„Við Kolla Bergþórs erum sko ekki sammála varðandi Bókaþjófinn,“ sagði ég við DV-gengið í matsalnum í hádeginu á meðan við úðuðum í okkur grísakjöti með berní ... einhverra hluta vegna var ekki lambalæri með berní eins og auglýst hafði verið.
Bókaþjófurinn er þykkur doðrantur sem kom út núna fyrir jólin og tengist, ásamt ansi mörgum öðrum bókum (15-20 stk.) úr síðasta jólabókaflóði, seinni heimstyrjöldinni. Kolbrún sagði í Kiljunni sl. miðvikudag að hún hefði upplifað Bókaþjófinn sem bók sem hefði átt að vera svo áhrifamikil og sorgleg ... „en sorrí, þetta hefði ekki virkað á hana.“ (ekki orðrétt). Tek það fram að ég hef einstaklega gaman af þessum þáttum, sérstaklega spjallinu við Kollu og Pál Baldvin ... og hér með ljóstra ég því upp að ein hamingjusamlega gift samstarfskona mín hjá Birtíngi heldur ekki vatni yfir Páli ... finnst hann einn mesti sjarmör landsins. Ja, mér finnst hann heldur ekkert óhuggulegur.
Get vel skilið Kollu, þótt ég ekki sammála henni í þessu tilfelli, ég hef upplifað þetta sama, t.d. með bíómyndina I am Sam, sem átti að vera svo krúttleg um greindarskertan föður sem fékk ekki að ala upp dóttur sína en elskaði hana heitar en allt Ljóshærð samstarfskona mín er enn í krúttkasti yfir þeirri mynd, ég fæ bara aula- og væmnihroll. Mögulega fannst með Sean Penn ekki trúverðugur í hlutverkinu. Finn þó fyrir þessu með sumar bækur þótt engin komi sérstaklega upp í hugann núna.
Bókaþjófurinn fannst mér einmitt ekki reyna að vera eitt eða neitt, gaf bara góða mynd af lífi hins venjulega, fátæka Þjóðverja sem var dreginn nauðugur út í stríð! Jú, áhrifamikil og sorgleg ... en það var ekkert verið að reyna að kreista fram tárin að mínu mati. Tóti á DV hefur ekki enn lesið hana („hún er svo þykk, væl, væl“) en sagði að Jakob Bjarnar blm hefði grátið svo mikið yfir henni að hann hefði þurft að lesa smástund í bókinni Góði dátinn, Sveik til að jafna sig ... Ég var ekki beðin um að þegja yfir þessu.
Skúli hafði kíkt á síðustu bloggfærslu mína og sagði róandi í morgun: „Gurrí mín, hafðu engar áhyggjur af strætóúttektinni í maí, kannski fáum við bara minni bíl fyrst farþegum hefur fækkað, þessar ferðir verða ekkert lagðar niður.“ Ja,, vonandi. En er það þjóðhagslega hagkvæmt að fækka farþegum með handafli (hækkunum) til þess eins að fá minni bíla? Eru kannski laun bílstjóranna í stíl við stærð bílsins? Hummmm.
Mikið er gaman að það skuli vera kominn föstudagur/Idol-dagur. Mér finnst alltaf gaman að íslenska Idolinu, frá byrjun til enda, ... en það ameríska er bara skemmtilegt fyrst, að mínu mati.
Blogg
Misjafnir væmniþröskuldar
14:00 › 20. febrúar 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
