Hvít jörð í morgun, nokkuð sem hlý kápa, arabaklútur um háls, þykkt sjal, vettlingar og heitur latte gerðu bærilegt á meðan á strætóbið stóð. Ég hugsaði með pínu öfund til Nönnu Rögnvaldar og úlfaskinnshúfunnar sem hún keypti á Ebay. Get ekki hugsað mér að nota húfu nema ef vera skyldi slíka húfu, almennilega rússahúfu úr góðu skinni, þess vegna gervi ... Jamm, ég á afmæli 12. ágúst nk.
Skúli kom brunandi á flotta strætó upp úr 7.30 (sjá mynd) og tók okkur gellurnar á gáfukvennastoppistöðinni upp í og við vorum ekki fyrr komnar í sæti okkar þegar brjáluð hríð skall á, óvanalegt á hinum veðursæla Skaga. Við tókum hvern hvíthríðarveðurbarða Skagamanninn af öðrum upp í og á sætukarlastoppistöðinni voru bara tveir karlar, hinir örugglega rammvilltir einhvers staðar við Bónus eða eitthvað. Enginn Borgnesingur heiðraði okkur með komu sinni í morgun, ekki frekar en í gær og fyrradag, kannski notast þeir helst við fyrstu ferð dagsins.
Frétti í gær að það ætti að gera ÚTTEKT á strætó (Akr.Rvík) í maí nk. og ákveða framtíð þessarra ferða í kjölfarið. Ég er orðin svo tortryggin á þessum skrýtnu krepputímum að mér datt í hug að það ætti kannski að hætta með strætó og nota þá afsökun að farþegum hefði fækkað svo síðan um áramót. Ja, við höfum kannski gullfiskaminni á sumt en ekki 200% hækkun fargjalda sem á sér tæplega nokkra hliðstæðu í hinum siðmenntaða heimi. Auðvitað fækkaði farþegum við þetta, nú munar svo litlu á því að keyra sjálfur, maður þarf hvort eð er að borga tryggingar og gjöld af bílnum þótt hann standi í bílskúr á Skaganum ...
Svo í gærmorgun beið okkar farþega bréf í strætó þar sem kemur fram að ekki verði unnt að bíða eftir leið 15 úr Reykjavík, heldur verði farið á mínútunni 16.45 frá Mosó til Akraness. Ekki séns að bíða í 5 mínútur á þessum mikla annatíma. Enn meiri atlaga, mögulega enn meiri fækkun farþega í kjölfarið og þá tekur þessu varla lengur. Heyrði einhvern hvísla í gær að verið væri að fórna hagsmunum fjöldans fyrir hagsmuni eins eða tveggja aðila sem myndi annars koma of seint eitthvað ... en sel það ekki dýrar en ég keypti það. Þetta þýðir 55-60 mínútna bið fyrir Skagafólkið sem kemur með leið 15 frá Reykjavík og grípur í tómt.
Af því að ég er svo góð þá sting ég upp á nokkrum fljótlegum leiðum til að þetta (samsæriskenning mín) gangi enn hraðar og ferðirnar sem fengu mig til að flytja á Skagann á sínum tíma verði felldar niður:
1) Ráða geðilla bílstjóra og fá þá til að stoppa bara á annarri hverri stoppistöð, eða að eigin vali. Mútur gætu þá bæst ofan á fargjaldið.
2) Skera á öryggisbeltin.
3) Hafa kristilega útvarpspsstöð á fullu blasti á leiðinni. T.d. predikanir Gunnars okkar í Krossinum.
4) Láta bílstjórann maula harðfisk/hákarl og hafa pokann alltaf opinn. Þorramatur á gólfinu kemur líka til greina.
5) Hafa alltaf heitt og loftlaust í strætó.
6) Hafa alltaf kalt í strætó, bílstjórinn getur verið í Max-galla.
7) Hækka gjöldin enn meira, úr 840 kr. í t.d. 1.000 kall?
Kokkurinn í mötuneytinu var að sögn svikinn um steinbítinn í morgun og bauð okkur þess í stað upp á núðlur með kjúklingabitum ... Það ríkti ekkert svo mikil sorg yfir því hjá samstarsfólki en samt grátlegt að svona núðludrasl kosti næstum þúsundkall fullu verði. Á morgun verður lambalæri og berní ... bætir þetta upp ... nema kokksi verði svikinn um lærið og bjóði upp á pasta.
Blogg
Stórhríðin hans Skúla, steinbítssvik og samsæriskenning
14:53 › 19. febrúar 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
