ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.2° 11m/s SSW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Kisan sem tók til sinna ráða ...

21:09 › 2. febrúar 2009

Fyrir rúmum mánuði fór Pálína, virðuleg læða sem býr í grennd við Míu systur og Sigþór mág, að venja komur sínar á kærleiksheimili þeirra hjóna, ja, svona einu sinni í viku. Þar var til kattamatur, enda frekar stutt síðan elsku Bjartur flutti óvænt í kattahimnaríki. Pálína var merkt og kom í ljós þegar hringt var á heimili hennar að hún átti nokkra nýfædda kettlinga og þurfti greinilega á smá húsmæðraorlofi að halda. Sem ábyrg móðir stoppaði hún aldrei lengi. Mía og Sigþór kíktu á kettlingana skömmu fyrir jólin og fannst þeir náttúrlega algjör krútt. Þegar heim var komið töluðu þau um að ákveðin bröndótt læða væri sætust og ef þau fengju sér kettling yrði hún líklegast fyrir valinu. Þau orðaskipti heyrði Pálína ekki ...
Í dag mætti Pálína sem oftar og hagaði sér svolítið undarlega. Þegar hún var komin inn settist hún við dyrnar út í garð og linnti ekki látum fyrr en opnað var fyrir henni. Hún fór út á stétt og mjálmaði þar hátt og snjallt. Systir mín er lasin og lokaði dyrunum til að henni versnaði ekki af kvefinu. Eftir nokkrar heyrði hún hljóð innan úr herbergi heimasætasveinsins Kolbeins, fyrst mjálm í Pálínu og síðan mjóróma kettlinsmjálm. Þarna var Pálína komin upp í glugga með kettling með sér, einmitt fallegu, bröndóttu læðuna. Mía tók hana í fangið, Pálína mjálmaði bless og hljóp heim. Búin að finna heimili fyrir dótturina. Litlan lét strax eins og heima hjá sér og enginn söknuður eftir mömmu virðist vera fyrir hendi/loppu.
Skyldi Pálína ferðast um hverfið (Vallholt, Hjarðarholt) þessa dagana með hina kettlingana og afhenda þá nýjum eigendum sem hún hefur handvalið síðustu vikurnar?
Þegar Mía hringdi í eiganda Pálínu og sagði honum frá þessu varð
hann eðlilega mjög hissa. Mía tilkynnti honum að farið yrði að óskum
Pálínu, litla læðan væri komin með heimili ef hann væri sáttur við
það ... sem hann var. Eina vandamálið ... hvað á litla snúllan að
heita?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.