ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.4° 10m/s WSW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Næstum hrós og hálfgerðar hremmingar

21:50 › 16. febrúar 2009

„Þú hefur bara ekkert breyst síðan þú varst krakki,“ sagði konurödd í leið 15 í morgun. Ég var nýsest eftir strætóskiptin í Mosó og leit upp úr spennandi bókinni (Tilræðið), gladdist einlæglega, enda hvaða kerling vill ekki á þessum krepputímum dýrra strætósamgangna líta út eins og krakki? Þetta var Ásta úr bókasafninu (reyndar komin á eftirlaun), konan sem kynnti mig fyrir bestu vinum æsku minnar; Kim, Percival Keene, Pollýönnu, Bob Moran, Basil fursta, krökkunum úr Ævintýrabókunum, Fimmbókunum, Dularfullu bókunum og um 10 ára aldur; prinsessum Barböru Cartland, hjónaband-í-hættu-fólki úr bókum Theresu Charles o.fl.. Hún átti ekki við útlit mitt, eins og glöggir blogglesendur ættu að hafa áttað sig á, heldur lestraráhugann. Við spjölluðum saman alla leiðina úr Mosó og hættum ekki fyrr en í Ártúni eftir milljóntröppurnar. Hún slapp við lúmsku brekkuna, fór á þægilegri stoppistöð eiginlega undir brúnni þar sem leið 19 stoppar. Ásta sagðist vera að fara að leika sér og útskýrði það ekkert nánar. Hlini, maðurinn hennar, sat á móti okkur, ferðaðist afturábak í tíma og rúmi og tók því engan þátt í samræðunum. (Myndin er af Ástu í bókasafninu á Akranesi í gamla daga)

Tveir Indverjar, hægláti maðurinn og þrír ungir menn, fáránlega ógreiddir, voru meðal farþega í leið 18 en ástkær þýðandinn var hvergi sjáanlegur. Mér tókst samt að komast inn bakdyramegin með því að hræða unga konu sem var á leið inn en svo bara vandræði ... Dyrnar á milli Krókhálshluta hússins og matsalarins opnuðust ekki ... fyrr en eftir ítrekaðar tilraunir konunnar en hún var sem betur fer sjálf á leið í matsalinn svo ég tafði hana ekki, bara dyrnar sem komu okkur í þessar næstum því hremmingar. Annað hvort hefur Leyniþjónusta Íslands flutt þarna inn fyrst allt er svona lok, lok og læs eða aðskilnaðarstefna í gangi. Ég er reyndar eina manneskjan af Birtíngi sem hef notað þessa leið (með hjálp þýðandans) undanfarið til að sleppa við að fótbrjóta mig (í hálku) frá stoppistöðinni, yfir bílastæðið, upp brekkuna og að Birtíngsútidyrum á meðan bakdyrnar eru alveg við stoppistöðina. Skil svo sem alveg að óviðkomandi manneskja (reyndar á hryðjuverkalista Breta) eigi ekki að geta valsað þarna um en það ætti að vera í lagi t.d. í fylgd þýðandans míns sem er reyndar líka terroristi. Ætla rétt að vona að hann mæti á miðvikudaginn, elsku karlinn, og fimmtudag og föstudag. Spáð er hvassviðri og rigningu næstu daga, suðvestanátt á morgun sem gerir sjóinn minn alveg úfinn ... sem er bara frábært þar sem ég vinn heima á morgun í lánstölvunni.
Mæli svo með bókinni Tilræðið sem var að koma út í kilju, hún er rosalega góð.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.