þótt ég láti aðra um að skrifa pólitísk blogg en fylgi í raun engum sérstökum flokki, það veitir mikið frelsi. Það er fólk sem ég vil geta kosið, ekki flokkar.
Mikið vildi ég að ég byggi í Reykjavík þessa dagana. Þá myndi ég taka þátt í forvali Vinstri grænna og velja þar Önnu Ólafsdóttur Björnsson og síðan kjósa hana á þing! Ég vona að hún fái gott gengi, hún á sannarlega erindi á þing. Frábær kona.
Blogg
Psycho-stuð og Græna kortið
21:20 › 23. febrúar 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
