Ansi hvasst var á Kjalarnesinu í morgun og reyndum við Helgi rithöfundur að gera okkur níðþung til að halda strætó á veginum fyrir Skúla bílstjóra. Það tókst svona líka ljómandi vel að við komumst heilu og höldnu í Mosó þar sem sexan beið eftir okkur. Í Ártúni, hinum megin við götuna, var nokkur bið og mér til mikillar ánægju hitti ég Harald, ljósmyndara og strætóbílstjóra á leið 15, á leið í Mosó. Bros hans á morgnana þegar við komum hlaupandi úr Skagastrætó lífgaði alltaf upp á daginn hjá okkur farþegunum. Bóndinn úr Árnessýslu sat síðan undir stýri í leið 18 og stærsti kvíði dagsins hvarf þegar ég sá blessaðan þýðandann sitja og lesa bók um The Saint (Liverpool-leikmann) sem þýddi að ég þurfti ekki að staulast upp glerhála brekku til að komast í vinnuna, heldur komst inn bakdyramegin með korti þýðandans, hetju minnar ... svona í hálkunni.
Tölvuvesenið hefur því miður haldið áfram í tölvunni minni heima. Þegar allt átti að vera orðið hreint og tölvan hreinlega farin að mala af vellíðan og hreinleika þá trylltist vírusinn skyndilega og þegar kveikt er á tölvunni núna er skjárinn svartur og hreinlega ekkert hægt að gera. Gat þó í gær gert cntr-alt-delete og unnið í gegnum New Task ... ekkert hægt núna. Reyndi meira að segja að halda straujárninu upp að, heyrði einhvern tala um strau ... en ekkert virkaði. Hohoho. Endar líklega með því að ég þarf að fara með greyið til tölvulæknis þar sem almennt kunnáttuleysi um vírusa og slíkan viðbjóð ríkir í himnaríki. Tölvusnillingar sem eru mikið fyrir vöfflur og latte hafa þó tíma til að bjóða sig fram til björgunarstarfa ... ég er því miður komin á þann aldur að ekkert þýðir að bjóða blíðu, það fælir bara frá ... annars hefði ég skráð mig á einkamál.is undir BB, eða Blíða gegn björgun.
(... vá, hvað það er mikill föstudagur í mér ...)
Mjög vel gengur hér í vinnunni, búið að lesa næstum allt blaðið yfir á mettíma, bara tvær blaðsíður eftir sem verið er að vinna, hitt allt búið og hægt að senda það snemma í prentsmiðju. Jesssss!
Í nýjustu Vikunni birtum við brot úr spádómum Nostradamusar, m.a. þeim sem tengjast Íslandi og mjög fyndið að sjá hvað þeir eiga vel við núna eftir að álit umheimsins á okkur hrundi eins og bankarnir. Þetta eru túlkanir Guðmundar Sigurfreys Jónassonar og komu út á bók fyrir 13 árum!
Þarna segir m.a. um Ísland.: „Þau munu verða dæmd til gjalda fyrir glæp sem þau hafa ekki drýgt. Með yfirborðsmennsku verður hinu mæta lýðveldi gert rangt til.“
Það er alltaf auðvelt að túlka hlutina eftir á ... en þetta er skrýtið. Í greininni (bls. 45) kemur fram að helmingur spádóma Nostradamusar hafi komið fram.
Neyðarlög og efnahagshrun á Íslandi, segir þarna líka ... og ... eftir ár velfarnaðar verður kvíðvænlegt ástand þegar eignarnám og einræði breytir búsæld eyjarinnar. Ég ítreka, þetta birtist í bók eftir Guðmund árið 1996! Mér skilst að ný bók sé í burðarliðnum um spádómana og komi út á þessu ári. Guðmundur sagði mér að í einni bóka hans um Nostra hafi komið fram fall kommúnismans og Berlínarmúrsins. Honum fannst það svo ótrúlegt að hann setti þá spádóma aftarlega í bókina og velti sér ekkert sérstaklega upp úr þeim. Ótrúlegt.
Ég óska ykkur innilega góðrar helgar. Hugsa að ég geti ekki verið tölvulaus alla helgina og kíki örugglega í Skrúðgarðinn bæði laugardag og sunnudag, þarf maður ekki líka að hugsa aðeins um bloggsíðuna sína og bloggvinina, tala nú ekki um Facebook? Þvílík vanræksla sem hefur verið í gangi eftir hrunið (tölvuhrunið). Eins gott að hafa nóg að lesa. Það var að koma út splunkuný spennubók eftir James Pattersen ... svo er ég að lesa Pappírsfiðrildi, kínverska glæpasögu sem lofar góðu. Líst líka rosalega vel á Tilræðið, bók sem gerist í Ísrael.
Jamm, tölvur hvað! Verst með heimavinnudaginn minn á þriðjudaginn ...
Blogg
Hvassviðri, tölvuvesen og spádómar
15:38 › 13. febrúar 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
